vetrarbordi2010-02
leita

fv03-2011-forsida   

sky02-2011-forsida  

atlantica0211-cover 
23/09/2011 | 14:40

YRSA og hin fullkomna súkkulaðikaka

sky04-2011-forsidaYrsa Sigurðardóttir, verkfræðingur og rithöfundur, er í stórskemmtilegu forsíðuviðtali í nýjasta tölublaði SKÝJA. Margt annað efni prýðir blaðið, þar er að finna hina fullkomnu súkkulaðiköku. Sagt er frá tíu leiðum til að bæta sig í vinnunni. Geirfinnsmálið er í fróðlegri úttekt. Víkingur Heiðar píanóleikari er á góðum nótum og Steinnunn Þórarinsdóttir myndlistarkona líka. Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir frá fjallgöngubakteríu sinni. Þá er fjallað um bækur, tónlist, Annie Mist heimsmeistara í CrossFit, tíu ráð til að yngjast á tíu vikum, litríkt leikár Borgrarleikhússins og suður-afrísku leikkonuna Charlize Theron. Súkkulaðikakan er fullkomin en það eru alvöru bragð af þessu blaði.

Yrsa

Það er fyllsta ástæða til að ná sér í SKÝ og lesa hið viðamikla og góða viðtal við Yrsu sem Brynhildur Björnsdóttir tók. Yrsa segist ekki líta á sig sem drottningu glæpasögunnar. Hún er verkfræðingur hjá Verkís í fullu starfi og vann m.a. við Kárahnjúkavirkjun. Engu að síður er hún þekkt sem afkastamikill verðlaunarithöfundur og einn vinsælasti íslenski rithöfundurinn; bæði hér heima og erlendis. Hún skrifar á kvöldin og um helgar. Hún er gift, tveggja barna móðir og amma. Hvernig fer hún eiginlega að þessu? Það er nú það.

Hvað er það við skriftirnar sem heldur henni við efnið? „Ég veit það ekki, þetta er bara einhver bilun, held ég. Ég hef oft hugsað um þetta af því að þetta flækir líf manns svolítið.“ Hún harðneitar því að hún sé einhvers konar ofurkona. „Mér sjálfri leiðast bækur þar sem sögupersónurnar eru ofurhitt eða þetta, ofurfalleg, ofurgáfuð...ég þekki engan ofurfallegan eða ofurgáfaðan, það eru allir bara venjulegt fólk,“ segir Yrsa og leggur áherslu á að hún sé venjuleg kona í óvenjulegum aðstæðum.

Geirfinnsmálið

Geirfinnsmálið, helsta sakamál 20. aldarinnar, var ekki aðeins sakamál heldur rataði það inn í sali Alþingis og varð stórpólitískt mál þar sem sjálfur dómsmálaráðherra, Ólafur Jóhannesson, varð fyrir aðdróttunum. Þjóðfélagið var beinlínis heltekið af þessu máli. Þetta er ekki bara fróðleg upprifjun heldur spennulesning eftir Pál Ásgeir blaðamann.

Nældu þér í Ský. Blaðið má fá í Eymundsson búðum auk þess sem það er í innanlandsflugi Flugfélags Íslands.

Efnisyfirlit Skýja lítur annars svona út:

Leiðari: Veröldin er verri.
Yrsa Sigurðardóttir er venjuleg kona í óvenjulegum aðstæðum.
Tíu leiðir til þess að bæta sig í vinnunni.
Steinunn Þórarinsdóttir myndlistarkona.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir boðar nýjan lífsstíl.
Fjallgöngur: Höskuldur H. Ólafsson.
Bækur og tónlist.
Geirfinnsmálið.
Annie Mist: Heimsmeistari í CrossFit.
Litríkt leikár Borgarleikhússins.
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari.
Charlize Theron leikkona.
Hin fullkomna súkkulaðikaka.

 

Share



Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að Jóhannes í Bónus ætlar að opna nokkrar Iceland verslanir á Íslandi með Malcolm Walker, eiganda keðjunnar í Bretlandi, og keppa m.a. við sitt gamla félag Bónus. Fyrsta verslunin er sögð opna á rauðum degi á almanakinu, 17. júní. Hratt flýgur fiskisaga og í þetta skiptið hefur hún ekki síður borist út vegna óvenjulegra rætinna ummæla Jóhannesar í garð Egils Helgasonar blaðamanns og fjölskyldu hans. Það verður að segjast eins og er að það er ómaklegt af Jóhannesi að  blanda fjölskyldu Egils inn í umræðunar þótt Egill geri á síðu sinni lítið úr Jóhannesi og endurkomu hans inn á markaðinn. Jóhannes skuldar Agli afsökunarbeiðni út af þeim ummælum. Það vekur að vísu furðu mína hvað mörgum finnst orð Jóhannesar fyndin, en svona er Ísland í dag; stjórnarfar og hugarfar á Íslandi hefur breyst eftir hrun. Það hefur verið gefið út veiðileyfi á allt og alla og þar fara ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar fremst í flokki.

benedikt09Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir blaðaútgefendur. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum sýnist.

Hægrikonan Marine Le Pen, sem varð þriðja í fyrri umferð forseta- kosninganna í Frakklandi hinn 22. apríl sl., segist ætla að skila auðu í seinni umferð kosninganna sem verður núna um helgina, sunnudaginn 6. maí. Le Pen hlaut 17,9% atkvæða í fyrri umferðinni. Ég staldraði við þegar hún sagðist ætla að skila auðu vegna þess að nýlega lenti ég í miklum rökræðum um hvað það merki að skila auðu í kosningum. Er það að vera hlutlaus og hafa enga skoðun? Felast í því skilaboð að láta aðra sjá um að ákveða þetta? Er einhver raunverulega „að kjósa“ að skila auðu?





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is