
Stórfróðlegt blað Frjálsrar verslunar um sprota og frumkvöðla er komið út. Fjórða árið í röð birtir blaðið lista yfir 100 áhugaverð sprotafyrirtæki á Íslandi og er listinn að venju unninn af dr. Eyþóri Ívari Jónssyni, framkvæmdastjóra Klaks – Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins. Þá er einstaklega góð og fróðleg grein um stöðu evrunnar eftir Þráin Eggertsson hagfræðiprófessor þar sem hann metur m.a. líklegustu lausnina á banka- og lánamálum evruríkjanna.
SPROTAR OG FRUMKVÖÐLAR Á 40 BLS.
Umfjöllun blaðsins um sprota og frumkvöðla spannar fjörutíu síður í blaðinu og er mjög athyglisverð lesning í alla staði. Fjallað er um áhugaverðustu sprotafyrirtækin um þessar mundir. Rætt er við forráðamenn nokkurra íslenskra sportafyrirtækja og þá er umfjöllun um sjö þekkta erlenda frumkvöðla og hvað einkennir þá.
• Listinn 100 áhugaverð sprotafyrirtæki.
• Hvernig sprotar skapa þyrpingar.
• Byggjum upp þekkingarhagkerfi.
• Hvað einkennir góða frumkvöðla.
• Boot Camp.
• Farmers market.
• Cooori.
• Betware.
• Nox Medical.
• Oxymap.
• Nýsköpunarþjónusta Landsbankans.
• Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
• Bill Gates, Microsoft.
• Mark Zuckerberg, Facebook.
• Sergey Brin og Larry Page, Google.
• Orah Winfrey, sjónvarpskona.
• Pierre Omidyar, eBay.
• Mary Kay Ash, snyrtivörufyrirtæki.
• Steve Jobs, Apple.
• Lífsgæðatúrismi – Þorsteinn I. Sigfússon.
• Heiða í Nikita.
ÞRÁINN EGGERTSSON HAGFRÆÐINGUR
Þá birtir blaðið einstaka grein um stöðu evrunnar og efnahagslífs heimsins eftir Þráin Eggertsson hagfræðiprófessor. Greinin ber yfirskriftina Mosi frá kónginum? Er evran verðlaus mosi frá kónginum? Þráinn fer mjög rækilega ofan í vanda Evrópusambandsins og skoðar m.a. fjögur mál:
*Í hverju er fjármálavandinn á evrusvæðinu helst fólginn?
*Getur ríki yfirgefið evruna eða það læst inni á evrusvæðinu?
*Hver er líklegasta lausnin á banka- og lánamálum evruríkja; evrubréf eða fyrirgreiðsla Seðlabanka Evrópu og ýmissa sjóða?
*Lýðræðisvandinn í Evrópusambandinu?
Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, skrifar leiðara um hagnað bankanna og hvaðan hann sé sprottinn þegar ládeyða er í atvinnulífinu. Eignasöfn bankanna gefa vel af sér er yfirskrift leiðarans.
JAKOB SIGURÐSSON Í NÆRMYND
Jakob Sigurðsson, nýráðinn forstjóri Promens, er í skemmtilegri nærmynd eftir Gísla Kristjánsson. Jakob fer vel með keppnisskapið. Hann var landsliðsmaður í hanknattleik á árum áður og var þekktur fyrir að þola ekki að tapa.
SIGRÚN RAGNA, NÝR FORSTJÓRI VÍS
Sigrún Ragna Ólafsdóttir söðlaði um í byrjun september og tók við forstjórastarfi í stærsta tryggingafélagi landsins, VÍS. Hún er löggiltur endurskoðandi að mennt og hefur undanfarin ár starfað í bankageiranum sem einn af framkvæmdastjórum Íslandsbanka.
Efnisyfirlitið lítur svona út:
Forsíðuefni:
Sprotar og frumkvöðlar
Listi yfir 100 áhugaverð sprotafyrirtæki á Íslandi
Leiðari:
Eignasöfn bankanna gefa vel af sér
Staða evrunnar:
Mosi frá kónginum?
Nýr forstjóri Promens í nærmynd:
Fer vel með keppnisskapið
Frumkvöðlafræði:
Hvað einkennir góða frumkvöðla?
Sjö erlendir frumkvöðlar:
Bill Gates er harður nagli
Heiða í Nikita:
Endalaus trú á fyrirtækið
Ertu að taka sæti í stjórn?
Handbók stjórnarmanna nauðsynleg lesning
Stjórnun:
Áætlarnagerð er nú í algleymingi.
6 Leiðari: Eignasöfnin gefa vel af sér
8 Fréttamyndin: Eistar fullorðnir.
10 Álitsgjafar Frjálsrar verslunar.
14 Kynning: Washington DC.
16 Í stuttu máli: Hagtölur og stuttar fréttir.
20 Nýr forstjóri Promens: Jakob Sigurðsson fer vel með keppnisskapið.
24 Þráinn Eggertsson hagfræðingur: Staða evrunnar.
30 Forsíðuefni: Sprotar og frumkvöðlar. 40 síðna umfjöllun.
32 100 áhugaverðir sprotar.
36 Sprotaumhverfið á Íslandi.
40 Forráðamenn sprotafyrirtækja.
47 Katrín Júlíusdóttir um sprotana.
48 Sjö erlendir frumkvöðlar.
56 Lífsgæðatúrismi: Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
68 Heiða í Nikita.
72 Bækur: Handbók stjórnarmanna.
74 Stjórnun: Áætlarnagerð er nú í algleymingi.
76 Hönnun: Umsjón Svava Jónsdóttir.
78 Kvikmyndir: Ævintýri Tinna og Stríðshestur.
80 Fólk.
Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.