
Yfirgripsmikið og fróðlegt viðtal er við Þorstein Má Baldvinsson í nýjasta tölublaði Frjálsrar verslunar sem er pakkfullt af fjölbreyttum greinum að venju. Ragnar Árnason, hagfræðingur og prófessor, gerir greinargóða úttekt fyrir Frjálsa verslun á kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar. Átján síðan blaðauki er um kvótafrumvörpin. Bræðurnir Páll og Magnús Harðarsynir í Kauphöllinni eru með úttekt á gjaldeyrishöftunum og vilja að þau verði afnumin sem fyrst. Sigurður Jóhannesson hagfræðingur ræðir um samkeppnishæfi þjóða og veltir því fyrir sér hvernig sé að reka fyrirtæki á Íslandi.
Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, ræða um kaupin á Brimi, kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar, framfarir í sjávarútvegi, tækni framtíðarinnar í sjávarútvegi, fiskifræðina, LÍÚ sem þrýstihóp, gjaldeyrishöftin, helstu styrkleika Samherja, stjórnunarstílinn, heilræði hans í stjórnun, hvers vegna Samherji sé eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Evrópu, ESB, evruna, fjárfestingar útlendinga í íslenskum sjávarútvegi, arfleifð föður hans, samvinnuna við Kristján Vilhelmsson, mánuðina í Glitni, áhuga hans á fjárfestingum í bönkum, útgáfu Morgunblaðsins og Davíð Oddsson, uppáhaldsíþróttafélagið KA og gömlu hjátrúna að losa festar þegar Akureyrin lét úr höfn.
Hér koma nokkrar tilvitnanir úr viðtalinu við Þorstein Má:
...„Það skiptir í raun litlu máli hvort þú notar krónu eða evru. Til að gjaldmiðill sé trúverðugur þarf agaða hagstjórn.“
...„Samherji hefur aldrei auglýst eftir fólki í yfirmannsstöður. Við höfum aldrei ráðið þannig í stjórnunarstörf hjá félaginu. Allir skipstjórar Samherja hafa byrjað sem hásetar eða stýrimenn. Allir stjórnendur Samherja í landi hafa byrjað annars staðar í fyrirtækinu. Það sama gildir um erlend dótturfélög okkar.“
...„Frumvörpin ganga m.a. út á það að verðlauna þá sérstaklega sem hafa selt sig út úr þessari grein og færa þeim aflaheimildir aftur. Sem dæmi má nefna að allur byggðakvóti Dalvíkurbyggðar á þessu fiskveiðiári fór til aðila sem höfðu áður selt sig út úr kerfinu og hafið smábátaútgerð.“
Ragnar Árnason, prófessor og einn fróðasti og virtasti hagfræðingur á alþjóðlegum vettvangi um fiskihagfræði og sjávarútvegsmál gerir yfirgripsmikla úttekt á kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar fyrir Frjálsa verslun. Þetta er einstök úttekt og kemst Ragnar að þeirri niðurstöðu að kvótafrumvörpin séu kollsteypa.
Leiðari Jóns G. Hauksson ber yfirskriftina „Ómerkilegur þjófnaður“ og vísar hann þar í orð Þráins Eggertssonar í Frjálsri verslun nýlega þar sem hann sagði: „Ríkisvaldið hyggst knýja þá sem keypt hafa kvótana fullu verði til að kaupa þá aftur. Getur þjóðarsálin veikst?“ Jón gerir sína úttekt á kvótafrumvörpunum og telur þau bæði hagfræðileg mistök, óréttlát og enn eitt dæmið um svik þessarar ríkisstjórnar.
Bræðurnir Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX kauphallarinnar á Íslandi, og bróðir hans, Magnús, forstöðumaður viðskiptasviðs hjá Kauphöllinni, skrifa frábæra grein um mikilvægi þess að afnema gjaldeyrishöftin sem fyrst.
Sérstakur átján síðna blaðauki er um kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar þar sem rætt er við fjölmarga hagsmunaaðila í greininni. Eiríkur S. Eiríksson blaðamaður hafði umsjón með blaðaukanum.
Efnisyfirlitið lítur annars svona út:
Þorsteinn Már Baldvinsson:
Ég virði gamlar hefðir!
Kotter:
Átta þrep
breytingastjórnunar
Sérkennileg þverstæða:
Eykur eldgosið
landsframleiðslu?
Stjórnendur Kauphallarinnar:
Afnema þarf
höftin sem fyrst
Samkeppnishæfi þjóða:
Er auðvelt að
reka fyrirtæki á Íslandi?
Ítarleg úttekt Ragnars Árnasonar
á kvótafrumvörpunum fyrir Frjálsa verslun:
Kvótafrumvörpin eru kollsteypa
Kvótafrumvörpin:
Átján síðna blaðauki
Stjórnmálamaðurinn:
Ólafur Thors
6 Leiðari: „Ómerkilegur þjófnaður!“
8 Fréttamyndin: Heimsfræg gosmynd Sigurlaugar Linnet.
10 Fyrst og fremst: Rosabaugur yfir Íslandi.
11 Stjórnun: Kotter og þrepin átta í breytingastjórnun
12 Álitsgjafar Frjálsrar verslunar.
15 Stjórnunarmolinn: Fullkomni forstjórinn.
16 Stjórnendur Kauphallarinnar: Afnema gjaldeyrishöftin strax.
20 Verðlaun: Fyrirtæki ársins hjá VR.
22 Hagtölur: Nokkrar þekktar hagtölur.
24 Forsíðuviðtalið: Rætt við Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja.
38 Samkeppnishæfi þjóða: Er auðvelt að reka fyrirtæki á Íslandi?
40 Stjórnun: Hvað eru skapandi leiðtogar að pæla?
42 Nýr forstjóri: Steinn Logi Björnsson er orðinn forstjóri Skipta.
44 Bækur: Hvers vegna ná sumir hópar ekki árangri?
46 Samskiptastefna: Hvers virði er hún?
48 Dominique Strauss Kahn: Fallið er hátt.
50 Kvótafrumvörpin: Átján síðna umfjöllun um þessi umdeildu frumvörp.
52 Kvótafrumvörpin: Ítarleg úttekt Ragnars Árnasonar á kvótafrumvörpunum fyrir Frjálsa verslun:
68 Sumarið er tíminn: Grillað með Hrefnu Sætran.
72 Stjórnmálamaðurinn: Ólafur Thors.
76 Kvikmyndir: Vegurinn langi.
78 Hönnun: Miðaldir og sjöundi áratugurinn.
80 Fólk.
82 Afi minn athafnamaðurinn. Margrét Kristmannsdóttir segir frá afa sínum Magnúsi Þorgeirssyni.
Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.