leita

ELDRI PISTLAR

Það stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi þeirra Ólafs Hannibalssonar og Hans Kristjáns Árnasonar, forystumanna Þjóðar- hreyfingarinnar. Þeir leggja núna til að stjórnmálaflokkum verði bannað að auglýsa í ljósvakamiðlum. Þetta eru sömu menn og voru með heilsíðuauglýsingu í New York Times og efndu til útifunda til að mótmæla

Höfundur þessa pistils lenti í viðræðum við Mörð Árnason, frambjóðanda Samfylkingarinnar, í útvarpi í liðinni viku. Það hefði í sjálfu sér ekki verið í frásögur færandi nema að Mörður taldi að ekki væri trúverðugt að halda úti fjölmiðlum, sem meðal annars gerðu skoðanakannanir, ef menn hefðu jafnframt pólitíska skoðun. Að

RAGNAR REYKÁS ER einhver besta fígúra Spaugstofunnar. Hann lýsir þjóðarsálunni betur en flestir aðrir. Hann hneykslast og tuðar, fer hringinn í umræðunni á augabragði, og endar svo með stæl og er á móti sjálfum sér. Þetta verður varla toppað. Og þó. Ég held að Ragnar Arnalds hafi yfirtrompað nafna


PISTLAR

28/05/2006 | 17:18

Ósigur Ingibjargar (BJ)

Kosningaúrslitin á laugardaginn eru áfall fyrir Ingibjörgu Sólrúnu. Í Reykjavík sem á að vera höfuðvígi Ingibjargar og sérlegur kandídat hennar leiddi listann galt Samfylkingin afhroð. Á stöku stað náðu staðbundnar aðstæður að vega upp slaka frammistöðu foringjans. Reykjavík var þó aðalvettvangurinn og þar féll Samfylkingin á prófinu. Fyrir kosningarnar voru fimm Samfylkingarmenn í borgarstjórn. Nú eru þeir fjórir. Sjálfstæðismenn unnu hins vegar víðast hvar á þrátt fyrir að hafa verið 15 ár í ríkisstjórn. Oft hefur svo löng stjórnarseta orðið til þess að draga úr fylgi flokka þrátt fyrir að þeim gangi vel að stjórna. Sú er ekki raunin hjá Sjálfstæðismönnum og flokkurinn vinnur víðast hvar á.

Framsókn er refsað í Reykjavík fyrir R-lista samstarfið og er það að vonum. Reyndar töpuðu Framsóknarmenn víðar. Í Kópavogi nutu þeir síðast geysivinsæls bæjarstjóra, Sigurðar Geirdals, en eftir fráfall hans hafði listinn ekki lengur sama aðdráttarafl og áður. Framsóknarmenn hafa reyndar verið ósamstæðir á þingi í vetur og upphlaup Kristins Gunnarssonar og Jónínu Bjartmarz hjálpa flokknum ekki.

Vinstri græn unnu víðast á og geta vel við unað. Samt er ólíklegt að flokkurinn verði alvöru kostur í stjórnarmyndun með afturhaldssöm sjónarmið Ögmundar Jónassonar í ríkisrekstri og öðrum málum.

Frjálslyndir er populistaflokkur sem reynir að bjóða betur í öllum málum og nær þannig eyrum furðu margra.

Reykjavík

Vegna þess að R-listinn bauð ekki fram núna finnst mörgum erfitt að átta sig á úrslitum kosninganna. Því er ekki óeðlilegt að líta til síðustu Alþingiskosninga því að þá voru nokkurn veginn sömu listar í framboði og núna. Nýtt afl fékk að vísu 1,3% atkvæða við Alþingiskosningarnar en bauð ekki fram til borgarstjórnar. Samfylkingin sem þá var undir forystu Össurar Skarphéðinssonar fékk flest atkvæði í Reykjavíkur kjördæmi norður og nánast jafnmörg atkvæði og Sjálfstæðismenn í Reykjavík í heild. Hér að neðan sjást úrslitin 2003 og 2006 auk breytinga á fylgi listanna.

