leita

ELDRI PISTLAR

Við elskum eftirlit. Ef við ökum of hratt þá hallmælum við eftirliti löggunnar, annars finnst okkur eftirlit hennar vera nauðsynlegt; sérstaklega hafi hún eftirlit með öðrum. Þessa vikuna hefur allt snúist um eftirlit. Evrópa er undir eftirliti, gömlu víkingarnir, bankarnir, lífeyrissjóðirnir, Hinn sérstaki og svo er Fjármálaeftirlitið

15. september | Skemmtilegt hobbí (BJ)
Þættinum hefur borist bréf: Elsku póstur. Jeg heiti Ömmi og jeg er sexdíu ára gamall. Allir segja að jeg sje mjög skemmtilegur, og sniðugur maður, sjerstaklega ef jeg fæ mjer í staupinu. Jeg er algjör byndindismaður. Í sextaugsafmælisgjöf fjekk jeg margar skemmtilegar gjafir, til dæmis

Eftir að sumardagurinn fyrsti rennur upp förum við Vigdís í göngutúra. Við gengum þann fyrsta í gegnum skaflana sem náðu okkur ekki nema rétt í hné en eins flestir vita erum við bæði hávaxin. Það er eitthvað svo rómantískt við það að ösla snjóinn á þessum vorkvöldum. Reyndar er


PISTLAR

11/08/2008 | 23:22

Viðtal við Nýmæli, blað Nýherja árið 2006

Benedikt Jóhannesson hefur setið í stjórn Nýherja síðan 1995 en hann hefur jafnframt setið í stjórnum og gegnt formensku í mörgum þekktum íslenskum fyrirtækjum á borð við Eimskip, Skeljung, Hans Petersen og Mylluna.  Í ár voru tíu ár liðin frá því að Benedikt tók við stjórnarformennsku í Nýherja og af því tilefni tók Nýmæli hann tali um liðin ár.

Það liggur beinast við að spyrja Benedikt hvernig tengslin við Nýherja komu til og segist hann nú ekki vita það í rauninni. ,,Vorið 1995 hringdi Árni Vilhjálmsson, þáverandi stjórnarformaður, í mig og spurði hvort ég hefði áhuga á að setjast í stjórn félagsins.  Til að byrja með hafði ég lítinn áhuga á því þar sem, kynni mín á IBM á þeim tíma voru þau að um væri að ræða mjög gamaldags fyrirtæki þar sem ekki væri hægt að taka ákvörðun nema að senda það fyrir nefnd til Danmerkur, jafnvel Parísar eða Ameríku, senda þyrfti málin út í þríriti o.s.frv.  Það var um margt beinlínis absúrt hvernig IBM var rekið á þeim tíma.  Ég bjóst við því að Nýherji væri svipað fyrirtæki, þar sem það var stofnað á grunni IBM, en raunin reyndist hins vegar allt önnur og Árna tókst að tala mig inn á að setjast í stjórn félagsins.  Svo er það reyndar eins og með önnur verkefni sem maður leiðist inn í að það varð mjög spennandi.“  

Tók við formennsku á ári átaka
Benedikt segir að um árið eftir að hann settist í stjórn Nýherja hafi tveir stórir þættir gerst.  ,,Annars vegar sagði forstjóri félagsins, Gunnar Hansson, upp störfum og Árni tilkynnti að hann mundi hætta sem formaður. Því voru þetta að mörgu leyti sérstæðar aðstæður til að taka við formensku í félaginu.  Skömmu síðar kemur í ljós að afkoman er ekki beysin og síðar á árinu fengum við upplýsingar um að IBM ætlaði að selja sinn hlut í Nýherja.  Þótt tímasetning ákvörðunar IBM væri í raun tilviljun þá leit það út á þeim tíma að þarna væri fyrirtæki sem enginn vildi koma nálægt.   Fyrsta árið var því töluvert átakaár en afkoman hefur síðan þá verið viðunandi flest öll árin þótt að maður sé alltaf að vonast til að hún verði enn betri.“

