leita

fv_0313_forsida           

sky_0213_forsida    
 
Friends of Heimur:
sunglasses   
 

 
Skráið ykkur á póstlista
14/06/2012 | 12:43

Tekur við stjórnsprotanum hjá Pihl & Søn

fv04_2012_forsidaÍ nýútkominni Frjálsri verslun er ítarlegt forsíðuviðtal við Halldór Ragnarsson, 57 ára verkfræðing, sem hefur tekið við stjórnsprotanum hjá einu þekktasta verktakafyrirtæki í heimi, Pihl & Søn í Danmörku. Fyrirtækið er með 3.000 manns í vinnu og veltir um 118 milljörðum króna. Það er með verkefni um allan heim og er líklegast þekktast hér á landi fyrir að eiga Ístak hf. Eigandinn, Sören Langvad, lét af störfum í vor og Halldór settist í forstjórastólinn eftir að hafa starfað þar í 30 ár sem verkfræðingur og síðar einn af framkvæmdastjórunum.

Það var samt fyrir tilviljun að Halldór réðst til Pihl & Søn fyrir þrjátíu árum. Hann ætlaði sér alltaf að verða verkfræðingur á ráðgefandi verkfræðistofu með áherslu á burðarþolsfræði. Þegar hann sótti um hjá Pihl & Søn átti það starf að vera tímabundið áður en hann kæmist í draumstarfið. Núna eru árin hjá þessu fornfræga fyrirtæki orðin þrjátíu og hann tekinn við sem forstjóri. Þess má geta að Halldór er sonur Ragnars Halldórssonar, fyrsta forstjóra álversins í Straumsvík.

Engir kaupréttarsamningar

Viðtalið við Halldór í Frjálsri verslun er langt og ítarlegt og víða komið við varðandi stjórnun. Meðal annars kemur fram að hjá Pihl & Søn  gildir sú regla að hver og einn fær sín laun og ekkert umfram það. „Hér eru engir kaupréttarsamningar eða bónusar,“ segir Halldór. „Vel unnin verk eru okkar nafnspjald.“

Blaðið er sneisafullt af góðu efni.

Leiðari Jóns G. Haukssonar nefnist: Niður með myndavélina.

Óperan á 170 milljarða. Rætt er við Jón Tetzchner um Operu Software í Noregi. Jón stofnaði fyrirtækið sem núna er metið á 170 milljarða króna og á Jón um 10% hlut í því. Fram hefur komið í fréttum að Facebook hefur áhuga á að kaupa Óperuna. Þá ræðir Jón um baráttuna á snjallsímamarkaðnum og hann telur að Nokia sé að taka mikla áhættu með því að velja Windows.

Rætt við Róbert Guðfinnsson athafnamann sem veðjar á heimabæ sinn Siglufjörð. Róbert hefur gert kraftaverk við að byggja um gömul hús í niðurníðslu á Siglufirði og opnað þar veitingastastaði. Þá hyggst hann reisa hótel og lyfjaþróunarverksmiðju á næstu árum.

Mjög athyglisvert viðtal er við Andreu Maack sem selur imlvötnin sín í átján löndum.

Þá er

Efnisyfirlitið lítur svona út:

Leiðari: Niður með myndavélina.

Forsetakosningarnar: ESB vegur þungt í kosningabaráttunni.

Jón Steinar hyggst stefna Þorvaldi Gylfasyni.

Róbert Guðfinnsson veðjar á Siglufjörð.

Eigið fé fyrirtækja 7 þúsund milljarðar skömmu fyrir hrun.

LÍÚ og sjómenn mótmæla.

Álitsgjafar Frjálsrar verslunar.

Forsíðuefnið: Halldór Páll Ragnarsson er nýr forstjóri Pihl & Sön í Danmörku.

Opera Software: Opera Software metið á 170 milljarða króna en Jón Tetzchner vill ekki selja.

Andrea Maack selur ilmvötnin sín í 18 löndum.

Herra Möller. Danir fylgdust með útför danska skipakóngsins Mærsk McKinney
Möllers.

LEAN-hugmyndafræðin. Þórunn M. Óðinsdóttir hefur innleitt LEAN í fjölda
fyrirtækja hér á landi.

