vetrarbordi2010-02
leita

fv03-2011-forsida   

sky02-2011-forsida  

atlantica0211-cover 
10/05/2011 | 18:04

Azhkenazy-hjónin, Eyþór í Hárinu, Pútín, Svenni, Sigurður í Hjálmum og margt fleira spennandi efni

sky02-2011-forsidaAnnað tölublað SKÝJA er komið út, hlaðið af spennandi og lifandi efni að venju. Eyþór Ingi Gunnlaugsson er í aðalhlutverki á forsíðunni líkt og í Hárinu. Þetta er fróðlegt viðtal við Eyþór sem var lesblindur í æsku og með athyglisbrest, að sögn, en þó ekki með ovirkni tekur hann fram. Hárið er sígildur söngleikur.

Azhkenazy-hjónin Vladimír og Þórunn Jóhannsdóttir koma við sögu; sagt er frá því þegar þessi undrabörn hittust og felldu hugi saman og ferill þeirra rakinn. Flóttinn frá Sovétríkjunum þóttu stórtíðindi og komst í heimspressuna. Þau bjuggu í London fyrstu árin eftir að hafa komist undan járntjaldinu en 1968 fluttu þau til Íslands og settust hér að. Þau fluttu frá Íslandi 1978 og hafa síðan búið í Meggen í Sviss, rétt utan við Luzern.

Annar Vladimír kemur við sögu; Töffarinn í Kreml, Vladimir Pútín. Hann virðist vera undiförull og kaldur en um leið annt um ímynd sína.


Efnisyfirlit Skýja lítur annars svona út:

6  Leiðari: Getur list verið ógeðsleg?

8  Guðrún Högnadóttir í HR: Þekking er dýrmæt auðlind.

10  Forsíðuefni: Hárbeittur Eyþór.

16 Azhkenazy-hjónin. Sagan af undrabörnunum og ferli þeirra.

20 Svenni: Sveinn Sigurbjarnarson, þjóðsagnapersóna á Austfjörðum.

22  Sigurður Guðmundsson í Hjálmum og Mefismafíunni.

26 Alda Jónsdóttir: Hjólaði yfir kjöl með fjögurra ára dóttur sína.

28 Átakið hjólað í vinnuna.

32 Guðjón Ketilsson myndlistarmaður: Styrkur að kunna ekkert annað.

36 Finnur Magnússon: Breyttist úr ofurhetju í aðhlátursefni.

40  Ferming. Smásaga eftir Jóhann Þórsson.

44  Vladimír Pútín. Töffarinn í Kreml.

48  Hjalti Karlsson, hönnuður í New York sem vinnur fyrir stjörnurnar.

50  Leikkonan Anne Hathaway.

52  Woody Allen: Everyone says I love you fær góða dóma.

Nældu þér í Ský. Blaðið má fá í Eymundsson búðum auk þess sem það er í innanlandsflugi Flugfélags Íslands.

Share



Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að Jóhannes í Bónus ætlar að opna nokkrar Iceland verslanir á Íslandi með Malcolm Walker, eiganda keðjunnar í Bretlandi, og keppa m.a. við sitt gamla félag Bónus. Fyrsta verslunin er sögð opna á rauðum degi á almanakinu, 17. júní. Hratt flýgur fiskisaga og í þetta skiptið hefur hún ekki síður borist út vegna óvenjulegra rætinna ummæla Jóhannesar í garð Egils Helgasonar blaðamanns og fjölskyldu hans. Það verður að segjast eins og er að það er ómaklegt af Jóhannesi að  blanda fjölskyldu Egils inn í umræðunar þótt Egill geri á síðu sinni lítið úr Jóhannesi og endurkomu hans inn á markaðinn. Jóhannes skuldar Agli afsökunarbeiðni út af þeim ummælum. Það vekur að vísu furðu mína hvað mörgum finnst orð Jóhannesar fyndin, en svona er Ísland í dag; stjórnarfar og hugarfar á Íslandi hefur breyst eftir hrun. Það hefur verið gefið út veiðileyfi á allt og alla og þar fara ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar fremst í flokki.

benedikt09Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.

Hægrikonan Marine Le Pen, sem varð þriðja í fyrri umferð forseta- kosninganna í Frakklandi hinn 22. apríl sl., segist ætla að skila auðu í seinni umferð kosninganna sem verður núna um helgina, sunnudaginn 6. maí. Le Pen hlaut 17,9% atkvæða í fyrri umferðinni. Ég staldraði við þegar hún sagðist ætla að skila auðu vegna þess að nýlega lenti ég í miklum rökræðum um hvað það merki að skila auðu í kosningum. Er það að vera hlutlaus og hafa enga skoðun? Felast í því skilaboð að láta aðra sjá um að ákveða þetta? Er einhver raunverulega „að kjósa“ að skila auðu?





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is