vetrarbordi2010-02
leita

fv03-2011-forsida   

sky02-2011-forsida  

atlantica0211-cover 
08/07/2011 | 17:21

100 áhrifamestu konurnar

fv05-2011-forsidaGlæsilegt, fróðlegt og stórt blað Frjálsrar verslunar um 100 áhrifamestu konurnar er komið út. Blaðið er 148 blaðsíður að stærð og hefur umfjöllunin um áhrifamestu konurnar aldrei áður verið eins viðamikil. Það var fyrir átta árum sem Frjáls verslun valdi fyrst áhrifamestu konur viðskiptalífsins og hefur þetta verið árlegt efni síðan. Til þessa hefur valið snúist um viðskiptalífið en núna er valið úr öllum atvinnugreinum; viðskiptum, stjórnmálum, stjórnsýslunni, listum og menningu. Vonandi fellur lesendum þessi breyting vel í geð.

Frjáls verslun birtir litlar svipmyndir af um helmingi kvennanna og eru það eingöngu karlmenn sem lýsa konunum. Þetta er mjög fróðlegar lýsingar, læsilegar og skemmtilegar.

Jón G. Hauksson skrifar leiðara um ríkisstjórnina og ber hann yfirskriftina: Stjórnin kemst upp með allt!

Gísli Kristjánsson er með yfirgripsmikla fréttaskýringu um konurnar í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Í þessari tíu manna ríkisstjórn eru fjórar konur og sex karlar. Gísli fær þau Eirík Bergmann, stjórnmálafræðing og forstöðumann Evrópufræðaseturs á Bifröst, Þorgerði Einarsdóttur, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands, og Stefáníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðing til að meta störf kvenráðherranna.

Konur velja kvennaríkisstjórn. Líkt og í fyrra kannar Frjáls verslun hvaða konur yrðu fyrir valinu í ríkisstórn sem væri eingöngu skipuð konum. Leitað er til þrjátíu málsmetandi kvenna úr öllum starfsstéttum og þær beðnar um að nefna þrjár konur sem þær veldu í kvennaríkisstjórn. Jóhanna Sigurðardóttir komst ekki á blað í fyrra en fær núna 3 atkvæði af 90 mögulegum. Flestar konur nefna Höllu Tómasdóttur og Rögnu Árnadóttur.

Hvaða konur sitja í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins og hvaða konur eru næstráðendur í þessum stærstu fyrirtækjum landsins? Það kemur í ljós að nokkrar þekktar konur sitja í stjórnum fjölda stórra fyrirtækja.

Mál málanna er jafnréttisstefna fyrirtækja og er Frjáls verslun með blaðauka um þetta mál. Langflest af stærstu fyrirtækjum landsins hafa sett sér virka jafnréttisstefnu, auk þess sem Alþingi hefur samþykkt lög um að í hlutafélögum, þar sem stjórnarmenn eru fleiri en þrír, skuli hlutfall hvors kyns að minnsta kosti vera 40% fyrir lok ársins 2013.

Margt annað fróðlegt efni er í þessu stóra og umfangsmikla blaði.

Efnisyfirlitið lítur annars svona út:


Forsíðuefni:
100 áhrifamestu konurnar

Leiðari:
Stjórnin kemst upp með allt

Fréttaskýring:
Hvernig hafa kvenráðherrarnir staðið sig?

Könnun:
Konur velja kvennastjórn

Könnun:
Hvaða konur eru í stjórnum stærstu  
fyrirtækjanna?

Indverska millistéttarstelpan:
Indra Nooyi, forstjóri Pepsi

Mál málanna:
Jafnréttisstefna fyrirtækja

 

6   Leiðari: Stjórnin kemst upp með allt.

8  Fréttamyndin: Svartur ís.

10   Stjórnunarmoli: Hvernig er frumlegur vinnustaður?

10   Græjur: Rafbækur seljast betur en prentaðar bækur.

12   Vinnustaðurinn: Hláturjóga eykur afköst.

14   Bankamál: Sissener leysir frá skjóðunni.

18  Hönnun: Frumleikinn blasir við.

20  Myndasyrpa: FKA konur í starfi og leik.

22  Kaupin á Já: Eingöngu konur komu að samningnum.

24  Forsíðuefni: 100 áhrifamestu konurnar.

74  Fréttaskýring: Hvernig hafa kvenráðherrarnir staðið sig?

78 Könnun: Konur velja kvennaríkisstjórn.

80 Könnun: Konur í stjórnum stærstu fyrirtækjanna.

84 Könnun: Konur sem næstráðendur í stærstu fyrirtækjunum.

88 Áhrifakona: Indra Nooyi, forstjóri Pepsi.

92  Blaðauki: Jafnréttisstefna fyrirtækja. Fjölmargar konur segja frá jafnréttisstefnu 
       fyrirtækja sinna.

94  Ráðstefna: Virkjum karla og konur til athafna.

100  Katrín Olga: Aukin arðsemi fyrirtækja með jafnvægi kynja í stjórnendastöðum.

102  Sigrún Þorleifsdóttir: Ólíkur stjórnunarstíll karla og kvenna.

132  Stjórnun:  Mary Parker Follett er völva stjórnunarfræðanna.

134   Stjórnun: Þær brutu ísinn.

140   Kvikmyndir.

142   Fólk.

146 Blátt ævintýri.

 

Share



Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að Jóhannes í Bónus ætlar að opna nokkrar Iceland verslanir á Íslandi með Malcolm Walker, eiganda keðjunnar í Bretlandi, og keppa m.a. við sitt gamla félag Bónus. Fyrsta verslunin er sögð opna á rauðum degi á almanakinu, 17. júní. Hratt flýgur fiskisaga og í þetta skiptið hefur hún ekki síður borist út vegna óvenjulegra rætinna ummæla Jóhannesar í garð Egils Helgasonar blaðamanns og fjölskyldu hans. Það verður að segjast eins og er að það er ómaklegt af Jóhannesi að  blanda fjölskyldu Egils inn í umræðunar þótt Egill geri á síðu sinni lítið úr Jóhannesi og endurkomu hans inn á markaðinn. Jóhannes skuldar Agli afsökunarbeiðni út af þeim ummælum. Það vekur að vísu furðu mína hvað mörgum finnst orð Jóhannesar fyndin, en svona er Ísland í dag; stjórnarfar og hugarfar á Íslandi hefur breyst eftir hrun. Það hefur verið gefið út veiðileyfi á allt og alla og þar fara ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar fremst í flokki.

benedikt09Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.

Hægrikonan Marine Le Pen, sem varð þriðja í fyrri umferð forseta- kosninganna í Frakklandi hinn 22. apríl sl., segist ætla að skila auðu í seinni umferð kosninganna sem verður núna um helgina, sunnudaginn 6. maí. Le Pen hlaut 17,9% atkvæða í fyrri umferðinni. Ég staldraði við þegar hún sagðist ætla að skila auðu vegna þess að nýlega lenti ég í miklum rökræðum um hvað það merki að skila auðu í kosningum. Er það að vera hlutlaus og hafa enga skoðun? Felast í því skilaboð að láta aðra sjá um að ákveða þetta? Er einhver raunverulega „að kjósa“ að skila auðu?





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is