leita

ELDRI PISTLAR

Það eru meira en 20 ár sem skólafélagi minn sagði við mig: „Það eru allir til sölu.“ Mér varð óþægilega við, en þá bætti hann við: „Það er bara spurning um verð.“ Oft hefur mér orðið hugsað til þessara orða bæði fyrr og síðar. Skyldi það vera svo að

Ég sá því spáð að stjórnin myndi springa á þessu ári. Það held ég að sé afar ólíklegt. Á Íslandi er leiðtogapólitík og á meðan það ríkir traust, vinátta, virðing og gott samkomulag á milli Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur þá fellur stjórnin ekki. Samband þeirra skiptir

Jóseph Stiglitz Nóbelshafi í hagfræði segir í Fréttablaðinu að verðtrygging ætti að miðast við vísitölu launa. Ég er þessu ósammála og tel að hann sé á villigötum. Ég varð enn meira undrandi á því að að lesa að Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segði að vel mætti hugsa sér fasteignalánamarkað sem


PISTLAR

11/08/2008 | 17:51

Benedikt Jóhannesson

Hér má sjá pistla sem ég hef skrifað, greinar, sögur, ljósmyndir og annað efni. Flest hefur birst annars staðar áður. Meðfylgjandi mynd er frá árinu 1974. Síðan hef ég lítið breyst.

Hér má lesa um nokkur atriði af lífsferlinum.

Fæddur 1955
Stúdent MR 1975
BS próf í stærðfræði með hagfræði sem aukagrein 1977 frá University of Wisconsin
MS próf í tölfræði 1979 frá Florida State University
Doktorsgráða (Ph.D.) frá Florida State University 1981. Aðalgrein tölfræði, aukagrein stærðfræði.

Eiginkona: Vigdís Jónsdóttir, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis, börn: Steinunn, Jóhannes og Jón.

Kennari við Verslunarskóla Íslands 1982-86, deildarstjóri í stærðfræði. Stundakennari við Háskóla Íslands 1982-88 og Háskólann á Akureyri 1991-3.

Hefur starfað að ýmsu félagsstarfi í stærðfræði og kennslu, m.a. sem formaður félags raungreinakennara og setu í stjórnum Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga, Íslenska stærðfræðafélagsins og Aðgerðarannsóknarfélagi Íslands. Störf við landskeppni og alþjóðlega keppni í stærðfræði, bæði Ólympíuleika og Eystrasaltskeppni. Formaður Íslenska stærðfræðafélagsins 1999-2001. Formaður Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga 2002-2005. Í stjórn Verslunarráðs 2002-2006.

Stofnaði árið 1984 ráðgjafafyrirtækið Talnakönnun, framkvæmdastjóri þess síðan. Jafnframt framkvæmdastjóri dótturfélags Talnakönnunar, Útgáfufélagsins Heims, frá 7. nóv. 2000.

Deildarstjóri tjónadeildar Sjóvá-Almennra frá stofnun árið 1989 til nóv. 1990

Í Tryggingaráði 1991-2003, varaformaður 1995-2003, formaður stjórnar Tryggingastofnunar 2007-8 og Sjúkratrygginga Íslands 2008-10,  formaður stjórnar Skipaútgerðar ríkisins 1991 til loka fyrirtækisins 1992, í stjórn Framkvæmdasjóðs frá 1991 til loka sjóðsins 1992, í stjórn Nýherja frá 1995, formaður frá 1996, í stjórn Skeljungs frá 1998-2004, formaður 1999-2003, í stjórn Myllunnar 1996-2004, formaður 1997-2004, í stjórn ÚA 1997-2003, í stjórn Eimskips 2000-2003, formaður 2003, í stjórn Burðaráss 2002-2003, formaður 2003, formaður Hans Petersen 2000-2003, í stjórn Sjóvá-Almennra trygginga 2004-2007, í stjórn Íslensku óperunnar 2006-, í stjórn N1 2008-2011.

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is