vetrarbordi2010-02
leita

fv03-2011-forsida   

sky02-2011-forsida  

atlantica0211-cover 
23/12/2011 | 12:40

Gistihandbókin ÁNING er kominn út
aning2012Gistihandbókin ÁNING er nú kominn út átjánda árið í röð en hún kemur út í 50.000 eintökum á íslensku, ensku og þýsku. Í handbókinni er að finna upplýsingar um tæplega 240 gististaði, um 50 tjaldsvæði og 50 sundlaugar og staðsetningu þeirra um land allt.

Áningu er dreift ókeypis á öllum helstu ferðamannastöðum innanlands, á upplýsingamiðstöðvum, hótelum og gistiheimilum og víðar. Áningu er einnig dreift til yfir 200 ferðaskrifstofa í Evrópu og Norður-Ameríku,sem selja ferðir til Íslands. Þá er Áningu einnig dreift um borð í Norrænu.

Netútgáfu handbókarinnar er að finna á www.heimur.is/world

Útgáfufélagið Heimur hf. gefur handbókina út, ritstjóri er Ottó Schopka.
Share



Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að Jóhannes í Bónus ætlar að opna nokkrar Iceland verslanir á Íslandi með Malcolm Walker, eiganda keðjunnar í Bretlandi, og keppa m.a. við sitt gamla félag Bónus. Fyrsta verslunin er sögð opna á rauðum degi á almanakinu, 17. júní. Hratt flýgur fiskisaga og í þetta skiptið hefur hún ekki síður borist út vegna óvenjulegra rætinna ummæla Jóhannesar í garð Egils Helgasonar blaðamanns og fjölskyldu hans. Það verður að segjast eins og er að það er ómaklegt af Jóhannesi að  blanda fjölskyldu Egils inn í umræðunar þótt Egill geri á síðu sinni lítið úr Jóhannesi og endurkomu hans inn á markaðinn. Jóhannes skuldar Agli afsökunarbeiðni út af þeim ummælum. Það vekur að vísu furðu mína hvað mörgum finnst orð Jóhannesar fyndin, en svona er Ísland í dag; stjórnarfar og hugarfar á Íslandi hefur breyst eftir hrun. Það hefur verið gefið út veiðileyfi á allt og alla og þar fara ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar fremst í flokki.

benedikt09Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.

Hægrikonan Marine Le Pen, sem varð þriðja í fyrri umferð forseta- kosninganna í Frakklandi hinn 22. apríl sl., segist ætla að skila auðu í seinni umferð kosninganna sem verður núna um helgina, sunnudaginn 6. maí. Le Pen hlaut 17,9% atkvæða í fyrri umferðinni. Ég staldraði við þegar hún sagðist ætla að skila auðu vegna þess að nýlega lenti ég í miklum rökræðum um hvað það merki að skila auðu í kosningum. Er það að vera hlutlaus og hafa enga skoðun? Felast í því skilaboð að láta aðra sjá um að ákveða þetta? Er einhver raunverulega „að kjósa“ að skila auðu?





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is