leita

ELDRI PISTLAR

Það eru Danskir dagar hjá Dagsbrún núna. Fyrirtækið er á allra vörum í Danmörku og danska pressan hamast við að flytja neikvæðar fréttir af getu eða getuleysi Dagsbrúnar til að gefa út fríblaðið Nyhedsavisen sem brátt mun sjá dagsins ljós. Og það fór

29. apríl | Hvað næst? (BJ)
Jæja, þá eru kosningarnar búnar og við sluppum við að Framsókn ynni. Hún vann vissulega á, en Sjálfstæðisflokkurinn fékk fleiri atkvæði og þess vegna er hann sigurvegari kosninganna. Það er einfaldlega þannig að sá sem kemur fyrstur í mark vinnur, þó að hann sé langt frá sínum besta tíma. Framsókn

Nýlega var sagt frá því að Kodak risinn væri orðinn gjaldþrota. Um tíma var hann svo áberandi og sterkur að hann var talinn eins konar eilífðarvél, líkt og mörg önnur þekkt fyrirtæki vestanhafs. Örugg fúnksjón, sterkt vörumerki, góð tækni, framúrskarandi filmur og allt eftir bókinni um gott fyrirtæki. Kodak


PISTLAR

25/11/2005 | 00:00

Jónsbók Hannesar Hólmsteins (JGH)

HANNES HÓLMSTEINN Gissurarson hélt blaðamannafund í gær þar sem hann spurði m.a.: „Á að svipta menn aleigunni fyrir að taka eðlilegan þátt í þjóðmálaumræðunni?“ Hannes var sem kunnugt er dæmdur úti í Bretlandi til að greiða Jóni Ólafssyni athafnamanni tólf milljónir í bætur vegna ummæla og skrifa um Jón.

Á BLAÐAMANNAFUNDINUM kynnti Hannes ítarlega „aðilaskýrslu“ sína sem lögmaður hans, Heimir Örn Herbertsson, lagði fram fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hannes freistar þess að fá endurskoðaða fyrri ákvörðun hérðasdóms vegna skaðabótanna sem enskur dómstóll dæmdi hann til að greiða Jóni.

SKÝRSLA HANNESAR ásamt útdrætti er 40 síður að lengd og svo ítarleg að eiginlega er um nýja Jónsbók að ræða – Jónsbók Hannesar Hólmsteins. Þessi lesning er einstaklega fróðleg og ættu sem flestir að gefa sér tíma til að lesa skýrsluna. Hannes hefur lagt mikla vinnu í hana og aflað sér gagna ótrúlega víða.

HANN UPPLÝSIR NÁKVÆMLEGA úr hvaða blöðum og tímaritum hann hafði heimildir sínar um Jón. Það er stórfróðleg lesning. Augljóst er að Hannes hefur lagt óvenjumikinn trúnað á frásögn „gulu pressunnar“ um að Jón hafi „auðgast upphaflega á viðskiptum með fíkniefni“.

ÉG ÆTLA AÐ grípa hér niður á nokkrum stöðum í skýrslunni og útdrættinum þar sem Hannes ræðir um fjárhagsleg tengsl Jóns Ólafssonar við stjórnmálamenn. En Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, fær þar „nokkrar línur“.

---------------------

„FULLT TILEFNI VAR TIL þess fyrir Hannes H. Gissurarson að minnast á það í ræðu sinni á blaðamannaþinginu 1999, að Jón Ólafsson hefði gert stjórnmálamenn háða sér. Þótt sumt af þessu hafi komið fram, eftir að Hannes hélt ræðu sína, er það ekki annað en staðfesting þess, sem hann hélt þar fram, að fjárhagsleg tengsl væru milli Jóns Ólafssonar og tiltekinna stjórnmálamanna og þá aðallega Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.“

----------------------

„ÞESS MÁ SÍÐA GETA, að Jón Ólafsson bauð ýmsum stjórnmálaleiðtogum í útgáfuhóf til sín 15. nóvember 2005, þegar Jónsbók kom út, þar á meðal Davíð Oddssyni, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Halldóri Ásgrímssyni og Steingrími J. Sigfússyni. Samkvæmt Blaðinu 17. nóvember sótti aðeins einn þeirra samkvæmið, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.“