Kröftugur innri vöxtur
Af hverju hefur  verið svona erfitt að ná þó þessum árangri?
,,Fyrst og fremst vegna þess að samkeppnin á markaðnum hérna hefur ekki verið eðlileg.  Við sjáum það að á þessum fyrirtækjum sem hafa verið hérna, þá hafa þau öll verið á einhverjum tíma í miklum erfiðleikum.  Árið 2001 t.a.m. töpuðu tveir af samkeppnisaðilum okkar sínum milljarðinum hvor þannig að auðvitað er mjög erfitt að keppa á svona á markaði þegar einhver della er í gangi annars staðar.“

Var þá í raun samkeppnin að greiða niður markaðinn á þeim tíma?
,,Þannig kom það manni fyrir sjónir.  Við höfum stundum verið gagnrýndir fyrir það að vera íhaldssamir og það er alveg rétt að við höfum ekki tekið jafn mikla sénsa eins og margir aðrir.  En á móti höfum við ekki tekið miklar dýfur.Vöxtur Nýherja hefur hins vegar verið mjög góður.  Ég held að velta fyrirtækisins hafi verið í kringum milljarð í upphafi og síðan þá hefur fyrirtækið vaxið áttfalt í krónum talið en nálægt því fimmfaldast að raungildi.  Það sem er merkilegt við þennan vöxt er að hann hefur fyrst og fremst komið innan frá.   Þótt við höfum keypt eitthvað af litlum fyrirtækjum þá hefur vöxturinn að langmestu leyti komið til þannig að starfsmenn fyrirtækisins hafa fundið upp á einhverju nýju.“

Góð merki og þjónusta skipta höfuð máli
Ef við horfum aðeins aftur á samkeppnina á markaðnum finnst þér blokkamyndanir vera að styrkjast?
,,Já það væri kjánalegt að neyta því.  Hins vegar verða menn þó að passa sig á því að hugsa ekki bara um blokkirnar heldur að eiga skynsamleg viðskipti.  Almennt þá hamla  þessar blokkir svolítið því að menn taki skynsamlegustu ákvarðanirnar en vissulega eru stórir aðilar sem líta mjög sterkt til viðskipta „innan blokkar“.  Fyrirtæki eins og Nýherji, sem eru fyrir utan þessar blokkir, eiga að einbeita sér að því að selja sem besta þjónustu og vöru á samkeppnishæfu verði.  Eini aðilinn sem hefur átt í Nýherja frá upphafi er Vogun og ég held að það sé ekki hægt að benda á dæmi þess að Nýherji sé áskrifandi að viðskiptum á öðrum forsendum en þeim að fyrirtækið er með góð merki, góða vöru og starfsmenn sem veita góða þjónustu.  Það eru engin tilvik þar sem menn geta gengið að því vísu að selja sína þjónustu til ákveðinna fyrirtækja.“

Hver hafa verið helstu áherslu atriði Nýherja í að ná árangri?
,Almennt séð má segja að Nýherji hafi byggt upp sérfræðiþekkingu til að selja gæðavörur og má þar nefna sem dæmi vörumerki eins og IBM, SAP, Canon og Bose.  Þetta eru gæðamerki hvert á sínu sviði en síðan höfum við verið með önnur merki sem við höfum hætt með vegna þess að það er ekki okkar stíll að vera með vörur sem eru slakari.”“

