
Kattarglottið, fyrsta smásagnasafn Benedikts Jóhannessonar, er komið út. Benedikt hefur um árabil skrifað greinar í blöð og tímarit, en þó ekkert þessu líkt.
Í bókinni eru fimmtán sögur og höfundur fer um víðan völl. Þekktur pólitíkus slettir ærlega úr klaufunum í New York, frægur blaðamaður nær að plata Guð almáttugan í viðtal og dýrin í skóginum hætta að vera vinir. Ýmsar spurningar vakna: Voru Frau Himmerfeldt og Arnaldur gift bürgerlich? Ná vísindaafrek NÞ eyrum umheimsins eða verða þau lokuð í fangelsi dásvefnsins um allan aldur? Hvers vegna er Jesús á rölti um miðbæ Reykjavíkur?
Sögurnar eru glettnar en þó með alvarlegum undirtón. Skil raunveruleika og ímyndunar eru stundum óljós. Söguhetjur eru bæði venjulegt fólk og einkennilegt, óþekkt og heimsfrægt. Sumar sögurnar gerast í Reykjavík samtímans, aðrar á óljósum tíma og óræðum stöðum. Eitt er þeim sameiginlegt: Þær eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Bókin fæst í betri bókabúðum og hjá útgefanda. Þeir sem vilja panta bókina frá Heimi geta pantað hana hér eða sent tölvupóst á ragnar@heimur.is með símanúmeri og heimilisfangi. Bókin kostar 3.000 krónur frá útgefanda en um 4.500 krónur úr búð.
Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.