
Flóttinn til Noregs er stórfróðleg fréttaskýring og forsíðuefni nýs tölublaðs Frjálsrar verslunar sem er sneisafullt af efni að venju. Sjö Íslendingar hafa farið til Noregs á dag síðustu mánuðina. Margir þeirra eru mikið menntaðir. Þetta er því atgervisflótti ungs fólks.
Frjáls verslun gerir nákvæma könnun á lífsgæðum í Noregi og Íslandi, ber saman þessi tvö hagkerfi, og reiknar út í hvoru er hagkvæmara að búa.
Noregur hefur vinninginn Launin þar eru hærri og þar er líka dýrara að lifa. Engu að síður; þegar allt er tínt til er reiknisdæmið þeim í vil. Hjón með börn eiga afgang af launum sínum í Noregi en tæplega á Íslandi.
Guð blessi Evrópu. Svo nefnist leiðari Jóns G. Haukssonar, ritstjóra Frjálsrar verslunar. Skuldavandinn í Evrópu er mikill og hefur áhrif á fjármálakerfi heimsins. Við það eru menn núna hræddir og hafa nokkrir af þekktustu seðlabönkum heims ræst prentvélarnar til að bjarga fjármálakerfunum frá hruni.
Hver er staða Bjarna? Fóðlegt viðtal við Stefaníu Óskarsdóttur lektor um stöðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.
50 bestu græjurnar árið 2011. Þetta er skemmtileg lesning fyrir tækniþjóðina Íslendinga. Spurningin er auðvitað; hvaða græja er talin sú besta á árinu?
Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði, veltir því fyrir sér hvort um kerfisvillu sé að ræða í verðbólguspám Seðlabankans.
Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors, er ákveðin sveitastúlka úr Mýrdalnum. Hún er hér í skemmtilegri nærmynd sem og Christine Lagarde, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Tvö hagkerfi
Ísland Noregur
Brúttó:
Árslaun Jóns .............. 3.600.000 kr. 6.000.000 kr.
Árslaun Guðrúnar............ 3.600.000 kr. 6.500.000 kr.
--------------- ----------------
7.200.000 kr. 12.500.000 kr.
Persónuafsláttur..... 1.056.000 kr. 3.075.000 kr.
Tekjuskattur 37,3% 2.291.000 kr.
Tekjuskattur 36% 3.393.000 kr.
Til ráðstöfunar
á ári eftir skatta........... 4.909.000 kr. 9.107.000 kr.
Til ráðstöfunar
á mánuði eftir skatta... 409.000 kr. 759.000 kr.
Húsaleiga á mán.
(100m2 íbúð í Osló) 140.000 kr. 307.000 kr.
Dagheimili
(eldra barn,
Skóladagheimili
3 klst. og matur) 27.000 kr. 33.000 kr.
Dagvist á leikskóla
(Yngra barnið)..... 29.000 kr. 50.000 kr.
Barnabætur (tvö börn)
á mánuði............... + 13.000 kr. +37.000 kr.
Upphitun húsnæðis
og rafmagn 10.000 kr. 41.000 kr.
Rekstur bíls
(með afborgunum) 65.000 kr. 94.000 kr.
Matur, föt, skemmtun 142.000 kr. 205.000 kr.
Afgangur 9.000 kr. 66.000 kr.
Afgangur á ári 108.000 kr. 792.000 kr.
Efnisyfirlitið lítur annars svona út:
36 Forsíðuefni:
Flóttinn til Noregs
20 Stjórnmál:
Staða Bjarna eftir landsfund
56 Græjujól:
50 bestu græjurnar árið 2011
32 Seðlabankinn:
Er kerfisvilla í verðbólguspám Seðlabankans?
52 Nærmynd:
Sveitastúlka úr Mýrdalnum
6 Leiðari: Guð blessi Evrópu!
10 Kynning: Hátækni.
12 Kynning: Zo-On.
14 Í stuttu máli: Seðlabankar ræsa prentvélarnar.
17 Í stuttu máli: Fjórtán flugfélög til Íslands næsta sumar.
21 Í stuttu máli: Valdatafl í kringum Framtakssjóð?
24 Bókardómur: Bók Sigurðar Más um Icesave er skyldulesning.
26 Bækur: Heimur gefur út bókina Kattarglottið eftir Benedikt Jóhannesson útgefanda
og ritstjóra.
28 Vínklúbburinn Eauc de Vie er með bragðlaukana á hreinu.
32 Álitsgjafar Frjálsrar verslunar.
36 Forsíðuefnið: Flóttinn til Noregs.
46 Kynning: Kjarnafæði. Jólakörfurnar vinsælar.
48 Nærmynd: Christine Lagarde, 55 ára forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
52 Nærmynd: Vilborg Einarsdóttir er sveitastúlka úr Mýrdalnum.
55 Jólapakkinn: Græjur, matur, bækur og glæsifatnaður.
56 Græjur: Bestu græjurnar árið 2011.
64 Kynning: Sony.
65 Kynning: Bláa Lónið.
66 Kynning: Ostabúðin.
67 Kynning: Skýrr-EJS.
68 Kynning: Epli.is
70 Kynning: Ostakörfurnar frá MS.
71 Símar: Snjallir jólapakkar.
72 Spjaldtölvurnar: Gates sá innrásina fyrir.
74 Kynning: Opin kerfi.
76 Kynning: Dressmann.
78 Stjórnmál: Staða Bjarna Benediktssonar.
82 Vinnumarkaður: Hvernig er fyrir miðaldra stjórnendur að fá vinnu?
84 Bækur: Er sjálfstraustið besta eign einstaklingsins?
86 Stjórnun: Forgangsverkefni stjórnenda til 2015?
88 Stjórnun: Ertu útbrunninn? Kannaðu það. Hér kemur 12 stiga ferlið!
92 Hönnun: Það er margt nýstárlegt og flott í bænum.
94 Kvikmyndir: Sherlock Holmes.
96 Fólk.
Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.