
Ingvar E. Sigurðsson leikari er í stórfróðlegu forsíðuviðtali í nýjasta tölublaði SKÝJA. Skýin eru að venju sneisafull af góðu efni. Mögnuð grein er um Leirfinn; styttuna frægu í Geirfinnsmálinu, og leit Skýja að henni. Sú leit endaði á því að rannsóknarlögreglumaður kom með styttuna í pappakassa á ritstjórn blaðsins og þar var hún mynduð bak og fyrir. Leiðarinn ber yfirskriftina Hverfum aftur til náttúrunnar.
Skemmtileg frásögn er af Jónasi og Ritvélum framtíðarinnar en það er afbragsgóð hljómsveit. Þá er sagt frá verðlaunabænum Stykkishólmi, sýningu Daða Guðbjörnssonar, bókinni Íslenskum fuglum eftir Benedikt Gröndal, innrás spjaldtölvanna, kvikmyndastjörnunni Ryan Gosling.
Við bjóðum svo upp á ekta ítalskt túnfiskpasta og auðvitað jólakræsingar á jólahlaðborðum nokkurra veitingastaða.
Ingvar
Ingvar E. Sigurðsson er löngu kunnur sem einn ástsælasti leikari þjóðarinnar. Hlutverk hans á leiksviðinu síðustu tuttugu árin eru nánast óteljandi og hann hefur birst oftar í stórum rullum á hvíta tjaldinu en flestir íslenskir leikarar; nú síðast í glæpamyndinni Borgríki. Þrátt fyrir að eiga líklega fleiri Edduverðlaunastyttur en nokkur annar er hann hógværðin uppmáluð og segir að leiklistin snúist um að segja góðar sögur.
Nældu þér í Ský. Blaðið má fá í Eymundsson búðum auk þess sem það er í innanlandsflugi Flugfélags Íslands.
Efnisyfirlit Skýja lítur annars svona út:
Leiðari: Hverfum aftur til náttúrunnar.
Hin mörgu hamskipti Ingvars E. Sigurðssonar leikara.
Tími jólahlaðborðanna er runninn upp.
Flugfélag Íslands; hagstæðustu fargjöldin alltaf á netinu.
Leitin að Leirfinni
Jónas Sigurðsson: Músíkin lét mig ekki vera.
Rafbækur.
Verðlaunabærinn Stykkishólmur.
Daði Guðbjörnsson listmálari.
Malaví; hið heita hjarta Afríku.
Bóka- og tónlistargagnrýni.
Bókin Íslenskir fuglar eftir Benedikt Gröndal.
Fjallgöngur: Jóhann Kristjánsson.
Innrás spjaldtölvanna.
Kvikmyndastjarnan Ryan Gosling.
Matreiðsla; ekta ítalskt túnfiskpasta.
Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.