
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Framhjáhald, nauðgunartilraun, einelti, þjónkun viljalausra starfsmanna við auðugan eiganda, afbrýði og hefnd. Þetta er svo yfirgengilegt að ef það væri hlé gengi maður út.
Ég fór í leikhúsið um daginn að sjá Woyzeck. Í byrjun leiks kom fram einhver maður og sagði okkur að þetta væri ekki generalprufa eða frumsýning heldur rennsli. Það þýddi að ef fólk færi að hlægja á vitlausum stöðum myndu þau breyta leikritinu. Þá hlógu allir í fyrsta sinn.
Mér hafði verið gefinn miðinn en þegar ég las boðið sá ég ekki betur en að ég væri upptekinn einmitt þetta kvöld. Af örlæti mínu gaf ég því miðann áfram. Svo kom í ljós að ég hafði misskilið dagsetningar. Ég átti að segja til um það fyrir þriðjudag hvort ég ætlaði að þiggja boðið, en sýningin var á fimmtudegi. Þetta setti strik í reikninginn. Þá komst gesturinn ekki, en við hjónin hins vegar laus. Það setti strax að mér kvíða. Nafnið benti til þess að þetta væri austur-evrópskt verk.. Svo hafði ég líka lesið að verkið væri flutt af leikhópi sem hafði vakið mikla athygli fyrir listrænan flutning í London. Þetta var greinilega ekki verk ætlað venjulegu fólki.
Á fimmtudagseftirmiðdeginum setti að mér mikla þreytu og ég velti því mikið fyrir mér hvort ég ætti að leggja mig áður en ég færi til þess að vera betur upplagður eða sofa á sýningunni. Ég tók fyrri kostinn vegna þess að þá ætti ég alltaf hinn uppi í erminni.
Þetta fimmtudagskvöld var hellirigning. Nálægasta stæði var við Háskólann í Reykjavík og við fundum strax laust pláss. En þegar við sáum að það var merkt rektor, segi ég að við skulum leggja annars staðar. Og það var eins gott því í því var flautað frekjulega fyrir aftan okkur. Við fórum því aðeins lengra og ösluðum rigninguna til baka. Þá sá ég að rektorinn hafði breyst mikið í útliti frá því að ég sá hann daginn áður, en lét það kyrrt liggja.
Leikhúsið var stappað og við fengum miða á fremsta bekk. Sæti fjögur og fimm. Í sætum eitt til tvö voru önnur hjón, en í sæti þrjú ungur piltur. Ég hugsaði ekki sérstaklega um það, menn mega fara einir í leikhús ef þeir vilja. Þetta er reyndar sérstaklega heppilegt verk til þess að fara einn á. Eða færri.
Fyrir framan okkur var stóll á gólfinu. Mér fannst það heppilegt. Þá gæti ég sett lappirnar upp á hann og hvílt lúin bein. En það var ekki heppilegt. Því að menn voru stöðugt að ganga fram og aftur fyrir framan okkur og mér orðið skapi næst að færa fjandans stólinn. En ég þorði það ekki því að hann hefði getað verið leikmunur.
Svo flutti maðurinn ræðuna og tjaldið lyftist og við blasti austur-evrópskt sviðið. Frá fyrstu sekúndu var ótti minn staðfestur. Fólk staulast um með vasaljós í röraflækju. Lýsir hvert á annað og talar eitthvað út í loftið.
Sagan er svona: Woyzeck er verkamaður. Forstjórinn leggur hann í einelti. Maríu konunni hans finnst hann skrítinn. Eigandi verksmiðjunnar kemur í heimsókn og dregur Maríu á tálar. Woyzeck er laminn nokkrum sinnum, hengdur upp á fótunum. Í lokin lemur eigandinn hann í kássu. María kemur til Woyzecks og hann drekkir henni.
Fyrir utan þetta gerist ekkert nema í leikritinu er einhver læknir sem Woyzeck pissar á. Þá hló salurinn í annað sinn. Einhvern tíma reynir forstjórinn að nauðga lækninum. Þá hló salurinn í þriðja sinn. Ekki allur. Bara nokkrar konur.
Ég sá strax hvert stefndi og ákvað að grípa til áætlunarinnar og sofna. Og það tókst næstum því þegar pilturinn við hliðina á mér stóð allt í einu á fætur með látum, setti á sig hárkollu og fór upp á sviðið að syngja og dansa. Það voru nokkur svona trix til þess að tryggja það að maður gæti ekki hvílt sig. Það er skvett vatni á fólk á fremsta bekk (en Woyzeck pissar þó ekki á það), honum og fleirum sveiflað út í salinn og hent stórum sundbolta til áhorfenda. Einmitt allt sem áhorfendum finnst svo skemmtilegt.
Þá má náttúrlega ekki skrifa leikdóm um rennsli. En ef þetta væri leikdómur myndi ég segja að Ingvar Sigurðsson væri fínn leikari. Þeir sem vilja njóta hans gerðu samt miklu betur í því að leigja sér spólu með honum en að sjá þessa sýningu. Og það er ekkert hlé fyrir þá sem vilja lauma sér út svo lítið beri á. En kannski verður þessu öllu breytt.
NÝLEGIR PISTLAR