Jólablað Vísbendingar er komið út. Meðal efnis er frásögn af mergjuðu sakamáli í Reykjavík árið 1803. Ásgeir Jónsson hagfræðingur færir rök að því að barátta Jóns Arasonar biskups hafi verið studd af Þjóðverjum sem vildu vernda viðskiptahagsmuni á Íslandi. Eyþór Ívar Jónsson vitnar í einn mesta stjórnunargúrú sögunnar um ráð sem myndu nýtast Íslendingum vel í endurreisninni. Páll Stefánsson rifjar upp fall Berlínarmúrsins fyrir 20 árum.
Stærsta greinin í blaðinu er viðtal við Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóra Þjóðviljans. Hann segir frá baráttunni eftir miðja öldina, gleði sinni yfir því að Stalín dó, stuðningi Sovétmanna við starfið á Íslandi, samstarfið við Austur-blokkina og skjöl um Íslendinga í Austur-Þýskalandi. Í greininni segir:
„Ég dvaldi í einn mánuð á síðasta ári í Berlín og var að rannsaka samskipti stjórnvalda í Austur-Þýskalandi og stofnana á þeirra vegum við einstaklinga og félagasamtök á Íslandi. Það er búið að flokka mjög vel ýmis skjalasöfn frá þessum tíma og ég skoðaði tímabilið frá stofnun alþýðulýðveldisins og allt fram yfir 1980. Afrakstur þessarar ferðar, nær 500 skjöl, afhenti ég svo Þjóðskjalasafninu og það verður þar opið til aflestrar öllum frá næstu áramótum 2009/10,“ segir Kjartan og bætir við að það yrði of langt mál að skýra nánar út það sem hann komst á snoðir um þar eystra.
En fannstu eitthvað sem kom þér á óvart?
„Ójá mér er óhætt að segja það.“
Blaðið má panta hér.
Fleira skemmtilegt efni er í blaðinu eins og hér má sjá:
Jólasálmur (Ýttu á til þess að spila lagið)
Frá ritstjóra
Upp komast svik..... – Frásögn eftir Benedikt Jóhannesson
Hvað var Jón biskup að hugsa?... – Ásgeir Jónsson
Okkar eigin orð....... – Fleyg orð í endurreisninni - Árið 2009 í Vísbendingu
Þeirra eigin orð........ – Fleyg orð í útrásinni - Úr bók Óla Björns Kárasonar
Stríð og friður Kjartans Ólafssonar – Páll Ásgeir Ásgeirsson ræðir við Kjartan
Heilræði Druckers til framfara – Eyþór Ívar Jónsson
Innmúrað og innvígt – 20 ár frá falli Berlínarmúrsins – Páll Stefánsson