leita

ELDRI PISTLAR

Gylfi Magnússon skýtur föstum skotum á Tryggva Þór Herbertsson í lítilli svartramma grein í Mogganum. Ég hafði gaman af þessari grein. Hún er fyndin og hnitmiðuð. Gylfi gerir að vísu lítið úr Tryggva Þór og hæðir tillögur hans um að afskrifa skuli 20% allra skulda, þ.e. líka hjá þeim

02. september | Gula hættan (JGH)
Enn og aftur er þjóðin að fara á límingunum; útlendingur vill fjárfesta á Íslandi. Ekki Þjóðverji eða Svisslendingur, heldur auðugur Kínverji. Kaup Huangs Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum gætu meira að segja að sundrað ríkisstjórninni. Stjórnarandstaðan hefur reynt sitt til að koma stjórninni frá en lítið orðið ágengt –

Núna er tími rannsókna. Eva Joly og Ólafur Þór Hauksson rannsaka bankahrunið og hvort eitthvað glæpsamlegt tengist því. En ég er ekki einn um þá skoðun að kominn sé tími til að rannsaka það hvers vegna Seðlabanki Íslands lækkar ekki stýrivexti niður í það sem gengur og gerist erlendis


PISTLAR

28/11/2007 | 08:37

Í Prag meðal rotta og róna (BJ)

Á þessum árstíma á að vera kalt í Prag. Þegar desember nálgast geta menn búist við að ösla snjó í miðborginni og fimbulkuldinn að hertaka Mið-Evrópu. Þess vegna var ég ánægður með helgina þegar ég gat gengið þurrum fótum með fráhnepptan frakka um alla borgina. Markmiðið var að slaka á í menningarborginni og það tókst ágætlega. Vigdís pantaði ferðina vegna þess að tímasetningin hentaði vel sagði hún og þá datt mér ekki í hug að halda öðru fram.

Ég hugsaði mér að fata mig upp í heimsborginni. Meðan Vigdís skoðaði hringa hjá búð sem líktist Fríðu frænku fór ég í kristalsbúðina við hliðina. Þar var marglitur kristall og ég komst að því að algengast er að gefið sé upp verð á sex glösum en ekki einu. Ég kíkti svo í tískubúðina Hermes og spurði um buxur sem ég nefndi á enskan máta trousers. Ekki skildu þær það vel þannig að ég bað um pants á amerísku og þá jókst skilningurinn. Ég var dreginn út í horn og sá buxnaúrvalið. Á slá héngu fernar buxur. Mér leist vel á einar þeirra og spurði hvort þær væru til í mínu númeri. Afgreiðslukonan leit á númerið á sýningarbuxunum og hristi svo höfuðið. Í Salvatore Ferragamo var úrvalið ekki jafnmikið. Þar voru bara til tvennar karlmannsbuxur sem hvorugar pössuðu mér. Næst velti ég fyrir mér ýmsum vörum í búðaglugganum hjá Burberrys en sá þar ekkert sem hugurinn girntist. í næsta glugga voru Rolex úr, en mig vantar ekki úr þannig að ég hélt ferðinni áfram í bókabúð tileinkaða Frans Kafka. Flestar bækurnar voru á tékknesku og heilluðu mig ekki. Blaðasalinn á móti seldi tímarit á ýmsum tungumálum en ég les nóg af tímaritum heima hjá mér og ráfaði til Fabrege sem selur skartgripi af ýmsu tagi. Að öllu þessu loknu sneri ég aftur til Fríðu frænku sem er með svipaða búð í Prag og á Vesturgötunni. Vigdís var enn að velta hringnum fyrir sér.

Við höfðum ákveðið að kaupa kristal. Um hann gæti ég skrifað langa grein því að nú veit ég um alla helstu framleiðendur, einstakar framleiðslulínur og hver á hverja tegund. Íslenski sendiherrann í Prag á Napoleons glös sem eiga að minna á barðastóra hatta (það býr enginn sendiherra Íslands í Prag en það er aukaatriði). Ýmsir framliðnir þjóðarleiðtogar hafa líka keypt Copenhagen línuna meðal annarra Mohammed Reza Pahlavi, Íranskeisari og Haile Selassie Eþíópíukeisari. Þeir eru báðir látnir fyrir býsna löngu en það er eflaust ekki út af kristalnum. Blýkristall klingir betur en kristall án blýs. Í einni búðinni reyndi Vigdís að heyra hvernig klingdi í glösunum en afgreiðslustúlkan kom þá hlaupandi til hennar og sagði að þetta væri ekki góð hugmynd. Við ákváðum að kaupa ekki þessa línu sem ekki væri hægt að skála með. Mér leist best á mikið útskorin glös sem maður getur klórað sér í fingurgómunum með (sem er handhægt ef mann klæjar í fingurgómana). Vigdísi leist vel á línu sem heitir Rona, en ég þverneitaði að drekka úr rónaglösum.

Í annarri búð sáum við ýmsa smáhluti, Jesúmyndir af ýmsu tagi, óróa og þrautir. Þar voru líka seldar sápur og sjampó af mörgum gerðum. Ég sá að þar var hægt að fá kúlur sem leysast upp í vatni og þá kemur af þeim rósailmur. Svo var líka hægt að fá hárþvottaefni með búið var að blanda bjór út í. Ég hugsaði með mér að þetta væri upplagt að kaupa. Við hjónin gætum verið hvort um sig með sína uppáhaldslykt. Ef einhver finnur bjórlykt af Vigdísi á næstunni ætti hann að taka eftir því hvað hárið á henni glansar.

Á Karlsbrúnni var líf og fjör. Þar er lírukassaleikarinn, kabaretthljómsveit með fimm gömlum körlum og margir vagnar þar sem maður gat annað hvort keypt sér myndir af Prag eða sjálfum sér, teiknaðar á tíu mínútum. Listamennirnir sátu við kassa þar sem sjá mátti handbragð þeirra, margar andlitsmyndir þar sem vel mátti þekkja fyrirmyndirnar. Mér finnst það merkilegt hvað Woody Allen og Mick Jagger hafa setið fyrir hjá mörgum götulistamönnum. Blinda konan sem söng fyrir okkur þegar við vorum í Prag fyrir fjórum árum var horfin en hins vegar átti David Cameron leiðtogi Íhaldsflokksins breska leið yfir brúna á sama tíma og við.

Í leikbrúðubúðinni sáum við dúkku svipaða þeirri sem við fengum í fimmtugsafmælisgjöf. Mér fannst hún langflottasta brúðan í búðinni en afgreiðslukonan kepptist við að segja hvað hún væri svipljót. Í ljós kom að okkar brúða kom ekki frá eigendum búðarinnar heldur frá óháðum listamanni. Mig langaði mest til þess að kaupa höfuð sem var í glerflösku úti í horni. Ég hafði hugsað mér að setja það í hornið á skrifstofunni minni. Það var hægt að láta hausinn hreyfa varirnar. Þetta er gripur sem ég er viss um að hefði stytt veru manna á skrifstofunni til muna.

Það eru margir góðir veitingastaðir í Prag, bæði nútímalegir „hipp“ og „kúl“ staðir og rómantískar gamaldags knæpur. Við settumst inn á nokkra staði og fengum okkur bjórglas eða brauðsneið. Átum jafnvel tékkneska máltíð með súrkáli og gæsaleggjum við kertaljós. Hvernig fundum við réttu staðina? Það er ekki gott að segja, ætli við höfum ekki látið tilfinninguna ráða. Einn staðurinn hét Rotta. Við létum hann framhjá okkur fara, hættum allt í einu að vera svöng.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is