---------------------

KAFLINN UM „FJÁRHAGSLEG TENGSL“ Jóns Ólafssonar við stjórnmálamenn hefst annars svona:

Í 2. tbl. 2. árg. Heimsmyndar (maí 1987) birtist viðtal við Jón Ólafsson eftir Herdísi Þorgeirsdóttur. Þar sagði á bls. 48:

Jón Ólafsson er ekki eingöngu vaxandi kaupsýslumaður. Hann stefnir að víðtækum áhrifum. Í einu samtali hallar hann sér fram á borðið og segir: „Ég vil sjá til þess að eftir nokkur ár verði það vinir mínir sem sitja í húsinu þarna við Austurvöllinn.“

Seinna í viðtalinu sagði, bls. 50:

Þetta þjóðfélag snýst um peninga. Tengsl við valdakjarnann eru í gegnum peninga. Því meiri peningar, því meiri tengsl. Frami í íslensku þjóðfélagi snýst um það að eiga vini sem eiga vini. Það er partur af þessum leik að þekkja rétta menn.

Hér dró Jón Ólafsson ekki dul á það, hvað hann ætlaði sér.

Í 9. tbl. 5. árg. Heimsmyndar (nóvember 1990) sagði á bls. 19 um hóp kaupsýslumanna, sem Jón var talinn veita forystu:

Þessi hópur hafði strax sterkan pólitískan undirtón einsleitra frjálshyggjumanna, og forstjóri stórfyrirtækis, sem sótti þar einn fund, hefur haft á orði, að sér hafi blöskrað sú opinskáa tenging viðskipta og stjórnmála, sem þar hafi verið til umræðu. Sjálfsagt væri til dæmis að styðja borgarstjórann og borgarstjórnarmeirihlutann, en ætlast yrði til, að greiði kæmi í greiða stað.“

-----------------

„AUÐVELT ER AÐ SÝNA fram á, að Jón Ólafsson gerði stjórnmálamenn fjárhagslega háða sér. Hann lýsti beinlínis yfir í Heimsmynd 1987, að hann ætlaði sér að gera það. Hann lánaði R-listanum, sem Ingibjörg Sólrún Gisladóttur veitti forystu, fyrir auglýsingum á Stöð tvö 1994, eins og fram kom í Helgarpóstinum 10. og 17. ágúst 1995. Eftir að Ingibjörg Sólrún var orðin borgarstjóri, réð fyrirtæki Jóns eiginmann hennar í stöðu yfirmanns.“

-------------

„INGIBJÖRG SÓLRÚN Gísladóttir reyndi tvisvar samkvæmt blaðafréttum að úthluta Jóni Ólafssyni verðmætum lóðum, fyrst í Mjóddinni, síðan í Laugardal. Strax eftir kosningar 2002 keypti hún af honum svonefndan Stjörnubíósreit við Laugaveg, og gagnrýndi borgarstjórnarminnihlutinn þau kaup harðlega. Ingibjörg Sólrún var samkvæmt blaðafréttum gestur í glæsilegu húsi Jóns í Lundúnum. Í svokallaðri Borgarnesræðu, sem hún hélt í febrúar 2003, í upphafi kosningabaráttu sinnar, lýsti hún efasemdum um það, að skattrannsókn á Jóni ætti efnislegar rætur.“

-------------

„ÞAÐ ER AUÐVELT að sýna fram á, að Jón Ólafsson er ruddalegur náungi. Fjöldi manns bera því vitni, til dæmis í Heimsmynd 1990. Það varð raunar líka bert fyrir skemmstu, þegar hann sagði opinberlega sögur af drykkjuskap skattrannsóknastjóra, sem hefur verið bindindismaður í þrjátíu ár, og af ræðuhöldum um sig í fimmtugsafmæli Þórarins Eldjárns, sem reyndust vera um Jón Ólafsson Indíafara.“

SVO MÖRG VORU þau orð – þótt þau séu mun fleiri í hinni 40 síðna skýrslu sem lögð var fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mikil lesning og seint verður sagt um Hannes að hann tali ekki tæpitungulaust.

Jón G. Hauksson

 

 

 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is