leita

ELDRI PISTLAR

Fyrir nokkrum mánuðum var ég á fundi með verðandi framkvæmda stjóra Samtaka atvinnulífsins. Engu líkara var en að hann væri á leiðinni í framboð því að hann svaraði nánast engum spurningum með svörum sem hald var á festandi. Ég hugsaði með mér að hann vildi ekki vera búinn að

Best að segja það strax. Í þessum pistli kem ég ekki út úr skápnum sem Evróvision-aðdáandi. Samt horfði ég á mestallan þáttinn á laugardaginn. Eftir það er ég í sjokki. Hvers vegna á að banna súludans í Kópavogi þegar efnt er til semi-pornsýningar í sjónvarpi allra landsmanna? Hins vegar

Ég er lentur í jólabókaflóðinu og sé ekki til lands. Oftast reyni ég að lesa nokkrar bækur með hraði um jólin, en nú náði ég því ekki. Það voru ekki nema nokkrar bækur sem ég náði að skoða. Samt held ég að ég eigi flestar þær sem mig langar


PISTLAR

02/02/2004 | 00:00

Forsetanum berast engin bréf (BJ)

Það vekur athygli margra að forseti Íslands kýs að vera erlendis á 100 ára afmæli heimastjórnar á Íslandi sem haldið var hátíðlegt 1. febrúar. Af viðtölum við starfsmann forsetaembættisins má skilja að hátíðahöldin hafi komið forsetanum í opna skjöldu, en hann sé upptekinn í einkaerindum í Bandaríkjunum. Forsetanum hafi ekki borist nein tilkynning um þennan dag og því ekki verið við hann að sakast.

Auðvitað getur forsetinn farið í heimsókn eða frí til Ameríku þegar honum sýnist, en það sýnir ákaflega sérstæða dómgreind að hann hafi valið nákvæmlega þennan tíma. Það voru stórkostleg tímamót í sjálfstæðissögunni þegar Íslendingar fengu fyrst íslenskan ráðherra sem hafði aðsetur hér á landi. Líklega má nefna fimm tímasetningar öðrum merkari í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga:

1. Endurreisn Alþingis árið 1845

2. Stjórnarskrá árið 1874 á þúsund ára afmæli byggðar á landinu

3. Íslenskur ráðherra, Hannes Hafstein,  tekur við embætti 1. febrúar 1904

4. Ísland fullvalda ríki árið 1918

5. Lýðveldi stofnað 17. júní 1944

Sumir myndu ef til vill bæta heimkomu handritanna árið 1971 við þennan lista. Það er merkilegt að árið 1845 var okkar mesta sjálfstæðishetja, Jón Sigurðsson, á þingi og tók strax foystu fyrir almennum þingmönnum. Árið 1904 er það svo hið glæsilega þjóðskáld, Hannes Hafstein, sem tekur við embætti. Árið 1944 varð Sveinn Björnsson svo forseti. Sveinn var að mörgu leyti merkur maður sem hafði víða verið kallaður til forystu, til  dæmis í Sjóvá og Eimskipafélaginu, en hann var ekki sérlega glæsilegur og vildi líka fara sér hægar en góðu hófi gegndi í sjálfstæðismálinu.

En aftur til samtíðar. Nú kom forsetinn semsé ekki. Einhvern tíma hefði honum tekist að breyta dagskrá sinni þegar svo óvænt atvik hefði dunið yfir sem 1. febrúar 2004, en eins og forseti Alþingis benti réttilega á, var þetta í fyrsta sinn sem sá dagur rann. Forsetanum tókst til dæmis að laga dagskrá sína að flugferð á leik Chelsea með hinum geðþekka rússneska kaupsýslumanni Abramovich. Abramovich mun reyndar sæta skattannsókn um þessar mundir eins og fleiri vinir forsetans, en það er útúrdúr. En Chelsea leikur reyndar einu sinni í viku og því auðveldara að átta sig á slíkum viðburðum en þeim sem verða bara einu sinni á öld.

Hins vegar er það ekki einsdæmi að forráðamenn þjóðar hverfi sporlaust. Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu sást til dæmis ekki vikum saman. Hver veit nema Ólafur birtist skyndilega á ný, sléttur og felldur?

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is