Í könnun Frjálsrar verslunar fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar var spurt: Hvort ætlar þú að greiða atkvæði með eða móti Icesave lögunum.
Alls voru 636 spurðir og 11,3% lýstu því yfir að þeir styddu lögin. 51,5% sögðust vera á móti, en 37,1% voru óviss. Þetta er talsvert hátt hlutfall óvissra.
Ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem afstöðu tóku eru 18% fylgjandi lögunum en 82% andvíg þeim.
Niðurstöður eru býsna afgerandi og vikmörk eru +/- 3,0%.
Samkvæmt þessu er ljóst að Icesave-samningarnir verða kolfelldir.
Í fyrsta tölublaði Frjálsrar verslunar sem kemur út eftir miðjan febrúar verða birtar niðurstöður könnunarinnar um vinsælasta fyrirtæki landsins.
Óheimilt er að birta niðurstöður nema heimildar sé getið og gefin vefslóð að svæðinu heimur.is.
©heimur.is