
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
„Þú hefur aldrei verið smámunasamur þegar kemur að sannleikanum séra Hjörtur minn,“ sagði séra Geir Waage í Reykholti þegar hann tókst á við séra Hjört Magna Jóhannsson í Fríkirkjunni í Kastljósi um nýju Biblíuna. Þeir voru að karpa um breytt og nútímalegra málfar í bókinni helgu. Það færi hins vegar vel á því að þeir hugsuðu meira um boðskap hins helga rits en hvernig einstakar setningar eru þýddar. Biblían boðar kærleika - líka náungakærleika.
Séra Geir Waage talaði viljandi niður til séra Hjartar og vændi hann um ósannsögli. Séra Hjörtur svaraði fyrir sig og rifjaði upp ummæli séra Geirs í Kastljósi fyrr á þessu ári þegar hann var vændur um að leggja að jöfnu samkynhneigð og nasisma. Þau mál voru ekki til umræðu þarna en Hjörtur mátti til. Geir snöggreiddist við þetta, hristi höfuðið, og sagðist ekki vera kominn í þáttinn til að standa í svona rökræðum. Þá glotti séra Hjörtur Magni; hann hafði komið höggi á séra Geir. Eftir sátu áhorfendur heima í stofu og furðuðu sig á þessum tveimur guðsmönnum, þessum tveimur þjónum kirkjunnar. Við áhorfendur vorum auðvitað litlu nær um hið nútímalega málfar í Biblíunni, en við fengum góða sýningu. Það er fyrir öllu. „The show must go on.“
Ég er svo sem engu betri en aðrir í því að ég kom mér vel fyrir í sófanum þegar sérarnir tveir voru kynntir til sögunnar. Ég hugsaði með mér: Nú verður hasar sem ég ætla ekki að missa af. Það er annars íhugunarefni að fá þessa tvo klerka til að útskýra og rökræða nýja Biblíuþýðingu. Þessir sérar eru sér á báti.
Séra Geir Waage hefur margoft vakið athygli fyrir það að sækja í deilur og hann virðist eiga auðvelt með að fá fólk upp á móti sér. Hann var að ræða við Sigurstein Másson í Kastljósi snemma á árinu þegar hann var vændur um að leggja að jöfnu samkynhneigð og nasisma í þættinum. Þegar stjórnandi þáttarins kváði og spurði út í þetta frekar þá brást séra Geir illa við og bað stjórnanda þáttarins um að snúa ekki út úr fyrir sér.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson Fíkirkjuprestur var fyrr á árinu kærður af nokkrum öðrum prestum til siðanefndar Prestafélags Íslands vegna ummæla í garð þjóðkirkjunnar. Hjörtur deildi á þjóðkirkjuna og sagði hana ríkisfyrirkomulag sem búið væri að missa trúverðugleika meðal þjóðarinnar. Hann bætti við að trúarstofnun (þjóðkirkjan) sem teldi sig hafa höndlað sannleikann yrði um leið stórhættuleg ef ekki djöfulleg. Leikar fóru svo að Fríkirkjuprestur var sýknaður af siðanefnd Prestafélagsins um að hafa brotið reglur presta.
Það er ánægjulegt að Biblían sé orðin metsölubók. Allt stefnir í að hún seljist upp fyrir jól. Hún er prentuð í 20 þúsund eintökum, með rauðri kápu og svartri. Rauða kverið er sagt vinsælla. Vinna við þýðingu hinnar nýju Biblíu hefur staðið yfir í á annan áratug. Textinn var færður yfir á málfar nútímans svo hann yrði aðgengilegri og ekki eins fjarlægur. Um leið var reynt að halda í virðulegt yfirbragð hans. Bókin þykir mjög læsileg og er ljóst að útgefandi hennar, Jóhann Páll Valdimarsson hjá JPV Útgáfunni, hefur ráðist í mjög metnaðarfulla útgáfu og ætlar sér enn stærri hluti með þessa bók bókanna.
Biblían er auðvitað merkilegri en svo að sérvitrir sérar selji hana. Biblíuna þarf ekki að kynna en hún selur sig samt ekki alveg sjálf – frekar en aðrar bækur. Þess vegna hefur það eflaust ekki dregið úr sölu hennar í Eymundsson í þessari viku að vitringarnir þrír, Gunnar Þorsteinsson í Krossinum, Geir Waage og Hjörtur Magni, körpuðu um bókina og kynntu hana í leiðinni.
Biblían boðar kærleika. En heldur var hann lítill náungakærleikurinn sem sérarnir tveir sýndu í Kastljósinu. En hver hirðir um slíka smámunasemi.
Jón G. Hauksson.
NÝLEGIR PISTLAR