leita

fv_0313_forsida           

sky_0213_forsida    
 
Friends of Heimur:
sunglasses   
 

 
Skráið ykkur á póstlista
18/05/2012 | 14:20

Hvaða framhaldsskólar eru bestir?

fv03_2012_forsidaSkúli í Subway og yfirgripsmikil úttekt á framhaldsskólunum setja sterkan svip sinn á nýútkomið tölublað Frjálsrar verslunar. Þetta er annað árið í röð sem stærðfræðingurinn Pawel Bartoszek ber saman árangur íslenskra framhaldsskóla á ólíkum sviðum. Í þetta skiptið voru þeir metnir í tuttugu mismunandi flokkum.

Nokkur breyting er á aðferðafræðinni frá í fyrra og munar þar mest um að nýr þáttur bætist við; útskriftarhlutfall nemenda þegar upp í Háskóla Íslands er komið. Þessi nýi liður vegur 30% í heildarmatinu.

Helstu niðurstöður eru þessar:

* Menntaskólinn í Reykjavík er í efsta sæti með 69,55 stig. MH í öðru sæti með 51,18  stig.

* Menntaskólinn á Egilsstöðum er hástökkvari könnunarinnar.

* Fjölbrautarskóli Vesturlands er sömuleiðis hástökkvari í könnuninni en skólinn er með bestan  árangur allra skóla þegar kemur að útskriftarhlutfalli nemenda í Háskóla Íslands. Nemendur hans hafa hæsta útskriftarhlutfall úr Háskóla Íslands nokkrum árum eftir innritun.

* Fjölmargar keppnir framhaldsskólanna fá minna vægi.

* Skólarnir eru núna metnir í 20 ólíkum flokkum en 17 í fyrra.

* Núna er reynt er að taka tillit til stærðar skóla þar sem því verður við komið, þ.e.a.s. í þeim flokkum þar sem árangur skóla er mældur út frá fjölda nemenda í úrslitum er nú leiðrétt með tilliti til stærðar skóla.

* Keppni eins og Gettu betur vegur 2,5% í heildarsamantektinni.

Heildarskorið reiknað
Heildarskor hvers skóla var reiknað með því að taka vegið meðaltal stiga í hverjum flokki. Vægi flokkanna var eftirfarandi:

Árangur (útskriftarhlutfall) nemenda í HÍ 30%
Árangur í fagkeppnum (13 flokkar)  45%
Árangur í öðrum keppnum (4 flokkar) 10%
Menntun kennara 10%
Aðsókn   5%

Það er sérlega athyglisvert að skoða liðinn Gengi í háskóla, þ.e. útskriftarhlutfall nemenda í Háskóla Íslands. Þar skoar Fjölbrautarskóli Vesturlands og Menntaskólinn á Egilsstöðum hæst. Nemendur úr þessum skólum eru líklegastir til að fara beint í háskóla eftir nám og útskrifast þar á réttum tíma.

--------------------

Ísland er einn af sterkustu mörkuðum Subway í heiminum:
Galdurinn
felst í
gamaldags
hugsun

Með þrjósku, ákefð og tvær hendur tómar tókst Skúla Gunnari Sigfússyni að opna lítinn Subway-skyndibitastað í Faxafeni árið 1994. Nú átján árum síðar er Subway orðin stærsta veitingahúsakeðjan á Íslandi, með 20 staði um allt land, 300 manns í vinnu og veltu upp á 1,6 milljarða á ári. Skúli var nýlega útnefndur viðskiptafræðingur ársins 2011 af Félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Skúli skráði sig í New York-maraþonið á dögunum og er mjög spenntur fyrir því verkefni.

Efnisyfirlit í 3. tbl. 2012

6   Leiðari: Vér mótmælum allir.

8  Ljósmyndabók: Einstök ljósmyndabók Sigurjóns Péturssonar og Þóru Hrannar Njálsdóttur.

14 Stærstu viðskipti Íslandssögunnar.

18 Geir Haarde: 95% sigur.

19 Í stuttu máli: Gamall kunningi bankar upp á.

22  Flug: Sautján flugfélög keppa um Ísland.

24: Nýherji fagnar tvítugsafmælinu.

28  Sprotarnir sprungu út á Seed Forum.

30  Álitsgjafar Frjálsrar verslunar.

30 Ragnar Árnason: Vafasöm framkvæmd gjaldeyrishafta af hálfu Seðlabanka.

36 Forsíðuefnið: Skúli í Subway segir að galdurinn á bak við viðskiptaveldi hans sé gamaldags hugsun.

46 Bækur: Samskiptafærni er mikilvægasta færni forstjórans.

48 Efnahagsmál: Er bóla í Noregi?

50 Framhaldsskólarnir: Hvaða skólar skara fram úr?

64 Stjórnun: Traust er betra en skriflegir samningar.

67 Afmælisráðstefna Þráins Eggertssonar hagfræðings.

70 Fiskveiðistjórnun: Aðsend grein eftir Guðmund Franklín Jónsson, formann Hægri grænna, flokks fólksins.

74 Ferðaþjónusta: Vestfirðir eru komnir á kortið.

76 Hönnun eftir Svövu Jónsdóttur.

78 Kvikmyndir.

80 Fólk

Share

Stundum finnst mér eins og slái út í fyrir mér. Það gerðist í morgun. Í dag er hvítasunnan og auðvitað held ég í það af minni barnstrú að taka hvíldardaginn hátíðlegan og sérstaklega hvítasunnudaginn. Ég reyndi að muna hvers vegna við höldum upp á hvítasunnuna og fann ekki




04. desember | Argo
Í nóvember 1979 réðst stór hópur Írana á sendiráð Bandaríkjanna í Tehran og tók 52 sendiráðsstarfsmenn til fanga og heimtuðu að Bandaríkin skiluðu fyrrum keisara Írans í hendurnar á Ayatollah Khomeini, sem hafði komist til valda í blóðugri byltingu. Í kjölfarið varð eitt mesta hernaðarklúður bandaríska hersins nokkrum mánuðum síðar


 


 




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is