leita

ELDRI PISTLAR

Frekja Jóhönnu skýtur upp kollinum á hverjum degi. Ásmundur Einar Daðason lýsti því í ræðustól á Alþingi hvernig Jóhanna tók þingmenn Vinstri grænna á teppið og hótaði þeim ef þeir greiddu ekki atkvæði í tengslum við ESB umsóknina eins og hún vildi. Ásmundur upplýsir einnig að hún hafi hótað

23. júní | Halló, halló (BJ)
Ég er símamaður. Ekki í þeim skilningi að ég hafi mikinn áhuga á símum eða sé laginn símvirki. Sannast sagna á ég í mesta basli með síma. Heima hjá mér eru sex símtæki. Það virkar bara eitt þeirra og það er á afviknum stað þannig að ef það hringir

Seðlabankinn í klemmu. Svo sagði í fyrirsögn á vef Moggans. Ég hugsaði með mér hvort þetta væri ný klemma því banki og þjóð eru jú búin að vera í klemmu býsna lengi. Fljótlega kom í ljós að þessi klemma var ekki ný af nálinni. Hún var um ofurvald Alþjóðagjaldeyrissjóðsins


PISTLAR

26/02/2008 | 14:00

Í nærveru sálar (BJ)

Á því er enginn vafi að það getur verið erfitt starf að vera í sviðsljósinu. Stjórnmálamenn verða oft fyrir óvæginni umfjöllun. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra vék að þessu á heimasíðu sinni 18. febrúar síðastliðinn þegar hann skrifaði: „Aðgát skal höfð í nærveru viðkvæmra sála.“

Össur hefur fengið að kynnast því að líf stjórnmálamanna er ekkert grín eins og hann sagði frá nokkru áður: „Þeir tímar hafa komið í mínu pólitíska lífi – sem betur fer skammvinnir – að ég hef sjálfur gert það að fyrsta verki dagsins að fara yfir blöðin og henda þeim, sem ég vildi ekki að dætur mínar læsu. Ég minnist ótrúlega rætinnar greinar Einar Kárasonar, rithöfundar, sem smó gegnum greipar mínar, og ég náði ekki að forða frá augum dóttur minnar, sem flóðu fyrir vikið. Á þeirri stundu hefði ég heldur viljað kasta frá mér formannstitli og stjórnmálaferli en upplifa varnarleysið og vanlíðanina sem hellist yfir þegar saklausar sálir lenda í innri eldi af föðurvöldum.“

Til fróðleiks fletti ég upp grein Einars og fann eftirfarandi tilvitnanir sem væntanlega hafa snert föðurhjarta Össurar: „Það eru kannski svona klaufalegar mótsagnir, í bland við ofnotkunina á fyrstupersónufornafni í eintölu, sem gera það að verkum að maður getur einhvernveginn ekki verið sáttur við þennan góða dreng í formannssæti hins langþráða sameinaða jafnaðarmannaflokks.“

Síðar sagði: „En hvað gerðist svo, strax morguninn eftir hinar sögulegu kosningar fyrir tveimur árum? Jú, flokksformaður Samfylkingarinnar lagðist á hnén í beinni sjónvarpsútsendingu, áður en talningu var að fullu lokið, og bað um að fá að verða hækja undir stjórn sem framsóknarmenn myndu leiða. Og þetta gerði hann án þess einu sinni að hafa samráð við leiðtoga flokksins í þeim sömu kosningum. Það var þá sem ég sá fyrir mína parta að óumdeildir mannkostir Össurar Skarphéðinssonar væru ekki nægjanlegir til að ég vildi styðja hann til áframhaldandi formennsku í flokknum.“

Maður skilur vel að Össuri hafi sárnað við að sjá þessi skrif, svo nærfærnum höndum sem hann fer jafnan um lyklaborðið. Össur hefur líka dregið úr notkun á fyrstu persónu eintölu þegar hann vísar til sjálfs sín og notar oft þriðju persónu og talar um ráðherrann. Í nýjasta pistli sínum er þó enn vísað í fyrstu persónu: „Ég vona að lítill pistill minn um hvernig á að snara pólitíska kálfa, sem var töluvert lesinn, eigi amk. örlítinn þátt í hástökki  Eyjunnar!“ Össur veit svo sannarlega hvenær hann getur verið stoltur af sínum skrifum.

Mikið er gott að hafa blíða menn eins og Össur til að vitna í þegar samfylkingarmenn vilja stríða okkur viðkvæmum sálum á Villa.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is