
Stálskip í Hafnarfirði greiða hæstu meðallaunin, eða tæpa 21 milljón króna í árslaun sem gerir um 1.750 þúsund kr. að jafnaði á mánuði. Eskja á Eskifirði er þar í öðru sæti og Eyrir Invest í því þriðja en Eyrir er fjárfestingarfélag sem á m.a. stóran hlut í Marel.
Bakkavör Group er enn eitt árið stærsta fyrirtæki landsins með veltu upp á 293 milljarða króna, samkvæmt nýjum lista Frjálsrar verslunar yfir stærstu fyrirtæki landsins. Actavis Group er í öðru sæti og Iclandic Group í því þriðja.
Landsvirkjun er með mest eigið fé allra fyrirtækja á Íslandi, með eigið fé upp á 189 milljarða króna og eiginfjárhlutfall upp á 34%. Landsbankinn er í öðru sæti með eigið fé upp á 185 milljarða og eiginfjárhlutfall 17%.
Íslenska gámafélagið var með meðsta arðsemi eiginfjár og Skýrr með mesta veltuaukninguna en nokkur félög sameinuðust undir nafni Skýrr eftir að Framtakssjóður Íslands varð þar helsti eigandinn.
Tryggingamiðstöðin er með hæsta veltufjárhlutfallið eða 10,2%.
Marel, Promens og Alcoa Fjarðaál eru stærstu iðnfyrirtæki landsins og N1 er stærsta olíufélagið svo dæmi séu tekin af hinum fjölmörgu atvinnugreinalistum sem heyra undir 300 stærstu listann.
Listi Frjálsrar verslunar yfir 300 stærstu er birtur í glæsilegri bók. Hvergi er á einum stað að finna janfmiklar upplýsingar um stærstu fyrirtæki landsins. Bókin er lifandi allt árið um kring þar sem sífellt er leitað í hana eftir upplýsingum.
Þá eru mjög fróðlegt að skoða svör tuttugu forstjóra við spurningum Frjálsrar verslunar um stöðuna í atvinnulífinu og hvað sé efst á baugi hjá fyrirtækjunum. Flestir telja að fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja gangi þokkalega en óttast að fyrirtækin séu enn of skuldug eftir enskipulagninguna.
Jóhannes Benediktsson verkfræðingur vann listann yfir 300 stærstu fyrirtækin fyrir Frjálsa verslun.
Tíu stærstu árið 2010
Bakkavör Group....293 milljarðar kr.
Actavis Group.......273 milljarðar kr.
Icelandic Group.... 153 milljarðar kr.
Alfesca.................104 milljarðar kr.
Marel...................... 97 milljarðar kr.
Promens................ 94 milljarðar kr.
Alcoa Fjarðaál...... 94 milljarðar kr.
Landsbankinn...... 89 milljarðar kr.
Icelandair Group... 88 milljarðar kr.
Íslandsbanki.......... 86 milljarðar kr.
Hæstu launin
Meðallaun á mánuði
Stálskip...............1.750 þús. kr.
Eskja...................1.239 þús. kr.
Eyrir Invest........ 1.212 þús. kr.
Bergur-Huginn... 1.268 þús. kr.
Stefnir.................1.113 þús. kr.
300 stærstu árið 2010
90 Aðallistinn.
102 Hæstu launin.
110 Mestur hagnaður.
114 Hagnaður sem % af veltu.
116 Stærstu vinnuveitendur.
118 Mest eigið fé.
120 Arðsemi eigin fjár.
122 Veltuaukning.
124 Velturfjárhlutfall.
ATVINNUGREINAR
126 Stærst á sínu sviði.
128 Almennur iðnaður.
128 Málm- og skipasmíði.
129 Olíufélög.
129 Háskólar.
130 Flutningar.
130 Orkuveitur.
130 Ýmis samtök.
132 Smásala.
132 Heildverslun.
134 Tryggingafélög.
134 Kaupfélög.
134 Fjárfestingarfélög.
134 Fjölmiðlar.
136 Lyfjafyrirtæki.
136 Auglýsingastofur.
136 Húsgögn.
136 Líftækni.
138 Fjármálafyrirtæki.
140 Lífeyrissjóðir.
142 Verktakar.
142 Endurskoðunarskrifstofur.
142 Ferðaskrifstofur.
144 Tölvubúnaður og þjónusta.
144 Hugbúnaðarfyrirtæki.
144 Bifreiðar.
146 Útflutningsfyrirtæki.
146 Fiskvinnsla og útgerð.
146 Heilsugæsla.
148 Hótel og veitingahús.
148 Ýmis þjónusta.
150 Ýmsar opinberar stofnanir.
150 Fjarskiptafyrirtæki.
150 Fasteignafélög.
152 Ráðgjöf.
152 Matvælaiðnaður.
154 Sveitarfélög.
KJÖRDÆMI
Stærstu fyrirtækin í einstaka kjördæmum
156 Reykjavík.
158 Suðvestur.
158 Norðvestur.
160 Norðaustur.
160 Suður.
Hvernig meta þau stöðuna?
Tuttugu þekktir stjórnendur sitja fyrir svörum og meta stöðuna í efnahagslífinu.
61 Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi.
62 Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
63 Geir Gunnarsson, forstjóri Honda-umboðsins.
64 Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova.
65 Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr.
66 Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.
67 Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs.
68 Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já.
69 Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
70 Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
71 Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar.
72 Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
76 Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls.
77 Brynja Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Norvíkur.
78 Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Icelandair.
80 Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa.
81 Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja.
82 Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa.
83 Jakob Sigurðsson, forstjóri Prómens.
84 Steinþór Pálsson, forstjóri Landsbankans.
Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.