leita

fv02_2012_forsida         

sky_02_2012       
 
Friends of Heimur:
sunglasses  
http://www.extratour.de

 
Skráið ykkur á póstlista
20/12/2011 | 09:00

Jólavísbending og jólalag ársins
visbending_jol_2011Jólablað Vísbendingar er komið út. Efni er fjölbreytt að vanda.  Meðal efnis má nefna grein um Skúla fógeta en nú eru liðin 300 ár frá fæðingu hans. Skúli barðist fyrir því að Íslendingar ynnu sig út úr eymdinni, hann barðist fyrir verslunarfrelsi og fjölbreytilegu atvinnulífi. Hann fékk ekki góðar undirtektir undir hugmyndir sínar um breytingar. Bændum fannst ekki gott að þurfa að keppa um vinnuafl við nýtísku fyrirtæki. Svo fór að verksmiðjur Skúla í Reykjavík lognuðust út af en á endanum urðu hans baráttumál ofan á, frelsi náðist í verslun og þjóðin sneri sér að fjölbreytilegum atvinnurekstri. Stærstur hluti þjóðarinnar býr nú þar sem Skúli steig fyrstu skrefin úr miðöldum inn í nútímann.
 
Í blaðinu er líka grein um Stefánunga, Stephensen-ættina, sem varð vísir að íslenskum aðili fyrir um 200 árum. Segja má að þeir hafi tekið við forystu í íslensku þjóðlífi af Skúla. Þeir voru hinir merkustu menn, en íhaldssamir og höfðu ekki þann eldmóð sem einkenndi störf Skúla. Margir þeirra stuðluðu að uppfræðslu þjóðarinnar og voru praktískir menn. Margir hafa legið þeim á hálsi fyrir að leggja niður biskupsstóla á Hólum og í Skálholti á sama tíma og Alþingi var aflagt um 1800. Magnús Stephensen dómstjóri var raunsæismaður og taldi að þjóðin hefði ekki burði til þess að standa undir þessum fornu frægðarsetrum, auk þess sem hann áttaði sig á því að eðlilegt væri að færa valdstjórnina í fámennu landi á einn stað. Segja má að „valdatíma“ Stefánunga hafi lokið árið 1904 þegar Magnús Stephensen var síðasti landshöfðinginn til þess að láta af embætti.
 
Þórarinn Eldjárn fer skemmtilega yfir starf rithöfundarins. Hann minnir okkur á að nálgast verkefni ekki með yfirlæti: „Íslenska er ekkert merkilegra mál en danska og norska. En hún er okkar móðurmál. Hún er það sem við kunnum.“
 
Auk þess rifjum við upp kynni við tvo skuggalega fíra sem báðir voru til, þó að þeir hafi orðið mestir eftir að þeir dóu. Þeir Galdra-Loftur og Drakúla greifi hafa hvor um sig orðið uppspretta að þjóðsögum. Fáir átta sig eflaust á því að sagan af Drakúla var þýdd á íslensku áður en aðrir sáu ástæðu til þess að snúa henni á sín ylhýru mál. Loks birtist smásagan Íslenski kúrinn.  
 
Loks er að venju nýtt jólalag á sínum stað. Nótur að laginu má finna hér, en lagið sjálft má heyra með því að spila myndbandið  hér að neðan sem er myndskreytt af Páli Kjartanssyni.
 
Aðfangadagur
 
Blikar á himni, blástjarnan skín,
blessunar hátíð kallar til þín.
Kökubiti’ á diski, kerti  á vegg
karlinn jóla brosti, strauk svo sitt skegg.
 
Gleðileg jól, já gleðileg jól.
Guð gefi öllum gleðileg jól.
 
Kviknar á ljósum, kátt var svo allt
klukkan á veggnum sló hátt og snjallt.
Stelpan inní stofu steig upp á stól
stóð þar ein og sagði: Gleðileg jól!
 
Gleðileg jól, já gleðileg jól.
Guð gefi öllum gleðileg jól.
 
 
Share

Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að Jóhannes í Bónus ætlar að opna nokkrar Iceland verslanir á Íslandi með Malcolm Walker, eiganda keðjunnar í Bretlandi, og keppa m.a. við sitt gamla félag Bónus. Fyrsta verslunin af nokkrum er sögð verða opnuð á rauðum degi á almanakinu, 17.




14. mars | Svartur á leik
Það virðist vera komin upp sú staða í íslenskri kvikmyndagerð að hreinræktaðar glæpamyndir séu besta fjárfestingin. Við höfum fyrir Reykjavík Rotterdam og Borgríki, sem báðar gengu ágætlega og nú er komin sú þriðja, Svartur á leik sem hefur slegið fyrrnefndar kvikmyndir út í aðsókn og virðist ætla að komast í


 


 




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is