leita

ELDRI PISTLAR

Hefur það einhver áhrif að Árni Magnússon hættir í pólitík? Vandi er um slíkt að spá. Hafi hann staðið næstur Halldóri og ef almenningur hefur talið að hann væri líklegastur arftaki, hefur það að minnsta kosti ekki sópað að fylgi samkvæmt skoðanakönnunum. Satt að segja hugsa ég að flestir

Frambjóðendur eiga erfitt með að vera hreinskilnir fyrir kosningar. Það sem verra er; þeir beita blekkingum. Þeir veifa sólgleraugum núna en á sunnudaginn, daginn eftir kosningar, segja þeir okkur að taka upp regnhlífarnar. Þá verður sannleikurinn kynntur til sögunnar. Frambjóðendur beita blekkingarsól vegna þess að þeir vita að hún

30. maí | Góð helgi (BJ)
Ég nýtti helgina vel. Gekk á Esjuna og las blöðin. Þá sá ég hvað við erum heppin að eiga vandaða fjölmiðla hér á landi. Sparisjóðurinn stóð fyrir Esjudegi eins og hann gerir á hverju ári. Þá fær fólk orkudrykk og sælgæti fyrir að ganga á fjallið og skátarnir passa


PISTLAR

14/09/2011 | 22:37

Marty Bevans (d. 2010)

Marty Bevans var glaðlyndur maður. Þegar maður hugsar til hans er það fyrst brosið og smitandi hlátur sem kemur í hugann. Líklega er ekki hægt að hugsa sér meiri Íslandsvin en hann því hann tók sannkölluðu ástfóstri við landið. Við kynntumst honum fyrir rúmlega 30 árum þegar við hittum hann og Guðfinnu Mathiessen, Dundu, konu hans fyrst í Tallahassee í Flórída. Við vorum ekki viss um það hvernig umgangast átti hermenn, því að Marty var hermaður, þó að hann væri reyndar á eftirlaunum sem slíkur þá, aðeins 50 ára gamall. En það þurfti ekki margar heimsóknir til þess að sannfæra okkur um að þau hjón væru eðalmenni sem ekki væru mikið fyrir formlegheit eða heraga.

Marty hafði verið bæði í Kóreu- og Víetnamstríðunum. Það var hægt að fullyrða það að hann hafði kynnst „öllum pakkanum“ eins og einhver orðaði það. Hann var þó fjarri því að vera hávær eða árásargjarn maður. Þvert á móti var hann með rólegt og glaðlegt yfirbragð, svolítið bangsalegur í útliti og jafnvel skapferli, barngóður og skemmtilegur sögumaður. Okkur fannst það ekki spilla fyrir að hann var námsmaður eins og við, því að hann fór í nám að lokinni hermennskunni og vann hjá ríkinu í Georgíu í tuttugu ár.

Stundum bar stríðin tvö á góma þó að ekki væri það oft. Það er minnisstætt að hann talaði einu sinni um hve sorglegt það væri að mannkynið leiddist aftur og aftur út í stríð. Þetta var á þeim árum sem enn eimdi eftir af átökunum innan Bandaríkjanna vegna Víetnamstríðsins. Marty talaði ekki með æsingi róttæklingsins heldur af reynslu hins vitra manns sem þekkti hörmungar stríða af eigin raun. Hann efaðist ekki um málstaðinn en vissi hve stríð er hræðileg leið til niðurstöðu.

En stríð og hörmungar voru oftast víðs fjarri þegar maður hitti Marty. Hann lumaði miklu frekar á skemmtilegri veiðisögu eða afrekum á golfvellinum. Þegar við bjuggum í Bandaríkjunum vissum við að Marty hefði gaman af golfi, en höfðum ekki hugmynd um að hann væri úrvals golfleikari. Það eru ekki mörg ár síðan við vissum að hann hefði á sínum tíma verið án forgjafar og hefði unnið það afrek hátt á annað hundrað sinnum að spila hringinn „undir aldri“ sem kallað er þegar höggin á 18 holum eru færri en æviárin.

Dunda og Marty voru samrýnd hjón, samtaka í öllu og höfðingjar heim að sækja. Þau voru alltaf mjög góð við börnin okkar sem fæddust í Tallahassee. Þegar Marty hafði lokið sínum seinni vinnuferli ákváðu þau að kaupa íbúð í Hafnarfirði, fæðingarbæ Dundu, og bjuggu þar hálft árið. Þar bjó Marty við golfvöllinn og undi sér vel. Hann var vinsæll og eignaðist marga góða vini og kunningja sem löðuðust að þessum vingjarnlega, stóra manni sem lék betur en flestir sem öttu við hann kappi. Fáir hefðu trúað því að hann væri komin vel yfir áttrætt.

Dunda og Marty eignuðust fimm uppkomin börn og eiga fjölda barnabarna. Marty lést í Tallahassee 28. nóvember 2008. Allir sem kynntust Marty sakna góðs drengs.

Vigdís Jónsdóttir og Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is