leita

ELDRI PISTLAR

17. febrúar | Stund sannleikans (JGH)
Blaðið hefur átt það til að skúbba. En í þetta skiptið kom það með forsíðu sem toppar eiginlega flest sem ég hef séð í langan tíma. Stund sannleikans var runnin upp hjá mínum gamla vinnufélaga fyrir 25 árum, HERB, þar sem hann segir í viðtali við Blaðið að hann

13. febrúar | Fjórði foringinn (BJ)
Prófkjör Samfylkingarinnar var um helgina. Borgarstjórinn sendi mér bréf á föstudaginn um að ég mætti kjósa. Þrátt fyrir að prófkjörið var byggt upp í kringum það að allir mættu kjósa og þyrftu hvorki að vera í Samfylkingunni né styðja hana kusu aðeins rúmlega níu þúsund manns. Á Akureyri, Ísafirði

Mogginn verður eflaust seint talinn æsifréttablað. Fréttir hans af skýrslu Merrill Lynch hafa samt orðið til þess að mörgum finnst hann í þeim fréttum hafa haft ásjónu æsifréttablaðs – og að hasarinn sé svipaður og þegar DV segir frá því að sendibílstjóri sé með glóðarauga eftir að hafa verið


PISTLAR

11/08/2008 | 21:15

Aage Lorange (d. 2000)

Aage Lorange tónlistarmaður er látinn í hárri elli. Sú var tíðin að Aage var þjóðkunnur maður. Hvergi var haldið almennilegt ball nema Hljómsveit Aage Lorange léki undir dansi, til dæmis þegar Hótel Borg var opnuð árið 1930. Ég kynntist Aage ekki fyrr en löngu síðar. Þá var hann ekki lengur með hljómsveit en lifði engu að síður á tónlistinni með því að kenna á píanó og leika á mannamótum. Aage var einstakur maður. Hann hafði gott lag á kennslu og var jákvæður og uppörvandi kennari. Aldrei kippti hann sér upp við það þótt árangurinn léti á sér standa og kom alltaf fram við nemandann sem jafningja. Hann var með afbrigðum kurteis maður.

Stundum fengu nemendur að leika á flygilinn uppi og þótti heldur betur forfrömun, þótt eftir á að hyggja hafi það einungis verið gert til þess að hlífa heimilisfólki sem svaf nálægt píanóinu í kjallaranum. Eftir tíma sagði hann oft sögur frá því í gamla daga, ekki frægðarsögur af sjálfum sér heldur frásagnir og dæmisögur af kennurum sínum og kunningjum. Páll Ísólfsson og Viktor Urbancic standa mér ljóslifandi fyrir augum og sá ég þó hvorugan nema gegnum frásagnir Aages. Þó að meira en aldarfjórðungur sé liðinn síðan náminu hjá Aage lauk þá hugsa ég oft til hans. Ef maður hitti hann á förnum vegi var hann ræðinn og skemmtilegur sem fyrri daginn.

Það var vel til fundið hjá Hótel Borg að fá Aage Lorange og hljómsveit hans til þess að spila á 60 ára afmæli hótelsins árið 1990, eftir að húsakynni höfðu verið færð nær upprunalegu horfi. Mörgum þótti vænt um að þessum heiðursmönnum í íslenskri tónlistarsögu væri sýndur slíkur sómi. Í sögu dægurlagatónlistar á Íslandi verður nafn Aage Lorange skráð með feitu letri. Þeir sem náðu að kynnast honum sem tónlistarmanni og kennara munu ætíð minnast hans með þakklæti og hlýhug.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is