leita

forsida_fv_11_2011       

sky06-2011-forsida     

atlantica0511-cover 

 
Friends of Heimur:
sunglasses  
http://www.extratour.de

 
Skráið ykkur á póstlista
29/12/2011 | 19:23

Eyjólfur Árni Rafnsson maður ársins 2011 - Myndir

Fjölmenn veisla til heiðurs Eyjólfi Árna Rafnssyni, forstjóra Mannvits, manni ársins í atvinnulífinu hjá Frjálsri verslun, var haldin á Hótel Sögu síðdegis þann 29. desember. Margt var um manninn og komu margir til þess að samfagna með Eyjólfi Árna, ættingjar, samstarfsmenn, vinir og fjölmargir leiðandi aðilar í viðskiptalífinu.

_go29806
Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, afhendir Eyjólfi Árna viðurkenninguna.

Jón G. Hauksson ritstjóri lýsti kjöri dómnefndar og því næst flutti Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra stutt ávarp þar sem hún lýsti einangrun Skaftafellssýslna þar til verkfræðin hefði brúað bilin. Áður hefðu þar hvorki þrifist kettir, hundar né rottur. Hún afhenti Eyjólfi Árna svo viðurkenninguna og hann þakkaði fyrir sína hönd og fyrirtækisins með ræðu.

Loks komu þeir Sigtryggur Baldursson, Bogomil Font, söngvara og trommuleikari, Ástvaldur Traustason píanóleikari og Óttar Sæmundsen bassaleikari og skemmtu gestum með fjórum fallegum og hressilegum lögum sem lýstu stemningunni frá sveit til borgar. Á meðfylgjandi myndum má sjá að kátt var á hjalla og margir góðir gestir.

Hagt er að tvísmella á myndirnar til þess að stækka þær.

Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri Heims stýrði veislunni.


Share

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, var með skemmtilega líkingu þegar hann sagði á Viðskiptaþingi að krónan væri fíllinn í stofunni og að við þyrftum nýjan gjaldmiðil. Hann sagði ennfremur að núna væri krónunni þakkað að ekki fór verr í hruninu og það væri svipað og þakka brennuvargi að ekki fór




03. febrúar | The Artist
The Artist er fullkomin óður til kvikmynda fortíðarinnar, þegar kvikmyndir voru nánast eingöngu hugsaðar til að skemmta fólki, fá það til að losna úr viðjum drungalegs veruleika fyrri hluta tuttugusta aldarinnar og gleyma sér í ævintýraheimi hetjunnar sem alltaf fékk stúlkuna sína að lokum. Ekki skipti máli að kvikmyndin


 


 




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is