leita

ELDRI PISTLAR

26. mars | Í baði (BJ)
Á laugardaginn fór ég í bað. Sumum fyndist slíkt eflaust ekki í frásögur færandi en hjá mér var þetta meiriháttar upplifun. Enda var ég ekki einn í baðinu. Réttara væri reyndar að segja að ég hefði farið í böð því að ég fór í böðin í Laugum. Líklega er

Nú styttist í jólin. Á sunnudag var stysti dagur ársins. Þá á maður að vera þunglyndur en ég var bara nokkuð ánægður með daginn. Að vísu sagði kona mér um daginn að karlar næðu sæmilega gegnum skammdegið en þá sykkju konur niður. Svo þegar karlarnir sæju það í janúar

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, leggur mikið upp úr Nallanum; alþjóðasöng verkamanna. Hann lét kyrja lagið við setningu ársfundar ASÍ og tóku þeir hressilega undir ráðherrarnir Össur og Árni Páll og krepptu hnefa, eins og raunar mátti sjá á ágætri mynd í Mogganum. Forseti Íslands og Ögmundur voru hins vegar


PISTLAR

02/02/2006 | 21:54

„Mafía skal hún heita“ (JGH)

Það virðist vera nóg til af peningum á 365 miðlunum þegar kemur að því að kaupa fólk yfir til fyrirtækisins. Þannig munar Fréttablaðið ekkert um það að hafa tvo ritstjóra þegar einn virðist hafa dugað vel til þessa. Enda hélt ég fyrst að Kári Jónasson væri að hætta þegar RÚV sagði frá því að Þorsteinn Pálsson hefði verið ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins. En svo reyndist ekki vera. Þeir verða tveir – og það kómíska er auðvitað að báðir geta þegið eftirlaun frá ríkinu og eru því ekki beint upp á 365 komnir fjárhagslega.

Þorsteinn Pálsson var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar ritstjóri Vísis – en síðan eru liðin þrjátíu ár. Það var gaman að sjá myndirnar af honum í frétt RÚV sem teknar voru af honum á gömlu Vísis-dögunum. Þorsteinn er hins vegar reynslubolti þegar kemur að stjórnmálum, viðskiptalífinu og þjóðfélagsmálum almennt. Hann er heiðarlegur og nýtur virðingar og þess vegna dreg ég þá ályktun að Fréttablaðið sé fyrst og fremst að kaupa virðulega ímynd hans – líkt og það gerði þegar það náði Kára Jónassyni yfir til sín. Það er augljóslega ekki að sækjast eftir reynslu hans sem blaðamanns.

Ráðning Þorsteins Pálssonar mælist mjög misjafnlega fyrir. Ég held ekki að hann verði slæmur ritstjóri. Hann mun örugglega ekki rugga bátnum. Hann stóð sig vel á sínum tíma á Vísi – lenti raunar upp á kant við Ólaf Jóhannesson, þáverandi dómsmálaráðherra, sem á beinni línu í útvarpinu sakaði þá Vísis-menn um vinnubrögð mafíósa. „Mafía skal hún heita,“ endurtók Óli Jó þegar á hann var gengið vegna ummæla sinna og varð þetta að dómsmáli.

Margir telja að ráðning Þorsteins sé úthugsuð pólitísk ráðning. Ég veit það ekki. Það blasir svo sem við, en ég hallast frekar að einföldu plotti: Að Þorstein hafi vantað vinnu, að hann hafi viljað spreyta sig aftur á blaðamennskunni og þjóðmálunum og að hann hafi verið svo ljónheppinn að þekkja Ara Edwald, forstjóra 365. Ari var aðstoðarmaður hans um árabil þegar Þorsteinn var ráðherra.

Það er athyglisvert að Blaðið réði nýjan ritstjóra sl. laugardag, en Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, er helmingseigandi í Blaðinu. Það ákvað að ráða Ásgeir Sverrisson, blaðamann á Morgunblaðinu til tuttugu ára, sem ritstjóra. Blaðið sóttist eftir starfsreynslu enda ljóst að það þarf að taka til hendinni hjá Blaðinu svo að það standist samkeppnina við Fréttablaðið. Það er mjög ánægjulegt ef Blaðið nær því markmiði sínu að koma snemma út á morgnana.

Annars finnst mér fréttin af Fréttablaðinu vera sú að Guðmundi Magnússyni, fulltrúa ritstjóra blaðains, hafi verið sagt upp störfum. Ari Edwald segir að brottrekstur Guðmundar hafi ekkert með „skoðanir eða skrif hans að gera“. Guðmundur skrifaði harðan leiðara um DV-málið og Gunnar Smára Egilsson um miðjan janúar og hefur það verið staðfest að hann fékk tiltal frá Kára Jónassyni fyrir að skrifa leiðarann. Ari segir að menn á ritstjórn Fréttablaðsins hafi verið búnir að komast að þeirri niðurstöðu að reka Guðmund í lok síðasta árs, þ.e. áður en Ari var ráðinn forstjóri 365 og leiðarinn frægi var skrifaður. En hvers vegna var Guðmundur þá rekinn? Við bíðum öll spennt. Það þýðir ekki að segja a nema að b komi á eftir. Sú saga er ósögð!

Á vissan hátt er hægt að skilja rök þeirra sem telja að pólitík ráði núna mestu um ráðningar í yfirmannsstöður á 365 og hvað segir skáldið núna um bláu höndina? Ari Edwald, forstjóri félagsins, er harður sjálfstæðismaður og fyrrum aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar. Þorsteinn er fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætis-, sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra. Björgvin Guðmundsson, annar tveggja nýrra ritstjóra DV, er blaðamaður til nokkurra ára en hann er líka fyrrum formaður Heimdallar og harður sjálfstæðismaður. Allt þetta á rúmum mánuði. Jú, svolítið sérstakt. En samt, gleymum ekki fréttinni í kringum DV um að Björgólfur Guðmundsson hafi farið fram á það við eigendur Dagsbrúnar snemma í desember að Gunnar Smári Egilsson yrði látinn víkja úr starfi forstjóra 365. Og allt þetta tal um að Davíð Oddsson hljóti að vera reiður yfir ráðningu Þorsteins, ég hef enga trú á því. Ég held að honum sé nákvæmleg sama.

Össur Skarphéðinsson skrifar á heimasíðu sína um ráðningu Þorsteins fyrr í vikunni. Það er eins og Össur hafi fengið glampa í augun yfir endurkomu Þorsteins og rifjar hann upp leiðara sem Þorsteinn skrifaði í Vísi um Jón Sigurðsson, sem þá vann á Þjóðhagsstofnun, og hét leiðarinn: „Frænka Charleys.“ Össur er klár á því að Jón Ásgeir og Baugur séu að friðmælast við Sjálfstæðisflokkinn eftir að Davíð Oddsson sé farinn af leiksviðinu. Össur hælir Guðmundi Magnússyni í hástert í pistlinum fyrir sjálfstæði sitt í skoðunum og leiðarann áðurnefnda en hann vissi ekki frekar en aðrir á þeirri stundu að búið væri að segja Guðmundi upp. Össur segir um Baug og Gunnar Smára: „Arkitektinum að fjölmiðlaveldinu er fórnað á altari sátta við Sjálfstæðisflokk Geirs H. Haarde.“

Þorsteinn Pálsson kemur til starfa seinni partinn í febrúar. Fréttablaðið ætti fyrir þann tíma að rifja upp hinn fræga leiðara hans frá fyrri árum um „Frænku Charleys“ sem og samskipti Þorsteins við Óla Jó.

Jón G. Hauksson

 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is