leita

ELDRI PISTLAR

Ég hef gaman af fótbolta og síðan ég var átta ára hef ég verið Valsari. Þess vegna hef ég mest gaman af því þegar Valur vinnur fótboltaleiki. Ég hef næstmest gaman af því þegar KR tapar leikjum. Auðvitað á maður ekki að hafa gaman af óförum annarra en það

Morgunblaðið er ótæmandi uppspretta umræðna. Í forystugrein á sunnudag segir blaðið frá öflugum fréttaflutningi sínum af landsbyggðinni, en það hefur nú opnað skrifstofu á Austurlandi. Í greininni segir að það sé eindregin skoðun fréttaritara blaðsins ,,að ítarlegur, reglulegur og jákvæður fréttaflutningur skipti byggðir landsins miklu máli." Leiðarahöfundur bætir svo við:

Ég var í Danmörku um helgina. Það er alltaf huggulegt. Ekki nokkur maður atyrti okkur á götu þó að við leyndum því ekki að við værum Íslendingar. Mér sýndist þeir bara vera að gera það gott. Í fyrra flutti óperan úr Konunglega leikhúsinu í glæsilegt hús gegnt höllinni Amalíuborg.


PISTLAR

19/07/2006 | 14:29

Marokko: Er andi í lampanum?
Í Marrakesh í Marokkó er eins og maður sé kominn í miðja Þúsund og eina nótt. Skemmtilegust voru markaðurinn og torgið. Um allt er fólk í kuflum, karlar sem líta út eins og þeir séu klipptir út úr Stjörnustríði, gömlu jeddarnir og Obi van Kenobi. Það er gaman að sjá gráskeggjaða öldunga í þessari múnderingu. Litadýrðin er mikil, dúkar, skór og krydd eru skemmtileg fyrir augað, en ekki veit ég um gæði eða bragð. Lyktin af kryddinu er góð. Betlarar eru aðgangsharðir. Það er sama reglan hér og annars staðar, ef maður lítur á einhvern þeirra elta þeir mann um allt. Ég þorði ekki að skoða slöngutemjara ef ske kynni að tamningin hefði ekki tekist. Sífellt koma nýjar vörur á markaðinn og fortíðin er ekki fjarlægari en svo að hér kemur Nasreddin með asnakerruna fulla af varningi.
Mér fannst fróðlegt að fara í bústaðinn þar sem fyrrum forsætisráðherra hafði búið með fjórum konum sínum og tuttugu og fjórum
hjákonum. Leiðsögumaðurinn sagði að hann hefði fengið frí tvo daga í mánuði. En bæði ráðherrann og konurnar eru löngu farin úr húsinu, kannski öll dáin. Hér eru konur í búrkum. Sumar sýna andlitið en ekkert hár. Aðrar bara augun og enn aðrar eru alveg huldar blæjum. Líklega eru blæjur fyrir augum þunnar því að þær gátu gengið án erfiðleika. En flestar eru í venjulegum fötum og ekki með neinar blæjur. Tunglið liggur flatt og á veitingahúsinu er opinn eldur í arninum. Við gengum upp á þakið og maður þurfti ekki að hafa fengið sér mikið rauðvín til þess að sjá grilla í mann fljúgandi á teppi út við sjónarrönd.
Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is