
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
NÚNA GENGUR ALLT út á að upplýsa hver hafi verið aðdragandinn og ástæðan fyrir kæru Jóns Geralds Sullenberger á hendur Baugsmönnum. Að vísu var búið að staglast á því í þrjú ár að málið snerist um pólitískar ofsóknir Davíðs Oddssonar og áttu fréttir Fréttablaðsins af hinum stolna tölvupósti að sýna okkur í eitt skipti fyrir öll að Davíð væri potturinn og pannan í málinu og hefði átt frumkvæðið að lögsókninni. Samt vill Hreinn núna fyrst fá málið á hreint - sem og Samfylkingin.
EKKI HEFUR TEKIST betur til en svo með fréttir Fréttablaðsins og DV – eða þá innkomu Morgunblaðsins í málið – að þjóðin heldur áfram að skiptast í sínar venjubundu fylkingar í þessu máli sem öðrum, allt eftir því hvort menn eru með eða á móti Davíð Oddssyni. Það snýst allt á Íslandi um Hann, eða það segir Samfylkingin.
HEFÐBUNDNIR ANDSTÆÐINGAR Davíðs Oddssonar, m.a. hagfræðiprófessorinn og vitringarnir þrír í stétt rithöfunda, lesa það að venju út úr fréttum Fréttablaðsins og DV að málið sé runnið undan rifjum Davíðs. Þetta höfum við að vísu allt heyrt áður hjá þeim. Það hvarflar ekki að þeim að Jónína Benediktsdóttir og Jón Gerald Sullenberger séu að ná sér niðri á þeim feðgum, Jóhannesi Jónssyni og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, með því að afhenda lögreglunni gögn um Baug og Gaum. Það er bara ekki nægilega krassandi skýring. Ekki nægilega mikið plott.
FASTAGESTIR HEITU POTTANNA minnast þess hins vegar að Jónína Benediktsdóttir bjó í einhver ár með Jóhannesi og rataði það samband inn á síður og forsíður DV. „Samband þeirra var,“ svo vísað sé í texta eftir Stuðmenn, en nú er í tísku að vísa í dægurlagatexta. En það fór fyrir þessu sambandi eins og SÍS að það leið undir lok. Það gerðist haustið 2001 og viti menn; strax í kjölfarið fór að hitna í kolunum. Skrítið!
EKKI VERÐUR ANNAÐ séð af fréttum undafarna daga en að Jónína hafi haft samband við hálfan bæinn og sýnt nafntoguðum ritstjórum, blaðamönnum og stjórnmálamönnum, m.a. Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Valgerði Sverrisdóttur, gögn um að maðkur væri í mysunni hjá þeim feðgum. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, var sá sem lagði mest við hlustir og innmúraðist óþarflega í málið. En svo virðist sem hálf þjóðin, m.a. einn sakborninganna, hafi bent Jónínu á að þau Jón Gerald fyndu sér lögfræðing og færu með málið til lögreglunnar.
VISSULEGA ERU FRÉTTIRNAR að undanförnu býsna skrautlegar. Það er ótrúlegt hvað menn setja í tölvupósta. Fréttablaðið er hins vegar hátíðlegt og ræðir um að „uppljóstranir þess hafi sett Baugsmálið í nýtt ljós, óháð stöðu þess í réttarsölunum“.
DV VAR EKKI eins hátíðlegt og birti sl. mánudag frétt sem flestum hefur fundist óbirtingarhæf í návíginu hér á landi. DV var mikið í mun að rökstyðja birtingu fréttarinnar og sagði að hún skýrði Baugsmálið í heild sinni. Fréttin segði allt sem segja þyrfti og einmitt svona frétt hefði örugglega verið birt í öllum alvöru fréttablöðum vestanhafs enda væri hún fréttaskýringin í einni setningu. Hún útskýrði aðdragandann og tölvupóstinn á milli Jónínu og ritstjórans.
MARGIR SKILDU RÖK DV fyrir birtingu fréttarinnar á þá leið að Baugsmálið snerist um ástir, svik og hefndir. Að Jónína Benediktsdóttir og Jón Gerald Sullenberger væru að hefna sín á feðgunum og að tálkvendið Jónína gæti vafið mönnum um fingur sér og hefði á þeim forsendum dregið ritstjórann meira inn í málið en eðlilegt gæti talist.
ÞAÐ ER HINS VEGAR merkilegt að forkólfar DV og Fréttablaðsins trúa ekki eigin skýringum á birtingu DV–fréttarinnar og að hún skýri málið í hnotskurn. Áfram er Baugsmálið runnið undan rifjum Davíðs. Það sem meira er, núna vill Samfylkingin fá „óháða rannsóknarnefnd“ skipaða af pólitískt skipuðu Alþingi til að rannsaka aðdraganda málsins. Við sem héldum að Ingibjörg Sólrún væri með Baugsmálið á hreinu eftir Borgarnesræðuna frægu. Þannig hefur hún talað. En gleymum því ekki að Ingibjörg Sólrún er fræg fyrir það að segjast aldrei hafa sagt neitt af því sem allir hafa haldið að hún hafi sagt.
ÞEGAR HIN „óháða rannsóknarnefnd“ Samfylkingarinnar hefur störf, hvenær sem það verður, skal henni bent á að Sigríður Dögg Auðunsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, sem hefur birt alla stolnu tölvupóstana í Fréttablaðinu að undanförnu, flaug til London í febrúar árið 2001 og tók viðtal við leikkonuna Glenn Close. Sigríður Dögg var þá að vísu blaðamaður á Morgunblaðinu. Þær ræddu m.a. kvikmyndina Fatal Attraction en í henni leikur Clenn Close á móti Michael nokkrum Douglas og þótti myndin einn mesti spennusmellur 9. áratugarins. Þar sannaðist hið fornkveðna að koddahjal getur stundum endað með ósköpum - það veit fólkið í heitu pottunum sem man sambönd. Hvernig væri að nefndin færi út á næstu leigu og horfði á þessa mynd?
EN BÍÐUM VIÐ, Baugsmálið sjálft sem nú er í Hæstarétti? Það er aukaatriði, enda allt annað mál og óskiljanlegt. Það er ekki nægilega krassandi.
Jón G. Hauksson
NÝLEGIR PISTLAR