leita

ELDRI PISTLAR

Það er með ólíkindum að Samfylking og Sjálfstæðis- flokkur velji sömu helgina til að halda landsfundi sína. Samkvæmt fréttum munu sjálfstæðis- menn hafa ákveðið það í fyrrahaust að halda fundinn á þessum tíma, en á þeim tíma hafði enginn annar flokkur meldað sig um þessa helgi. En skyndilega uppgötvaði

Ég er safnaratýpa. Það þýðir að ég er ekki mikið fyrir að láta eitthvað af hendi ef ég hef einu sinni höndlað það. Þess vegna leist mér ekki vel á það að fara í veiði þar sem ég átti að sleppa fengnum. Gamalt máltæki segir að enginn viti hvað

Hlustandi á Bylgjunni mun hafa hringt í morgunþáttinn Í bítið á dögunum og lagt til að Jóhanna Sigurðardóttir fengi útflutningsverðlaunin. Þetta var innlegg hans í umræðuna um fólksflóttann til Noregs eftir hrun. Frjáls verslun opnaði þá umræðu upp á gátt í nýjasta tölublaðinu með ítarlegri fréttaskýringu og bar saman


PISTLAR

11/08/2008 | 21:01

Helga Ingimundardóttir (d. 2008)

Helga Ingimundardóttir var öðru fremur góð kona. Hún er mér í minni nánast frá því ég fyrst man eftir mér og líklega er ekkert orð sem lýsir henni betur. Helga var mágkona móður minnar, gift Sveini Benediktssyni. Ég man aldrei eftir öðru en talað væri með hlýju um Helgu. Hún átti afmæli á Þorláksmessu og afmælisveisla á Miklubrautinni var fastur punktur í aðdraganda jólanna hjá minni fjölskyldu. Það var bæði frændsemi og vinátta milli fjölskyldnanna. Mömmu þótti vænt um bræður sína og sagði aldrei við þá styggðaryrði svo ég muni. Bræðurnir voru allir fyrirferðarmiklir í þjóðlífinu og stundum fannst mömmu það hafa gleymst að foreldrar hennar hefðu líka átt dætur. En hún var mjög stolt af þeim bræðrum og studdi þá þegar hún gat. Þeir voru henni líka góðir.

Líklega hefur það verið þegar Ólafía Pétursdóttir, ömmusystir mín, varð níræð, að Sveinn hélt ræðu. Hann var til þess sjálfkjörinn sem elsti fulltrúi sinnar kynslóðar. Hann talaði fallega um móðursystur sína en eitt festist í huga mér öðru fremur. Hann sagði frá því þegar hann kom fyrst með Helgu að Laugavegi 66. Þá sagði Ólafía við hann: „Haltu í hana þessa.“ Sveinn bætti við: „Það gerði ég og það var mín gæfa í lífinu.“ Kannski minnist ég þessa vegna þess að ég var ekki vanur því að þau systkini væru að flíka tilfinningum sínum. Enginn efaðist um réttmæti þessara orða. Helga var akkeri í lífi Sveins og sá um heimilið meðan hann sá um að reka fabrikkur hér og þar um landið. Ég held að Sveinn hafi kunnað að keyra bíl en hann vildi miklu heldur að Helga keyrði. Það var óvenjulegt á þeim árum.

Helga var höfðingi heim að sækja og þó að hún væri róleg og tranaði sér alla jafna ekki fram í margmenni hafði hún góða kímnigáfu. Helga hélt góðri heilsu langt fram eftir aldri og kom á mannamót. Það var gaman að sjá hana á slíkum stundum, alltaf sjálfir sér líka. Síðustu árin bjó hún í Skógarbæ ásamt Ragnheiði systur sinni. Það varð stutt á milli andláts þeirra systra og nú hefur enn verið höggvið skarð í nánustu fjölskyldu þeirra. Á þessari stundu minnumst við góðrar konu með hlýju. Ég sendi afkomendum Helgu Ingimundardóttur og öðru venslafólki samúðarkveðjur.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is