leita

ELDRI PISTLAR

Í ræðu sinni við setningu alþingis gat forseti lýðveldisins þess að nú sæti aðeins einn maður enn á þingi frá þeim tíma sem hann sat fyrst þingfund árið 1974. Þar sem herra Ólafur varð forseti árið 1996 myndu margir telja að hann hefði átt 22 farsæl ár að baki

Sjálfstæðisflokknum hefur ekki gengið vel í skoðanakönnunum að undanförnu. Hann mælist með 22,4% í könnun sem birt var í kvöld. Sumir vilja leita skýringa, en aðrir telja að það sé alls ekki gott að tala um þennan vanda yfirleitt. Alþekkt er að í mörgum góðum fjölskyldum þykir ekki gott

Í gamla daga var til útvarpsþáttur sem hét: Hvað hafið þér lesið um jólin? Hann hafur væntanlega bara verið eftir jólin og kannski ekki öll jól. En í þessum þætti komu fram merkir menn og sögðu frá því hvað þeir höfðu lesið. Einu sinni var Pétur Ben. móðurbróðir minn


PISTLAR

16/12/2005 | 00:00

Bónus sökudólgurinn? (JGH)

ÞÁ ERU MENN búnir að finna það út enn á ný að Bónus og Baugur séu ein af helstu ástæðum þess að matvöruverð á Íslandi sé 42% hærra en í löndum Evrópusambandsins. Auðvitað er þessi munur á verði matvara á milli landa sláandi. Fólki er brugðið.

FÓLKI ER LÍKA líka brugðið þegar pólitíkusar og skriffinnar byrja í alvöru að ræða um að Bónus  sé sökudólgurinn á háu matarverði á Íslandi. Það hljómar einfaldlega ekki trúverðugt, hvort sem fólk kann að hafa þá skoðun að þeir feðgar, Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson, séu orðnir alltof stórir og fyrirferðamiklir í viðskiptalífinu almennt.

FÓLK VEIT AÐ það eru viðskiptavinirnir sem gera fyrirtæki stór. Það veit að Bónus hefur á undanförnum sextán árum lækkað matvöruverð á Íslandi meira en nokkur pólitíkus eða skriffinni sem veifar skýrslum. Það veit líka að eftir að Krónan stillti verð sitt til jafns við Bónus hefur ríkt hreinræktað verðstríð á milli þessara verslana og þar er enginn kærleikur á milli.

BÓNUS, KRÓNAN, NETTÓ OG FJARÐAKAUP hafa lækkað matvöruverð með harðri samkeppni. Auðvitað á að þakka eigendum þessara fyrirtækja fyrir að nenna að standa í þessu – fremur en að sparka í þá. Pálmi heitinn Jónsson í Hagkaupi var raunar brautryðjandi í lækkun matarverðs á Íslandi þegar hann hóf á sínum tíma verslunarrekstur í gömlu fjósi við Miklatorg.

ÉG FULLRYÐI AÐ það ríkir hvergi meiri samkeppni í viðskiptum á Íslandi en einmitt á matvörumarkaðnum. Iðnrekendur og heildsalar hafa til þessa kvartað yfir því að stóru matvörukeðjurnar píni þá til að lækka verðið svo niður að það sé engu lagi líkt. Á móti hafa keðjurnar sagt að þær séu í krafti stærðar að ná hagkvæmum innkaupum – og því geti þær hagrætt.

PÁLL GUNNAR PÁLSSON, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, fór auðvitað fínt í orðalagið þegar hann kynnti skýrslu norrænna samkeppnisyfirvalda um matvörumarkaðinn á Norðurlöndunum. Hann sagði ekki að Bónus og Baugur væru sökudólgarnir. Hann notaði þess í stað dæmigert embættismannamál og sagði: „Kraftar samkeppninnar vinna ekki nægjanlega neytendum í hag.“

PÁLI GUNNARI VARÐ líka tíðrætt um að samþjöppun á matvörumarkaði væri mikil hér á landi og Norðurlöndunum og að hún fæli í sér „aðgangshindranir“. Hann sagði að samkeppnisyfirvöld myndu af þessu sökum rannsaka gaumgæfilega samruna á matvörumarkaðnum sem hugsanlega gætu dregið úr samkeppni.

