leita

ELDRI PISTLAR

15. nóvember | Valkvíði (BJ)
Ég er ánægður þessa dagana. Bráðum verður kosið stjórnlagaþing. Þá verður gaman. Allir vita að er við hefðum haft almennilega stjórnarskrá hefðu Jón Ásgeir og Björgólfur ekki tekið svona mikil lán og sett okkur á hausinn. Það sér hvert barn. Yfirkjörstjórn hefur óskað eftir því að ég

Ég var að heyra það að Ralph Nader ætlar að bjóða sig fram til forseta í Bandaríkjunum. Þá datt mér í hug: Ástþór er ekki einn í heiminum. Því Ralph, gamli neytendafulltrúinn, bauð sig líka fram árið 2000. Demókratar eru á taugum, því þeir kenna Ralph um að hafa fellt

06. maí | Gátan mikla (BJ)
Ég var að stíga úr sturtunni, fálmaði eftir handklæði og strauk framan úr mér. Það var móða á speglinum og enginn hafði nýlega skrifað á hann nein leyndarmál eins og gerist í bíómyndunum. Þegar ég beygði mig til þess að þurrka tærnar sá ég stauk í ruslafötunni. Hún var


PISTLAR

12/02/2010 | 00:00

Sjálfstæði er að velja sér félaga

Á örlagatímum í sögu þjóðar skiptir það sköpum að hafa þor til þess að taka réttar ákvarðanir þó að þær séu umdeildar. Sem betur fer eru sjaldan örlagastundir. Nú nálgast ein.

Árið 1949 var tímamótaár í sögu Íslands. Þá ákvað Alþingi að hverfa frá hlutleysisstefnu til frambúðar. Á árunum 1945 til 1949 féll hvert ríki Austur-Evrópu eftir annað undir ok kommúnisma. Þjóðir sem sumar áttu mikla samleið með lýðræðisþjóðunum í vestri urðu fyrir hrammi Sovétríkjanna. Forystumenn vestrænna ríkja ákváðu þá að bindast samtökum um að verjast ágangi Stalíns og kóna hans. Þjóðirnar höfðu stuðning hver af annarri.

Ísland hafði nýlega fengið sjálfstæði og það var stór ákvörðun að ganga í NATO. Forystumenn þjóðarinnar voru sakaðir um landsölu, svik við fósturjörðina og fullveldisafsal. Þegar varnir voru styrktar árið 1951 voru stjórnvöld sökuð um að vilja innlima Ísland í Bandaríkin. Sem betur fer stóðust forystumenn Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks árásir sem voru svæsnari en menn áttu að venjast og kölluðu þó ekki allt ömmu sína á þeim árum. Á Íslandi og í öllum NATO-löndum tókst að varðveita frið og frelsi.

Kynslóðirnar sem á eftir komu eru þó ekki sérstaklega þakklátar þeim Bjarna Benediktssyni, Ólafi Thors og öðrum leiðtogum þjóðarinnar á þessum tímum. Vegna þess að markmiðið náðist teljum við frelsi, lýðræði og efnahagslega velsæld sjálfsagðan hluta af lífinu. Hins vegar þarf ekki að efast um að þeim hefði verið álasað fyrir það síðar að grípa ekki tækifærið þegar NATO var stofnað. Smáríkin í austri þurftu að búa við kúgun í nær hálfa öld og kunna að meta frelsið. Vegna þess að við höfðum leiðtoga sem þorðu þurftum við aldrei að kynnast afleiðingum þess að þora ekki.

Árið 2008 varð Ísland fyrir meira efnahagsáfalli en nokkur önnur vestræn þjóð. Vegna þess að okkur hafði í áratugi vegnað vel var lítil umræða um efnahagslegan stöðugleika þjóðarinnar. Þó að umheimurinn hefði miklar áhyggjur af Íslandi kepptust Íslendingar sjálfir við að sannfæra sig um að ekkert kæmi fyrir þá. Okkur vantaði líka öryggisnet og bandamenn þegar á reyndi.

Síðastliðið sumar var samþykkt á Alþingi að Ísland skyldi sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ákvörðunin var umdeild og samþykkt með naumum meirihluta. Þó var ljóst að margir þingmenn sem greiddu atkvæði gegn umsókninni hefðu stutt hana ef öðruvísi hefði verið að henni staðið.

Nú styttist í það að Evrópusambandið ákveði að hefja viðræður við Íslendinga. Enginn þarf að efast um að innan sambandsins fengjum við sem bandamenn þær þjóðir sem standa næstar okkur að menningu, stjórnkerfi og sögu. Í nærri tvo áratugi höfum við viljað vera í bandalagi með þeim um fjölmörg málefni. Þegar þjóðin gekk í Evrópska efnahagssvæðið á sínum tíma töldu margir það landsölu og svik við fósturjörðina. Sem betur fer höfðu forystumenn þjóðarinnar þá hugrekki til þess að velja leið frelsis og opinna markaða. Flestir átta sig þó á því að það er útilokað að ná stöðugleika með íslensku krónunni. Hún getur gefið falska velsæld eða mikla örbirgð. En hún veitir aldrei stöðugleika eða skjól.

Viðræður um aðild að Evrópusambandinu taka vafalítið langan tíma. Afar mikilvægt er að allir leggist á eitt um að Ísland nái eins góðum samningi og mögulegt er. Aldrei mega menn standa upp frá borðinu nema sannfærðir um að besta samningi hafi verið náð. Þegar þar að kemur mun þjóðin kjósa. Það er allra hagur að taka saman höndum meðan á samningum stendur. Vonandi sýna forystumenn á þeirri stundu sömu framsýni og foringjarnir um miðja síðustu öld. Þeim verður eflaust ekki þakkað frekar en fyrri daginn þegar vel tekst til, en þeir sem bregðast þegar þjóðin hefur tækifæri til þess að tryggja efnahagslegan og pólitískan stöðugleika gleymast aldrei.

Í dag klukkan 16.30 verður í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu stofnað félag Sjálfstæðra Evrópumanna. Fundurinn er opinn öllum sem vilja styðja markmið félagsins. Það vill standa vörð um sjálfstæði Íslands, áframhaldandi samvinnu Íslands við vestrænar lýðræðisþjóðir og stuðla að efnahagslegum og pólitískum stöðugleika, trausti, einstaklings- og atvinnufrelsi og frjálsum viðskiptum. Til þess að ná þessum markmiðum vill félagið að Ísland sýni reisn og styrk í viðræðum við Evrópusambandið og forðist einangrunarþörf og minnimáttarkennd. Til slíkra viðræðna hlýtur þjóðin að ganga sannfærð um það að reyna að ná fram hinu besta, en jafnframt tilbúin til þess að hverfa frá þeirri leiðinni, ef niðurstaðan er ekki þolanleg.

Birtist í Morgunblaðinu 12. febrúar 2010

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is