
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Ætli ég sé eini maðurinn sem er kominn með algjöra leið á Baugsmálinu? Ég nennti ekki að lesa viðtalið við Jón Gerald í Mogganum. Eilífar kenningar um samsæri eru afar þreytandi, þó að stundum reynist þær sannar. Ég heyri mjög oft í fólki sem er sannfært um að allt Baugsmálið sé eitt samsæri frá upphafi til enda. Það finnst mér ótrúlegt, því að ég á alltaf erfitt með að trúa slíku upp á fólk. Aðrir segja að Baugsmenn séu að kaupa sér réttvísi. Það eru líka ómerkileg vísindi. Auðvitað hafa þeir mjög fína lögmenn. Ég þekki aðallögmenn þeirra og veit að þeir eru snjallir menn. Þeir hafa einbeitt sér að þessu stóra máli í langan tíma og unnið það vel. En á endanum hlýtur réttvísin að sigra. Ef Baugsmenn eru sekir verða þeir dæmdir, ef þeir eru saklausir verða þeir sýknaðir. Peningar munu ekki stjórna því. Fram að þessu hafa þeir verið sýknaðir í öllum atriðum sem dæmt hefur verið í. Það segir sögu.
Fótboltinn
Það er svolítið erfitt að halda ekki með neinum í heimsmeistarakeppninni. Það eru mörg góð lið, en ekkert þeirra er uppáhaldsliðið mitt. Ég hef alltaf haldið svolítið upp á Brasilíu síðan Pele var og hét. En þeir hafa ekki sýnt neina meistaratakta. Maður getur eiginlega ekki haldið með Þjóðverjum og það þarf ekki að skýra nánar. Englendingar með puntudrenginn Beckham hrífa engan sem ekki er gegnsýrður af þeim áður. Joe Cole hefur sýnt takta, en annars ...
Portúgalar unnu Hollendinga í spennandi leik sem dómarinn missti út í hreina vitleysu. Ronaldo er frábær, en hann fór útaf. Figo er svo upptekinn af því að vera kyntröll að manni leiðist að sjá hann, svo ekki sé talað um íþróttamannslega hegðun hans þegar hann skallar fyrst Hollendinginn (sem lét sig svo detta) og þegar hann lék svo sjálfur fall með tilþrifum. Lét meira að segja setja ís á augað á sér. Ég hefði rekið hann útaf í bæði skiptin.
Argentína grísaði á sex mörk á móti Serbíu-Svartfjallalandi. Hvað er erfitt að vinna land sem er sjálft að liðast í sundur? Þeir mörðu Mexíkó en með þessu áframhaldi vinna Þjóðverjarnir þá.
Aðrir í átta liða úrslit. Ítalir lenda á móti Ástralíu, sem getur ekkert nema flækjast fyrir. Formsatriði, en örugglega leiðinlegur leikur. Ítalir mæta svo sigurvegaranum úr leik Sviss og Úkraínu! Hvers konar lúserar veljast saman? Ítalía virðist örugg í undanúrslit.
Brassar þurfa að mæta á móti Gana. Formsatriði. Svo keppa Frakkar og Spánverjar í leik sem einhvern tíma hefði verið kallaður stórveldaslagur, en Frakkar eru ekkert stórveldi í þessari keppni. Þeir eru eins og Svíar í handboltanum, of seinir að skipta út gamlingjunum.
Spáin? Því ekki það. Þýskaland mætir Portúgal í undanúrslitum og vinnur. Í hinum leiknum vinnur Brasilía Ítalíu. Úrslitaleikurinn eins og ég spáði allan tímann: Þýskaland Brasilía og úrslitin verða ... Tja, er vert að sprengja alla veðbanka?
NÝLEGIR PISTLAR