,,Samhliða þessu þurfum við sífellt að bæta þjónustuna til að tryggja að hún sé á sama plani og vörurnar sem fyrirtækið selur.  Við höfum verið að fikra okkur smám saman í rétta átt og þá höfum við horft nokkuð til IBM með því að leggja meiri áherslu á ráðgjöf, en IBM hefur tekið algjörum stakkaskiptum á undanförnum 10 árum.  Þar erum við að selja þekkingu í öðru formi en áður.  Þekking starfsmanna er þannig grunnurinn að samkeppnisforskoti félagsins.  Það sem við þurfum að ná okkar þjónustu yfir í er að þekkingin innanhús verði jafnari og áreiðanlegri yfir allt fyrirtækið.  Menn geti gengið að því vísu að ef þeir panta þjónustu frá Nýherja hvort sem það er á sviði hugbúnaðar eða uppsetning á flóknum kerfum eða viðhald á þeim geti fólk gert ráð fyrir því að það sé að kaupa gæðaþjónustu. Okkar megin verkefni er að gera þjónustuna áreiðanlega þannig að viðskiptavinurinn viti að hverju hann gengur er hann nýtir okkar þjónustu.“

Aukin áhersla á ráðgjöf og erlenda starfssemi
Spurður um framtíðina og megin áherslur segir Benedikt að haldið verði áfram uppbyggingu á ráðgjafarþjónustu í mjög breiðum skilning.  ,,Við munum einnig fara víðar um lönd en við erum nú þegar komin með þjónustu í Danmörku og reyndar fleiri löndum en í smærri stíl.  En ég sé okkur vaxa víðar á Norðurlöndum og Bretlandi og ég hef orðað það þannig að við ættum að horfa á Norður-Evrópu sem okkar heimamarkað.  Þetta mun gerast hægt til að byrja með en síðar í stærri stökkum.“

Þegar þú talar um ráðgjöf ertu þá að líka að horfa á að við séum að ná meira langtíma samstarfi við viðskiptavininn?

,,Já, það er það sem við höfum trú á.  Það verður að vera okkar keppikefli að menn geti litið til Nýherja og dótturfélaga þess sem langtíma samstarfsaðila og flaggað nafni þeirra sem gæðastimpli þannig að fólk viti að þarna eru komnir sérfræðingar sem vita sínu viti á því sviði sem þeir starfa á.  Við höfum marga úrvalsráðgjafa innan samstæðunnar, t.a.m. á sviðið tölvuþjónustu, SAP-þjónustu hérlendis sem erlendis, á sviði hljóð- og myndlausna og stærri fjarskiptakerfa. Gott dæmi um þetta er að viðskiptavinir hafa nýtt okkar sérfræðiþekkingu á sviði fjarskiptalausna við uppsetningu símkerfa víða um heima.  Við höfum sem sagt náð þessu víða en það er hægt að halda endalaust áfram að bæta sig.“

Er dálítill græjufíkill
Er Benedikt lítur yfir farinn veg og er spurður að því hvað hafi verið skemmtilegast við Nýherja segir hann að það sé auðvitað mjög gaman þegar menn hrósi fyrirtækinu í hans eyru.  ,,Þá lætur maður sem maður eigi sem mest í framförunum, en oftast eru þær reyndar vegna þekkingar og tilveru góðra starfsmanna.  Mér fannst einnig gaman þegar við keyptum AppliCon í Danmörku því þá ýttum við fyrirtækinu á nýja braut.  Í því samhengi kom berlega í ljós að við þurftum ekki að gera það með neinni minnimáttarkennd því fólk erlendis sá að Nýherji var býsna stórt og öflugt félag, jafnvel á mælikvarða Norðurlanda.  Auðvitað er svo mjög skemmtilegt að sjá þróunina í allri þessari tækni.  Nýherji var t.a.m með samkvæmi í Hafnarhúsinu fyrr á árinu og stillti þar upp gömlu IBM tölvum og tækjum frá fyrri tímum sem í dag líta út líkt og þau séu frá steinöld.   Það eru ekki meira en 15-20 ár síðan manni fannst þetta flottustu tæki sem væri hægt að hugsa sér.  Manni fannst maður kominn langt inn í framtíðina.  Ég hef gaman af tækni á víðu sviði allt frá hljóð- og myndbúnaði til tölva þannig að maður er dálítill græjufíkill í sér.“ 
 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is