2003 2006

 +/-

Framsókn 11,5% 6,3% -5,2%
Sjálfstæðisfl 36,8% 42,9% 6,1%
Frjálslyndir 6,1% 10,0% 4,0%
Nýtt afl 1,3% -1,3%
Samfylking 34,8% 27,4% -7,4%
Vinstri grænir 9,6% 13,5% 3,9%
Alls 100,0% 100,0%

Á töflunni sést að á þessum þremur árum hafa Sjálfstæðismenn bætt við sig rúmlega 6% og VG og Frjálslyndir um 4% hvor. Framsókn tapar 5% sem vissulega er áfall, en sá sem tapar mestu, bíður nánast afhroð, er flokkur Ingibjargar, Samfylkingin, tapar um sjö og hálfu prósenti. Þeir Samfylkingarmenn sem telja að forsætisráðherra hafi orðið fyrir slíku áfalli að Framsóknarmenn þurfi að skipta um kúrs og jafnvel skipstjóra ættu að líta í eigin barm. Eftir að Ingibjörg tók við af Össuri hefur fylgið hrunið af flokknum í Reykjavík.

Hroki Ingibjargar

Það er einkennilegt hve Ingibjörgu veitist erfitt að takast á við hlutverk sitt sem foringi sem þarf að geta brugðist við mismunandi aðstæðum. Að kvöldi kjördags fer hún enn í sama farið að Sjálfstæðismenn séu ekki hæfir til samstarfs. Hún skipar foringja sínum á Akureyri að kúvenda og hætta viðræðum um meirihluta við Sjálfstæðismenn og tala þess í stað við Lista fólksins. Svipaða skipun gaf hún í Árborg. Þetta þarf svo sem ekki að koma á óvart því að helsti samstarfsmaður hennar í Reykjavík var alltaf Alfreð Þorsteinsson, sem talaði við hana þrisvar á dag meðan hún var og hét. Þegar félagar hennar í R-listanum nefndu það hvort ekki væri eðlilegt að skipta Alfreð út úr Orkuveitunni tók hún því af og frá. Það þarf því ekki að koma á óvart að hún telji Lista fólksins vænlegastan til samstarfs.

Það kom hins vegar á óvart að Ingibjörg sagði ósatt að kvöldi kjördags þegar hún var að reyna að fela tap Samfylkingarinnar. Hún sagði að í borgarstjórn væru eftir kosningar jafnmargir Samfylkingarmenn og áður eða fjórir. Fulltrúar Samfylkingarinnar nú eru Dagur B. Eggertsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Stefán Jón Hafstein og Björk Vilhelmsdóttir. Þau voru öll í borgarstjórn áður. Auk þeirra var Ingibjörg Sólrún í borgarstjórninni áður en hún bauð sig ekki fram núna. Samfylkingarfulltrúum fækkaði því úr fimm í fjóra.

Ingibjörg gat heldur ekki setið á sér að leiðrétta Steingrím J. Sigfússon þegar hann notaði algenga íslenska málvenju og fjallaði um flokksmenn í karlkyni. Ekki er að efa að Steingrímur kann vel að meta slíkar leiðbeiningar og hugsar sér gott til glóðarinnar að njóta leiðsagnar Ingibjargar í ríkisstjórn í framtíðinni.

Framsetning á tölum

Eins og fyrr reyndu sjónvarpsstöðvarnar að keppast um að koma tölunum á framfæri. Ríkissjónvarpið hefur litlu breytt í áratugi og kvöldið var eins og maður væri kominn aftur um 20 ár. Ólafur Harðarson var hlýlegur og yfirvegaður að vanda. NFS var miklu nútímalegra í framsetningu en hins vegar var ekki hægt að fylgjast með þeim vegna þess hve Sigmundur Ernir og fleiri áttu erfitt með að leyna þeirri skoðun sinni að Samfylkingin hafði unnið, burtséð frá úrslitunum.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is