HVAÐ SKYLDU ÞESSI orð Páls Gunnars merkja á mannamáli? Jú, að brjóta Baug upp með handafli til að hleypa fleirum inn á markaðinn. Ég bara spyr: Halda pólitíkusar og skriffinnar í alvöru að fólk trúi því að Bónus þurfi að fara í burtu til að verð á matvörum lækki? Og hvar á að setja stærðarmörkin fyrir keðjurnar? Að hámarki 20%, 30%, 35%? Það væri fróðlegt að sjá formúluna því mikið blóðbað blasir þá við í flestum atvinnugreinum þegar fyrirtæki verða skorin upp og niður.

Í MJÖG ÍTARLEGRI fréttaskýringu Frjálsrar verslunar fyrr á þessu ári, þegar verðstríðið ætlaði allt um koll að keyra á matvörumarkaðnum og slagorðið „mjólk er góð“ breyttist í „mjólk er óð“, kom fram að þrátt fyrir að þrjár keðjur væru ráðandi á matvörumarkaðnum þýddi það í reynd hvorki einokun og stórfelldan hagnað keðjanna. Þveröfugt.

ÞÓTT ÞAÐ HLJÓMI ef til vill undarlega af mér sem ritstjóra Frjálsrar verslunar að andmæla ekki stórum og sterkum matvörukeðjum þá er það bara einu sinni svo að samþjöppun á markaði er ekki það sama og einokun. Tví-, þrí- og fjórkeppni er ekki einokun. Það ríkir hvergi eins mikil samkeppni og einmitt á matvörumarkaðnum. Keðjurnar þrjár eru ekki reknar með stórfelldum hagnaði eins og framkvæmdastjórar þeirra getað vitnað um. Ætli þeir hafi ekki áhyggjur af einhverju öðru en gróða þessa dagana? 

MATVÖRUKEÐJURNAR ÞRJÁR, sem hafa obbann af markaðinum, eru Hagar, Kaupás og Samkaup. Hagar reka Bónus, Hagkaup og 10-11 og eru með 48% af matvörumarkaðnum á landinu þar af er Bónus með 30%. Kaupás rekur Nóatún, Krónuna og 11-11 og er með  24% af markaðnum. Samkaup rekur Nettó, Samkaup (Úrval og Strax) og Kaskó og er með 16% af markaðnum. Fjarðarkaup er með 4% af markaðnum. Þá eru yfir 100 aðrar verslanir í landinu, eins og Europris, Kaupfélag Skagfirðinga og um 100 litlir kaupmenn í höfuðborginni og úti á landi með 8% af markaðnum.

Í SKÝRSLU  PÁLS GUNNARS kom fram að innflutningshömlur á búvörum virtust vera helsta ástæðan fyrir 42% verðmuninum á milli Íslands og löndum Evrópusambandsins. Þá nefndi hann áðurnefnda samþjöppun á matvörumarkaðnum sem ástæðu. Eflaust væri líka hægt að nefna virðisaukaskattinn á Íslandi. Það er auðvelt fyrir pólitíkusa og skriffinna að lækka þann skatt og þar með verð á matvörum og öðrum vörum.

FYRST SAMÞJÖPPUNIN ER svona ógurleg og fyrst Bónus og Hagar okra svona mikið á fólkinu í landinu hvers vegna bíða þá ekki skriffinnarnir og pólitíkusarnir bara rólegir og láta keppinauta þeirra sjá um verkið – brjóta fyrirtækið upp með lögmál markaðarins að vopni?

Jón G. Hauksson

 

 

 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is