leita

ELDRI PISTLAR

Það var fallegur dagur þegar ég vaknaði og mér var glatt í sinni. En það stóð stutt. Í Mogganum sá ég að tónlistarmaðurinn Prins hélt tónleika á dögunum og í umsögn blaðamanns segir: „... þótt hann verði fimmtugur á næsta ári hélt hann uppi fjörinu í næstum tvo

Ég sá mynd af flokksþingi Vinstri grænna í Mogganum . Allir stóðu og klöppuðu nema Steingrímur Joð. Hann sat með krosslagðar hendur. Það vantaði texta undir myndina, en mér hefði fundist fara vel á því að hann væri: „Flokksmenn VG hylla Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.“ En hún var hvergi sjáanleg.

Agnes Bragadóttir og Mogginn stálu athygli viðskiptalífsins með frásögn af baráttunni um Íslandsbanka og önnur fyrirtæki. Þar er ljóst að barist hefur verið með öðrum og harkalegri hætti en áður og flestir sammála því að aðfarirnar séu óviðfeldnar en umdeilt hver er skúrkurinn. Agnes segir baráttuna vera milli Kolkrabbans


PISTLAR

11/08/2008 | 22:44

Guðni Guðmundsson (d. 2004)
Guðni Guðmundsson rektor dó fyrir um 10 dögum eftir skamma sjúkdómslegu en langan aðdraganda. Guðni var rektor MR öll árin sem ég var þar nemandi og við háðum marga hildina. Ég held að hann hafi haft svolítið gaman af því að skamma mig, ekki í illu heldur sem sport. Einu sinni varð mér það á að slasa mig fyrir prófin og gat ekki skrifað vegna þess að hægri höndin var í fatla. Ég varð því að taka nærri öll sjúkraprófin, en datt þá það snjallræði í hug að semja við Hjálmar vin minn Hannesson sögukennara um að hann sleppti mér við próf. Hann tók því vel og við sömdum um að ég fengi átta í einkunn, en sagan var eitt af mínum uppáhaldsfögum. Segir nú ekki meira af prófunum nema að ég hélt því mjög á lofti að ég væri í sjúkraprófi en ekki í endurtekningu eins og flestir hinna. Um mánuði seinna var ég á spjalli við Guðna um einhver mál sem löngu eru gleymd. Laumar hann því svo að í lokin að ég hafi ekki mætt í söguprófið, fái þar af leiðandi núll og sé þar með hættur í skólanum.

Ekki gat ég rifjað upp samninginn við Hjálmar, sem ekki var samkvæmt ritúalinu, þannig að ég þóttist verða að taka þessu, enda væri þetta væntanlega ábending forsjónarinnar um að ég ætti ekki að ganga menntaveginn lengra. Ekki hætti ég samt í skólanum og sú viturlega ákvörðun var loks tekin, að láta mig taka munnlegt próf í þessu efni. Við Hjálmar sömdum upp á nýtt með sama hætti og fyrr og prófið hefur ekki enn verið þreytt. Nú er bara að vona að núverandi rektor lesi þetta ekki og svipti mig stúdentsprófinu vegna þessa ótekna prófs.

Ári seinna voru busar tolleraðir að vanda og ákveðið að gera það með menningarlegri hætti en árin á undan, henda þeim ekki í Tjörnina heldur messa yfir þeim og lesa þeim lífsreglurnar. Til tals hafði komið að inspector schole eða formaður bekkjarráðsins héldu ræðu, en eins var nafn undirritaðs, nefnt án sérstakra undirtekta. Guðna fannst þetta ágæt hugmynd nema hann taldi af og frá að Benedikt talaði. Skipti þá engum togum að hinir virðulegu embættismenn voru teknir af mælendaskránni og ég einróma gerður ræðumaður eldri bekkinga. Átti ég þennan frama eingöngu Guðna að þakka.

En allt var þetta í stríðnislegri vinsemd og mörgum árum síðar þegar ég var orðinn prófdómari við þennan virðulega skóla varð ég var við mikla umhyggju Guðna í garð nemenda sem tæpt stóðu á stúdentsprófi. Hann lagði mikla áherslu á að enginn yrði látinn falla sem bjargað yrði, jafnvel þó að ekki væri fylgt allra stífustu reglum um einkunnagjöf.

Það var alltaf gaman að tala við Guðna, bæði í gamla daga og líka seinni árin. Undanfarin ár vorum við saman í rótarýklúbbi og þar hélt uppeldið áfram. Guðna fannst félagsmenn eiga að mæta reglulega og ræðumenn ættu að flytja mál sitt hátt og skýrt. Hann var sjálfur ætíð með 100% mætingu og kom síðast á fund viku áður en hann dó. Hann var krati að trúarbrögðum, en hélt í þá gömlu trú öðru fremur vegna þess að hann var íhaldsmaður fram í fingurgóma. Guðni var öllum eftirminnilegur og  þó að margt í hans fasi hafi orðið til þess að margir töldu hann hrjúfan, var hann í raun ljúfmenni, sem hélt því óhikað fram að einn kostur góðs kennara væri að vera góður leikari. Hann fylgdi þessari skoðun sinni svo vel, að ekki sáu allir gegnum leikinn.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is