leita

ELDRI PISTLAR

27. ágúst | Stefnt á gull (BJ)
Hvernig fer fólk að því að vera gift lengi? Ég sá að í Mogganum var skemmtilegur pistill um þessa áleitnu spurningu. Eitt snjallræðið er að giftast ungur. Það snarbætir líkurnar á því að hjón nái hálfri öld saman. Það vill til að mamma og pabbi sem og afi og

Vor eða haust eru ekki til á Íslandi, samkvæmt almanakinu. Bara vetur og sumar. Við kveðjum síðasta vetrardag og daginn eftir fögnum við sumardeginum fyrsta – yfirleitt í strekkingsvindi og kulda. Kannski gluggaveðri eins og var í gær. Hún er líka góð sagan af útlendingi sem var staddur hér

Ég hef alltaf jafngaman af því þegar birtar eru rannsóknir um að vín sé hollt. Hver kannast ekki við vísindin um að glas af rauðvíni á dag styrki hjartað. Í gamla daga var stundum talað um að fá sér eitthvað hjartastyrkjandi, en það var áður en rauðvín komst í


PISTLAR

17/11/2011 | 23:09

Sameinuð stöndum vér
Þremur árum eftir hrun á þjóðin því miður enn langt í land. Því er mikilvægt að sjálfstæðismenn standi saman á örlagatímum þegar þjóðin þarf á nýrri forystu að halda.
 
Enda eru flokksmenn sammála í nær öllum helstu málum. Sammála í Landsdómsmálinu þar sem í fyrsta sinn er höfðað pólitískt mál hér á landi. Sammála um að þörf sé á erlendri fjárfestingu í atvinnulífinu og sammála um að óhóflegri skattlagningu verði að linna. Þeir eru hins vegar ekki sammála um það hvort rétt sé að ganga til
viðræðna við Evrópusambandið um aðild.
 
Í júní 2009 samþykkti  Alþingi að Ísland skyldi sækja um aðild. Margt er þó með þeim hætti að rétt er að staldra við. Flestir eru sammála um að umgjörð samningaviðræðnanna sé í ólestri vegna sundurþykkis stjórnarflokkanna. Á degi hverjum birtast sögur um vanda einstakra Evrópuríkja og enginn veit á þessari stundu hvernig tekst til um viðbrögð. Endurskoðun á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins ekki lokið. Niðurstöður skipta Íslendinga miklu máli. Því er eðlilegt að margir vilji sjá hvernig til tekst. Í slíku stórmáli þarf að vanda til verka á öllum sviðum og stuðla að víðtækri sátt meðal þjóðarinnar um vinnubrögð.
 
Þó að menn greini á um aðild að Evrópusambandinu er æskilegt að ná samstöðu um hvernig málinu skuli lokið. Sjálfstæðismenn ættu að sameinast um að beina málinu í nýjan farveg þannig að erfiðustu þáttum verði ekki að fullu lokið fyrr en árið 2013. Með því að sameinast um eftirfarandi verklag tryggja flokksmenn trausta meðferð þessa mikilvæga máls og lýðræðislega afgreiðslu þess óháð afstöðu til aðildar:
 
1.       Nefnd formanna þeirra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi ásamt utanríkisráðherra taki við yfirumsjón með viðræðunum.
2.       Formlegar samningaviðræður um sjávarútvegsmál, landbúnaðar- og dreifbýlismál og gjaldmiðlasamstarf hefjist árið 2013. Samningaviðræðum um aðra kafla verði framhaldið með eðlilegum hraða.
3.       Unnar verði fyrir árslok 2012 skýrslur útfrá íslenskum hagsmunum um:
a) Endurskoðun sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
b) Samkeppnishæfni Íslands til lengri tíma m.v. krónu annars vegar og evru hins vegar.
c) Framtíðarstöðu í landbúnaði og byggðaþróun með samanburði milli óbreyttar stöðu og aðildar.
          4. Samningurinn öðlast því aðeins gildi að hann verði samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu.
 
Benedikt Jóhannesson
 
Birtist í Fréttablaðinu 17. nóvember 2011.
Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is