vetrarbordi2010-02
leita

fv03-2011-forsida   

sky02-2011-forsida  

atlantica0211-cover 
29/12/2011 | 19:23

Eyjólfur Árni Rafnsson maður ársins 2011 - Myndir

Fjölmenn veisla til heiðurs Eyjólfi Árna Rafnssyni, forstjóra Mannvits, manni ársins í atvinnulífinu hjá Frjálsri verslun, var haldin á Hótel Sögu síðdegis þann 29. desember. Margt var um manninn og komu margir til þess að samfagna með Eyjólfi Árna, ættingjar, samstarfsmenn, vinir og fjölmargir leiðandi aðilar í viðskiptalífinu.

_go29806
Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, afhendir Eyjólfi Árna viðurkenninguna.

Jón G. Hauksson ritstjóri lýsti kjöri dómnefndar og því næst flutti Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra stutt ávarp þar sem hún lýsti einangrun Skaftafellssýslna þar til verkfræðin hefði brúað bilin. Áður hefðu þar hvorki þrifist kettir, hundar né rottur. Hún afhenti Eyjólfi Árna svo viðurkenninguna og hann þakkaði fyrir sína hönd og fyrirtækisins með ræðu.

Loks komu þeir Sigtryggur Baldursson, Bogomil Font, söngvara og trommuleikari, Ástvaldur Traustason píanóleikari og Óttar Sæmundsen bassaleikari og skemmtu gestum með fjórum fallegum og hressilegum lögum sem lýstu stemningunni frá sveit til borgar. Á meðfylgjandi myndum má sjá að kátt var á hjalla og margir góðir gestir.

Hagt er að tvísmella á myndirnar til þess að stækka þær.

Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri Heims stýrði veislunni.


Share



Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að Jóhannes í Bónus ætlar að opna nokkrar Iceland verslanir á Íslandi með Malcolm Walker, eiganda keðjunnar í Bretlandi, og keppa m.a. við sitt gamla félag Bónus. Fyrsta verslunin er sögð opna á rauðum degi á almanakinu, 17. júní. Hratt flýgur fiskisaga og í þetta skiptið hefur hún ekki síður borist út vegna óvenjulegra rætinna ummæla Jóhannesar í garð Egils Helgasonar blaðamanns og fjölskyldu hans. Það verður að segjast eins og er að það er ómaklegt af Jóhannesi að  blanda fjölskyldu Egils inn í umræðunar þótt Egill geri á síðu sinni lítið úr Jóhannesi og endurkomu hans inn á markaðinn. Jóhannes skuldar Agli afsökunarbeiðni út af þeim ummælum. Það vekur að vísu furðu mína hvað mörgum finnst orð Jóhannesar fyndin, en svona er Ísland í dag; stjórnarfar og hugarfar á Íslandi hefur breyst eftir hrun. Það hefur verið gefið út veiðileyfi á allt og alla og þar fara ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar fremst í flokki.

benedikt09Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.

Hægrikonan Marine Le Pen, sem varð þriðja í fyrri umferð forseta- kosninganna í Frakklandi hinn 22. apríl sl., segist ætla að skila auðu í seinni umferð kosninganna sem verður núna um helgina, sunnudaginn 6. maí. Le Pen hlaut 17,9% atkvæða í fyrri umferðinni. Ég staldraði við þegar hún sagðist ætla að skila auðu vegna þess að nýlega lenti ég í miklum rökræðum um hvað það merki að skila auðu í kosningum. Er það að vera hlutlaus og hafa enga skoðun? Felast í því skilaboð að láta aðra sjá um að ákveða þetta? Er einhver raunverulega „að kjósa“ að skila auðu?





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is