vetrarbordi2010-02
leita

fv03-2011-forsida   

sky02-2011-forsida  

atlantica0211-cover 
16/04/2012 | 16:56

Hverjir eiga 100 stærstu fyrirtækin?

fv02_2012_forsidaForsíðuefni Frjálsrar verslunar að þessu sinni er afar forvitnilegt. Það er könnun blaðsins á því hverjir eiga 100 stærstu fyrirtæki landsins. Í ljós kemur að fyrirtæki sem eru í eigu einstaklinga, eða þar sem einkafjármagnið er ríkjandi – þótt það sé í samvinnu við lífeyrissjóði – eru í minnihluta á listanum. Könnunin sýnir vel hvað bankar, kröfuhafar, Framtakssjóður, lífeyrissjóðir, ríki og sveitarfélög hafa orðið gildandi í atvinnulífinu eftir hrunið. Alls 15 fyrirtæki á listanum eru í eigu útlendinga.

Í könnuninni er farið nákvæmlega ofan í saumana á því hverjir séu stærstu eigendur fyrirtækjanna og sést vel hvernig eignarhald á 100 stærstu fyrirtækjum landsins hefur þróast eftir hrunið. Hlutur hvers og eins er sundurliðaður. Einnig er sagt frá því hverjir gegna stjórnarformennsku og starfi framkvæmdastjóra í fyrirtækjunum.

Jón G. Hauksson ritstjóri skrifar í leiðara sínum um kvótafrumvarpið og heldur hann því fram að frumvarpið sé atlaga að Landsbankanum. „Landsbankinn er búinn að vera ef frumvarpið verður samþykkt,“ segir Jón G.

Nærmyndin er af Svönu Helen Björnsdóttur, framkvæmdastjóra Stika og nýjum formanni Samtaka iðnaðarins.

Úttekt á nýafstaðinni loðnuvertíð er í blaðinu. Þar kemur fram að hið opinbera fær 8 til 9 milljarða í sinn hlut af 30 milljarða útflutningsverðmætum. Enginn fær eins mikið í sinni hlut og hið opinbera.

Afar merkileg grein er um húsleitir í fyrirtækjum og samkeppnisbrot.

Bókardómur Unnar Valborgar Hilmarsdóttur er á sínum stað og fjalla hún um bók Ástu Bjarnadóttur um starfsmannaval.

Færbær stjórnunargrein eftir Sigrúnu Þorleifsdóttur og nefnist greinin: Hugrekki eða heimska stjórnenda?

Magnús Pálsson, forstöðumaður MBA-námsins í Háskóla Íslands, skrifar grein um að umræða um völd forstjóra sé á villigötum.

Íslenska ánægjuvogin fær veglegan sess í blaðinu.

Sigurvegararnir sextán á Ímarks-hátíðinni fá mikla umfjöllun í blaðinu – sem og þær auglýsingar sem sigruðu.

Álitsgjafar Frjálsrar verslunar eru á sínum stað.

Síðast en ekki síst er könnun Frjálsrar verslunar á því hvaða menntun 28 forsætisráðherrar landsins hafa haft. Niðurstaðan er fróðleg.

Frjáls verslun er sneisafullt af góðu efni. Gott efni – gott blað.

Efnisyfirlitið lítur annars svona út:


Forsíðugrein:
Hverjir eiga 100 stærstu fyrirtækin?


Leiðari:
Frumvarpið atlaga að Landsbankanum


Umtalaður athafnamaður:
Svana Helen í nærmynd

Fréttaskýring:
Menntun 28 forsætisráðherra landsins

Húsleitir og samkeppnisbrot

30 milljarða loðnuvertíð:
8 milljarðar til hins opinbera

 

Leiðari: Frumvarpið atlaga að Landsbankanum.

Kynning: Vörumerking.

Í stuttu máli: Hið opinbera fær mest út úr loðnuvertíðinni.

Nærmynd: Svana Helen Björnsdóttir, nýr formaður Samtaka atvinnulífsins.

Í stuttu máli: Menntun 28 forsætisráðherra landsins.

Landsdómur: Réttað yfir Geir H. Haarde í Landsdómi.

Í stuttu máli: Ráð til þeirra sem vilja vera leiðtogar.

Álitsgjafar Frjálsrar verslunar.

Forsíðuefnið: Hverjir eiga stærstu fyrirtæki landsins?

Forsíðuefnið: Stærstu hluthafar í hverjum fyrirtæki fyrir sig.

Samkeppnismál: Húsleit og samkeppnisbrot.

Bækur: Frábær bók um starfsmannaval.

Stjórnun: Hugrekki eða heimska stjórnenda.

Stjórnun: Umræða um völd stjórnenda á villigötum.

Markaðsmál: Sigurvegarnir sextán á Ímarks-hátíðinni.

Stjórnun: Íslenska ánægjuvogin.

Stjórnun: Stjórnendaverðlaun Stjórnvísi.

Hönnun.

Kvikmyndir.

Fólk.


 

Share



benedikt09Stundum finnst mér eins og slái út í fyrir mér. Það gerðist í morgun. Í dag er hvítasunnan og auðvitað held í það af minni barnstrú  að taka hvíldardaginn hátíðlegan og sérstaklega hvítasunnudaginn.

Það hefur verið skrifað svolítið um kviðslit á þessu vefsvæði og að menn hafi farið í aðgerð líkt Gvendur á eyrinni forðum; kviðslitsaðgerð. Þannig vill til að við Benedikt fórum báðir í kviðslitsaðgerð á fyrstu vikum ársins. Enda fór um alla hér á fyrirtækinu sem spurðu í angist sinni hvort þetta væri nokkuð smitandi. Ég fékk eins konar pítsutilboð, tveir fyrir einn, tveir skurðir í sömu törninni. Enda nýtti ég mér það, og hugsaði með mér þegar frúin leiddi mig með svolítið vankaðan út úr Domus Medica, að þetta hefði verið góður bissness. Það var kominn tími til að ég græddi einu sinni.

benedikt_2009Á laugardaginn vann ég einstök afrek. Gekk á tvö fjöll, fékk mér humar í hádeginu og svindlaði mér í fyrsta sinn inn á safn á eldri borgara afslætti. Þetta síðasta er að vísu ekki hárnákvæmt, en ég kem að því síðar.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is