vetrarbordi2010-02
leita

fv03-2011-forsida   

sky02-2011-forsida  

atlantica0211-cover 


Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, var með skemmtilega líkingu þegar hann sagði á Viðskiptaþingi að krónan væri fíllinn í stofunni og að við þyrftum nýjan gjaldmiðil. Hann sagði ennfremur að núna væri krónunni þakkað að ekki fór verr í hruninu og það væri svipað og þakka brennuvargi að ekki fór verr. Hann sagði einnig að á Íslandi væru tvær krónur, önnur óverðtryggð og hin verðtryggð.

bj_effect08Í gær dó Whitney Houston. Allar fréttirnar um andlátið sögðu frá því að hún hefði verið frábær söngkona en jafnframt kom fram að hún hefði verið í dópi, pillum og brennivíni. Auk þess barði maðurinn hennar hana.

Jón Ásgeir er á góðri leið með að verða löglærður maður eftir yfirheyrslur og málaferli í næstum tíu ár samfellt. Baugsmálið tók um sjö ár og skattahlið þess yfir þrjú ár til viðbótar. Hann stendur núna í málaferlum við Svavar Halldórsson fréttamann og Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra. Jón Ásgeir tapaði málinu gegn Svavari í undirrétti og hefur áfrýjað því til Hæstaréttar.

Þess utan hefur Jón staðið í ströngu vegna málaferla Glitnis gegn honum en sú kæra var upplega tekin upp í New York en hefur verið vísað þar frá og flyst væntanlega til Íslands. Af þessu sést að Jón Ásgeir er ekki alveg að hverfa á næstunni úr dómsal – og hvað þá Gestur verjandi hans – þrátt fyrir að hafa kvartað undan því 2008 að hann hefði mátt eyða drjúgum hluta sjö ára í að verja sig fyrir íslenskum dómstólum.






© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is