leita



 

 

 
Friends of Heimur:
sunglasses
http://www.extratour.de
   


 
Skráið ykkur á póstlista
29/11/2007 | 00:00

Bók frá Heimi: Enn betra golf

Út er komin hjá Heimi bókin Enn betra golf eftir Arnar Má Ólafsson landsliðsþjálfara í golfi, og Úlfar Jónsson, margfaldan Íslandsmeistara og PGA golfkennara. Þeir kappkosta að útskýra tæknina og þá þætti leiksins sem skipta mestu máli, svo sem hugarfar, leikskipulag og leiðir til að nýta æfingatímann á sem skemmtilegastan og árangursríkastan máta.

Markmið kylfinga eru mismunandi, en fyrir flesta er aðalatriðið að njóta sín í góðum félagsskap á fallegum golfvelli. Vissulega getur það skipt höfuðmáli hvernig okkur tekst til í baráttunni við að koma boltanum í holuna, hversu jákvæð upplifunin verður. Fáar íþróttir krefjast jafn mikils samspils hugar og handar, en leikurinn að læra golf verður skemmtilegri þegar tækniatriðum og jákvæðu hugarfari er blandað saman. Enn betra golf hjálpar lesandanum að tileinka sér réttar aðferðir og að auka ánægjuna á golfvellinum.

Páll Kjartansson hefur tekið fjölmargar ljósmyndir fyrir bókina. Þær auðvelda lesandanum að tileinka sér efni hennar.

Bókin kostar 3.490 krónur og fæst í helstu bókaverslunum, helstu golfbúðum, Hagkaupum og Fjarðarkaupum (frá og með föstudegi 7. des).


06. september | Hó, hó, ha, ha, ha (BJ)
Ef það er eitthvað sem ég er lítið gefinn fyrir er það hópefli. Orðið sjálft vekur hjá mér gæsahúð. Nánd við aðra finnst mér líka óþægileg. Ef einhver grípur í mig, ég tala ekki um vill faðma mig, þá hrekk ég undan. Ég geri kannski undantekningu með




07. september | The Ghost Writer
Það er mikil synd að einkalíf Roman Polanski, sem hefur verið þyrnum stráð svo ekki sé meira sagt, skuli alltaf gnæfa yfir afrek hans á listasviðinu, sérstaklega nú í kjölfar handtöku hans í Sviss fyrir um ári síðan. Hefur handtakan og eftirmálin gert það að verkum að nýjasta kvikmynd hans





 




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is