Stjórnun: Fróðleg úttekt á sex vinsælum stjórnarbókum.

Bækur: Bókin The Power of Habit. Hvernig má brjótast út úr viðjum vanans?

Kompas.is Kompásvefurinn svarar spurningum og er verkfærakista atvinnulífsins.
og öflugur liðsauki fyrir stjórnendur.

Flutningar: Fáar greinar á Íslandi eru eins alþjóðlegar og flutningastarfsemi.

Bílar: Passatinn frá Volkswagen.

Hönnun: Umsjón Svava Jónsdóttir.

Kvikmyndir: The Amazing Spider-Man.

Fólk.

ATH. Þau mistök urðu við vinnslu nýútkomins blaðs Frjálsrar verslunar að grein Ragnars Árnasonar prófessors í hagfræði frá því síðast birtist aftur. Er beðist velvirðingar á því.

Grein Ragnars sem átti að birtast lítur svona út:

Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands:

Fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar

Þegar Ragnar Árnason er spurður hvernig honum lítist á fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2012-2015 segir hann að með þessari áætlun sé í rauninni verið að lofa upp í ermina á næstu ríkisstjórn. Hann bendir á að kjörtímabil núverandi ríkisstjórnar renni út í maí 2013, aðeins fimm mánuðum eftir að þessi 36 mánaða áætlun eigi að hefjast, og því sé erfitt að skoða hana sem annað en ódýrt kosningaloforð.

„Sé áætlunin engu að síður tekin alvarlega er margt við hana að athuga. Eitt er að hún felur í sér tiltölulega óverulegar fjárfestingar á þjóðhagslegan mælikvarða. Sá hluti þessara fjárfestingaráforma sem fjármagna á með veiðigjaldi og bankasölu, þ.e. 39 ma. kr. á þremur árum, er einungis um 1% af VLF á ári. Heildaráformin upp á 88 ma. kr., sem ekki er útskýrt að öðru leyti hvernig eigi að fjármagna, nema um 2% af VLF á ári. Þessar tölur eru óverulegar miðað við minnkun fjárfestinga hér á landi frá upphafi kreppunnar sem nemur um 10% af VLF árlega.

Við þetta bætist að ósennilegt er, svo ekki sé meira sagt, að þessi fjárfestingaráform feli í sér nokkra aukningu á heildarfjárfestingu í landinu. Sá hluti þeirra sem fjármagna á með veiðigjaldi minnkar auðvitað fjárfestingar sjávarútvegsfyrirtækjanna að sama skapi. Svipuðu máli gegnir um þann hluta fjárfestinganna sem fjármagna á með sölu banka. Sé salan til innlendra aðila minnka kaupendurnir auðvitað aðrar fjárfestingar sínar að sama skapi. Sé salan hins vegar til erlendra aðila, sem er raunar afar ólíklegt við ríkjandi og fyrirsjáanlegar aðstæður á næstu árum í hinum alþjóðlega bankaheimi, getur verið um viðbótarfjárfestingu að ræða. Sú viðbót er hins vegar af þeim toga sem kallaður hefur verið erlend fjárfesting og núverandi ríkisstjórn hefur í reynd til þessa sett sig eindregið gegn.“  - Ragnar Árnason

 

 

Share

Stundum finnst mér eins og slái út í fyrir mér. Það gerðist í morgun. Í dag er hvítasunnan og auðvitað held ég í það af minni barnstrú að taka hvíldardaginn hátíðlegan og sérstaklega hvítasunnudaginn. Ég reyndi að muna hvers vegna við höldum upp á hvítasunnuna og fann ekki




04. desember | Argo
Í nóvember 1979 réðst stór hópur Írana á sendiráð Bandaríkjanna í Tehran og tók 52 sendiráðsstarfsmenn til fanga og heimtuðu að Bandaríkin skiluðu fyrrum keisara Írans í hendurnar á Ayatollah Khomeini, sem hafði komist til valda í blóðugri byltingu. Í kjölfarið varð eitt mesta hernaðarklúður bandaríska hersins nokkrum mánuðum síðar


 


 




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is