vetrarbordi2010-02
leita

fv03-2011-forsida   

sky02-2011-forsida  

atlantica0211-cover 
17/05/2011 | 09:49

Úttekt Frjálsrar verslunar: Hvaða framhaldsskólar skara fram úr?

fv03-2011-forsidaNýjasta tölublað Frjálsrar verslunar er pakkfullt af fjölbreyttum greinum. Úttekt Frjálsrar verslunar á framhaldsskólum landsins og hverjir skara fram úr er stórfróðleg. Þetta er í fyrsta sinn sem svona samantekt er gerð. Skólunum  er raðað niður á lista eftir skori. Pawel Bartoszek vann úttektina fyrir Frjálsa verslun.

Forsíðuviðtalið er við Lars Christensen, hagfræðing hjá Danske bank og höfund Geysis-skýrslunnar frægu árið 2006. Lars var hér á landi nýlega og var bjartsýnn á framtíð íslensks efnahagslífs. Hann er spámaður á Íslandi en Danir vita almennt ekki hver hann er; hann er því spámaður fjarri sínu föðurlandi. Lars segir að það hafi verið hárrétt að einkavæða ríkisbankana á sínum tíma. „Það væri ekkert vit í að hverfa aftur til ríkisrekstrar á bönkum eins og áður var,“ segir Lars.

Fjárfestirinn Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er afkastamikill fjárfestir. Farið er yfir helstu fjárfestingar hans að undanförnu en nýjasta fjárfestingin er 60 milljarða útgjöld ríkisins í tengslum við nýgerða kjarasamninga. Steingrímur lítur svo á að með þessu sé verið að koma kerfinu af stað og hann fái féð til baka síðar í auknum skatttekjum vegna meiri umsvifa.

Leiðari Jóns G. Haukssonar ber yfirskriftina Drógu stóran hring, vítahring. Þar gagnrýnir hann nýja kjarasamninga ASÍ og Samtök atvinnulífsins harðlega. Hann segir þetta verðbólgusamninga af gamla skólanum þar sem verðlag og kaupgjald hækkaði á víxl. Var þjóðin ekki búin að fá nóg af slíkum samningum?

Það er spenna í kringum bresku verslunarkeðjuna Iceland en skilanefnd gamla Landsbankans á 67% hlut í henni. Núna er rétti tíminn til að selja, að mati ráðgjafa skilanefndar. Malcolm Walker, forstjóri Iceland, á forkaupsrétt á hlutnum. Hann stofnaði fyrirtækið og hefur reynst því mjög verðmætur. Margir hafa sýnt Iceland áhuga og verðmatið á fyrirtækinu liggur á bilinu 280 til 340 milljarðar, að mati Financial Times. Malcolm þarf því augljóslega að fara í næsta banka ætli hann sér að nýta forkaupsrétt sinn.

Velkomin Harpa er yfirskrift á 28 síðna blaðauka um Hörpu sem fylgir Frjálsri verslun. Harpan kostar sitt en hún er engu að síður merkur áfangi í menningarsögu Íslendinga. Hún er komin, hvað sem hver segir, og hana ber að bjóða velkomna. Það gerir Frjáls verslun með viðtölum við fjölda fólks sem koma að byggingu hennar og rekstri.

Efnisyfirlitið lítur annars svona út:

Lars Christensen:
Það var rétt að
einkavæða bankana

Fjármál:
Fjárfestirinn Steingrímur J.

Salan á Iceland:
Fást 200 milljarðar
fyrir hlutinn í Iceland?

    
Úttekt á íslenskum framhaldsskólum:
Hverjir skara fram úr?

Hvað heldur aftur af þér?
10 leiðir til að ná meiri árangri

Sælgætisneysla Íslendinga:
Fjögur þúsund tonn á ári

Akademían og atvinnulífið:
Dregur úr frumkvöðlaviljanum
við að fara í háskóla?

Menning:
28 síðna blaðauki um Hörpuna


6   Leiðari: Afleitir samningar ASÍ og SA.

8  Fréttamyndin: Íslendingar borða fjögur þúsund tonn af sælgæti á ári.

10  Fyrst og fremst: Ný stjórn Stjórnvísi.

13   Fyrst og fremst: Gyðja Collection.

14  Stjórnun: Hugmyndastjórnun er vannýtt leið til árangurs.

16   Fyrst og fremst: Fjárfestirinn Steingrímur J.

18   Samtök fjárfesta: Stjórnvöld láti af ofurskattlagningu sparnaðar.

20  Dr. Vlad Vaiman í HR: Mannauðurinn mikilvægari en áður.

22  Álitsgjafar Frjálsrar verslunar.

26  Salan á Iceland: Innleysir skilanefndin 200 milljarða?

34  Í fyrsta sinn á Íslandi: Úttekt á framhaldsskólunum.

46  Stjórnun: Ágreiningur og togstreita.

50  Bækur: Hvað heldur aftur af þér? 10 leiðir til að ná meiri árangri.

51  Stjórnun: Vertu sköpunarsinni.

52  Fasteignamarkaðurinn: Við nýttum sóknarfærin.

54  Kynjakvótar: Áhrifin önnur en ætlast var til.

56  Dregur úr frumkvöðlaviljanum við að fara í háskóla?

58  Fatnaður: Útrás íslensks útivistarfatnaðar.

62  Blaðauki: Velkomin Harpa.

90  Lífsstíll: Viskíkvöldverður á Holtinu.

92  Kvikmyndir: Sumarsmellir.

95  Fólk.

98  Afi minn athafnamaðurinn.


 

Share



Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að Jóhannes í Bónus ætlar að opna nokkrar Iceland verslanir á Íslandi með Malcolm Walker, eiganda keðjunnar í Bretlandi, og keppa m.a. við sitt gamla félag Bónus. Fyrsta verslunin er sögð opna á rauðum degi á almanakinu, 17. júní. Hratt flýgur fiskisaga og í þetta skiptið hefur hún ekki síður borist út vegna óvenjulegra rætinna ummæla Jóhannesar í garð Egils Helgasonar blaðamanns og fjölskyldu hans. Það verður að segjast eins og er að það er ómaklegt af Jóhannesi að  blanda fjölskyldu Egils inn í umræðunar þótt Egill geri á síðu sinni lítið úr Jóhannesi og endurkomu hans inn á markaðinn. Jóhannes skuldar Agli afsökunarbeiðni út af þeim ummælum. Það vekur að vísu furðu mína hvað mörgum finnst orð Jóhannesar fyndin, en svona er Ísland í dag; stjórnarfar og hugarfar á Íslandi hefur breyst eftir hrun. Það hefur verið gefið út veiðileyfi á allt og alla og þar fara ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar fremst í flokki.

benedikt09Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.

Hægrikonan Marine Le Pen, sem varð þriðja í fyrri umferð forseta- kosninganna í Frakklandi hinn 22. apríl sl., segist ætla að skila auðu í seinni umferð kosninganna sem verður núna um helgina, sunnudaginn 6. maí. Le Pen hlaut 17,9% atkvæða í fyrri umferðinni. Ég staldraði við þegar hún sagðist ætla að skila auðu vegna þess að nýlega lenti ég í miklum rökræðum um hvað það merki að skila auðu í kosningum. Er það að vera hlutlaus og hafa enga skoðun? Felast í því skilaboð að láta aðra sjá um að ákveða þetta? Er einhver raunverulega „að kjósa“ að skila auðu?





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is