leita

ELDRI PISTLAR

Hannes heitinn Hafstein , sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í samningum EFTA við Evrópusambandið haustið 1991, EES-samningnum, var uppnefndur „Hr. Nei“ af viðsemjendum Íslands. Ég átti þess kost sem blaðamaður að fylgjast með lokaspretti þeirra samninga úti í Lúxemborg en þar voru þeir Hannes, Jóni Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, og

Stundum finnst mér eins og slái út í fyrir mér. Það gerðist í morgun. Í dag er hvítasunnan og auðvitað held ég í það af minni barnstrú að taka hvíldardaginn hátíðlegan og sérstaklega hvítasunnudaginn. Ég reyndi að muna hvers vegna við höldum upp á hvítasunnuna og fann ekki

15. september | Nafn með rentu (BJ)
Stundum fá menn einstaklega snjallar hugmyndir þegar þeir gefa nafn. Stundum ekki. Þá þurfa einhver börn, staðir eða fyrirtæki að druslast með hörmuleg nöfn alla tíð. Samt er það einkennilegt að nöfn verða fallegri ef manni þykir vænt um þann sem ber þau. Það finnst mér að minnsta kosti.


PISTLAR

06/10/2003 | 00:00

Ástmögur þjóðarinnar (BJ)

Frjáls samkeppni tekur á sig ýmsar skemmtilegar myndir. Nú síðast hafa Íslendingar fylgst með samkeppninni um Halldór Laxness. Þetta mál hefur reyndar á sér margar skemmtilegar hliðar. Í fyrsta lagi er sérstakt að tveir menn velji sér sama viðfangsefni á sama tíma, sér í lagi þar sem það er ekkert sérstakt tilefni til þess að skrifa um Nóbelsskáldið akkúrat núna. Næst má nefna að líklegt má telja að sami útgefandi verði að báðum bókunum, því staðan er þannig á þessum markaði núna að nær öll bókaforlög landsins rúmast innan víðra veggja Eddu. Bréfin frægu  hafa valdið viðeigandi deilum og vekja upp spurninguna: Hver á Halldór Laxness? Það hefur verið á það bent að Jón Karl Helgason spyr sömu spurningar um Jónas Hallgrímsson í stórskemmtilegri bók sinni Ferðalok, sem kom út fyrr á árinu. Eru frægir menn ótvírætt þjóðareign? Er það kannski einn af fylgifiskum frægðarinnar að menn eiga sig ekki lengur sjálfir? Af því leiðir að menn erfast ekki heldur til lögerfingja heldur haldast í óskiptri sameign þjóðarinnar, eða kannski heimsins alls, ef þeir eru nógu frægir.

Það er gaman að velta því fyrir sér hvort verndarkenningin sem heyrst hefur um Halldór Laxness eigi við um aðra menn. Meðan Halldór eigi ekkju og börn á lífi eigi menn að taka tillit til óska þeirra. Gæti þetta gilt um Idi Amin eða Osama bin Laden (sem er kannski á lífi og á þá sjálfur sinn sæmdarrétt)? Ekki dettur mér í hug að líkja Halldóri Laxness við þessa kóna, en réttindi hljóta að vera almenn.

Segjum að Guðnýju Halldórsdóttur dytti í hug að skrifa æfisögu Hannesar Gissurarsonar. Henni tækist að grafa upp ýmis skjöl sem öðrum eru hulin og ferðaðist á þá staði sem hann hefur sótt heim. Gæti Hannes meinað henni það? Hann getur örugglega ekki bannað henni að skrifa, en vera kann að friðhelgi einkalífsins geri það að verkum að hann geti meinað henni aðgang að einhverjum skjölum sem hann sjálfur hefur aðgang að. Aðstaða Hannesar hefði hins vegar versnað til muna ef hann hefði afhent Landsbókasafni skjalasafn sitt til varðveislu. Varla er þjóðin að geyma slíkt safn bara til þess að Hannes geti tekið til í geymslunni hjá sér. Margar áhugaverðar spurningar vakna og þar með hefur þetta mál náð þeim tvíþætta tilgangi að skemmta þjóðinni og vekja upp umræðu um alvörumál.

Í síðasta pistli sagði ég frá því afreki mínu að komast gegnum Söguna af Pí, sem eyddi mörgum mánuðum á opnum báti með tígrisdýri. Slík dýr hafa ekki verið mér hugleikin en um helgin bárust fregnir af tveimur. Annað reif sjónhverfingamann í sig á sirkussýningu. Sagt var að hann hefði leikið listir sínar með tígrisdýrinu á 30 ár og það því skiljanlega orðið leitt. Hin sagan var af því að fundist hefði tígrisdýr í íbúð á 5. hæð í fjölbýlishúsi í New York. Lögreglumenn náðu að svæfa dýrið með svefnpílu, en uppruni þess var óljós. Óneitanlega verður þetta til þess að maður veltir því fyrir sér hvort þetta sé tilviljun eða tígrísdýrasögur séu á hverju strái og athyglisgáfan fyrir þeim sé einfaldlega í hámarki núna. 

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is