
Skúli í Subway og yfirgripsmikil úttekt á framhaldsskólunum setja sterkan svip sinn á nýútkomið tölublað Frjálsrar verslunar. Þetta er annað árið í röð sem stærðfræðingurinn Pawel Bartoszek ber saman árangur íslenskra framhaldsskóla á ólíkum sviðum. Í þetta skiptið voru þeir metnir í tuttugu mismunandi flokkum.
Nokkur breyting er á aðferðafræðinni frá í fyrra og munar þar mest um að nýr þáttur bætist við; útskriftarhlutfall nemenda þegar upp í Háskóla Íslands er komið. Þessi nýi liður vegur 30% í heildarmatinu.
Helstu niðurstöður eru þessar:
* Menntaskólinn í Reykjavík er í efsta sæti með 69,55 stig. MH í öðru sæti með 51,18 stig.
* Menntaskólinn á Egilsstöðum er hástökkvari könnunarinnar.
* Fjölbrautarskóli Vesturlands er sömuleiðis hástökkvari í könnuninni en skólinn er með bestan árangur allra skóla þegar kemur að útskriftarhlutfalli nemenda í Háskóla Íslands. Nemendur hans hafa hæsta útskriftarhlutfall úr Háskóla Íslands nokkrum árum eftir innritun.
* Fjölmargar keppnir framhaldsskólanna fá minna vægi.
* Skólarnir eru núna metnir í 20 ólíkum flokkum en 17 í fyrra.
* Núna er reynt er að taka tillit til stærðar skóla þar sem því verður við komið, þ.e.a.s. í þeim flokkum þar sem árangur skóla er mældur út frá fjölda nemenda í úrslitum er nú leiðrétt með tilliti til stærðar skóla.
* Keppni eins og Gettu betur vegur 2,5% í heildarsamantektinni.
Heildarskorið reiknað
Heildarskor hvers skóla var reiknað með því að taka vegið meðaltal stiga í hverjum flokki. Vægi flokkanna var eftirfarandi:
Árangur (útskriftarhlutfall) nemenda í HÍ 30%
Árangur í fagkeppnum (13 flokkar) 45%
Árangur í öðrum keppnum (4 flokkar) 10%
Menntun kennara 10%
Aðsókn 5%
Það er sérlega athyglisvert að skoða liðinn Gengi í háskóla, þ.e. útskriftarhlutfall nemenda í Háskóla Íslands. Þar skoar Fjölbrautarskóli Vesturlands og Menntaskólinn á Egilsstöðum hæst. Nemendur úr þessum skólum eru líklegastir til að fara beint í háskóla eftir nám og útskrifast þar á réttum tíma.
--------------------
Ísland er einn af sterkustu mörkuðum Subway í heiminum:
Galdurinn
felst í
gamaldags
hugsun
Með þrjósku, ákefð og tvær hendur tómar tókst Skúla Gunnari Sigfússyni að opna lítinn Subway-skyndibitastað í Faxafeni árið 1994. Nú átján árum síðar er Subway orðin stærsta veitingahúsakeðjan á Íslandi, með 20 staði um allt land, 300 manns í vinnu og veltu upp á 1,6 milljarða á ári. Skúli var nýlega útnefndur viðskiptafræðingur ársins 2011 af Félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Skúli skráði sig í New York-maraþonið á dögunum og er mjög spenntur fyrir því verkefni.
Efnisyfirlit í 3. tbl. 2012
6 Leiðari: Vér mótmælum allir.
8 Ljósmyndabók: Einstök ljósmyndabók Sigurjóns Péturssonar og Þóru Hrannar Njálsdóttur.
14 Stærstu viðskipti Íslandssögunnar.
18 Geir Haarde: 95% sigur.
19 Í stuttu máli: Gamall kunningi bankar upp á.
22 Flug: Sautján flugfélög keppa um Ísland.
24: Nýherji fagnar tvítugsafmælinu.
28 Sprotarnir sprungu út á Seed Forum.
30 Álitsgjafar Frjálsrar verslunar.
30 Ragnar Árnason: Vafasöm framkvæmd gjaldeyrishafta af hálfu Seðlabanka.
36 Forsíðuefnið: Skúli í Subway segir að galdurinn á bak við viðskiptaveldi hans sé gamaldags hugsun.
46 Bækur: Samskiptafærni er mikilvægasta færni forstjórans.
48 Efnahagsmál: Er bóla í Noregi?
50 Framhaldsskólarnir: Hvaða skólar skara fram úr?
64 Stjórnun: Traust er betra en skriflegir samningar.
67 Afmælisráðstefna Þráins Eggertssonar hagfræðings.
70 Fiskveiðistjórnun: Aðsend grein eftir Guðmund Franklín Jónsson, formann Hægri grænna, flokks fólksins.
74 Ferðaþjónusta: Vestfirðir eru komnir á kortið.
76 Hönnun eftir Svövu Jónsdóttur.
78 Kvikmyndir.
80 Fólk