leita

ELDRI PISTLAR

Ólafur Harðarson prófessor segir að erfitt sé að spá um úrslitin í Reykjavík vegna þess að gengi Besta flokksins í könnunum sé algert einsdæmi. „Það væri óðs manns æði. Ég held að það væri jafnvitlaust fyrir mig að segja eitthvað um úrslitin í Reykjavík eins og það væri vitlaust

21. nóvember | Verðlaunagetraun (BJ)
Deilur Ingibjargar Sólrúnar og Morgunblaðsins verða æ skrautlegri. Á mánudaginn 14. nóvember birti Morgunblaðið breiðsíðu um málið þar sem eftirfarandi kom fram. Nú vantar mig hjálp. „Það var athyglisverður kafli í ræðu Ingibjargar Sólrúnar að hún er að uppgötva, að íslenzkir jafnaðarmenn eiga sér merka sögu.

22. desember | Ömurleg jól (BJ)
Þegar jólaútgáfur dagblaðanna biðja fólk að rifja upp eftirminnileg jól virðast flestir minnast þess þegar þeir voru fastir á fjöllum á aðfangadag, gjafirnar týndust eða jólasteikin brann í ofninum. Mér finnst ég hálfpartinn utangátta vegna þess að öll mín jól hafa gengið ágætlega upp. Allt hefur farið eins og


PISTLAR

01/09/2006 | 18:43

Árni Johnsen fær uppreist æru(JGH)

Það hlaut að verða fréttaefni þegar Árni Johnsen fengi uppreist æru. Það verður allt að fréttum sem tengist Árna. Umræðan núna snýst um það hvort það hafi verið klaufalegt hjá handhöfum forsetavalds að „nota tækifærið“ og afgreiða „rútínuverk“ og veita Árna uppreist æru í stað þess að bíða eftir því að forsetinn kæmi til landsins og afgreiddi málið, sem hann hefði örugglega gert.

 

Það er auðvitað verið að grugga vatnið vegna þess að handhafar forsetavaldsins, sem veittu Árna uppreist æru, eru Geir H. Haarde forsætisráðherra, Gunnlaugur Claessen, forseti Hæstaréttar, og Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis. Með öðrum orðum; undirtónninn í umræðunni hefur verið sá að sjálfstæðismenn hafi verið með einhvern klíkuskap og „notað tækifærið“ á meðan Ólafur Ragnar, forseti Íslands, var ekki á landinu til að afgreiða málið.

 

Dómsmálaráðuneytið sá ástæðu til að senda frá sér sérstaka tilkynningu út af málinu um að um langt árabil hefði undantekningarlaust verið gerð tillaga til forseta Íslands um uppreist æru, ef umsækjandi fullnægði lögformlegum skilyrðum um að hún sé veitt. Árni sótti um uppreist æru og stóðst skilyrðin.

 

Það hefði örugglega þótt saga til næsta bæjar ef forseti Íslands hefði ekki veitt Árna uppreist æru. Svo ekki var það fréttin. En var það þá bomban stóra að handhafar forsetavaldsins skyldu veita Árna uppreist æru? Hvað ef þessir áægtu handahafar hefðu ekki gert það?

 

Ekki veit ég hvort Árni Johnsen sé velkominn í þinglið sjálfstæðismanna aftur. Ég efast um það. En fyrst verður hann að sigra í prófkjörinu í Suðurkjördæminu. Allir reikna með því að Árni fari fram og ætli sér endurkomu í pólitíkina. Það verður bara að koma í ljós hvernig honum verður tekið og hvort aðrir en Eyjamenn styðji hann. En eftir þennan gjörning handhafa forsetavaldisns verður því örugglega ekki dengt á forystu sjálfstæðismanna að þeir hafi reynt að koma í veg fyrir endurkomu Árna.

 

Annars hefur hin pólitíska umræða ekki bara snúist um endurkomu Árna og uppreist æru hans heldur einhverja leyniskýrslu Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings, sem hann vann þegar hann var á Orkustofnun, og mátti ekki tjá sig um. Nálgast hefur mátt þessa skýrslu m.a. á Netinu í einhver ár en umræðan um skýrsluna náði hámarki í byrjun ársins 2003 og glumdi hún þá í hverjum fréttatímanum af öðrum og allir tjáðu sig um hana – svo mikil var leyndin.

 

Það er hægt að segja það sama um þessa leyniskýrslu Gríms og Árna Johnsen að skýrslan hefur fengið uppreist æru í þessari viku. Hún hefur fengið ótrúlega endurkomu. Grímur mun hafa sent orkumálastjóra skýrsluna í febrúar árið 2002 en Alþingi heimilaði Landsvirkjun í apríl 2002 að reisa Kárahnjúkavirkun og greiddu 44 þingmenn því atkvæði.

 

Allt snýst núna um það hvort einhverjir hafi vitað og ekkert sagt. Var öllu haldið leyndu með miklu samsæri í einhverja mánuði til að blekkja Alþingi? Er það nú trúlegt? Þetta virðist hins vegar „mjög spennandi og spúkí“ og núna hamast Steingrímur J. og Össur við að nota þetta sem fóður í pólitískar illdeilur. Skýrsla Gríms gengur út á að Kárahnjúkavirkun sé á sprungusvæði og ætla má af skýrslunni að allt muni fara til fjandans þarna á svæðinu.

 

Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði í samtali við Ríkisútvarpið að umræðan um skýrsluna væri „vitleysa eins og tíðkaðist í pólitískri umræðu hérlendis“. Bætti Davíð því við að hann væri feginn að þurfa ekki að taka þátt í umræðunni og að það væri ekki hlutverk Alþingis að „rannsaka jarðlög“. Þá sagði hann að þessi leyniskýrsla, sem svo væri nefnd, væri ekki leyndari en svo að hún væri komin út á bók.

 

Það er ljóst að Davíð hefur engu gleymt þegar kemur að því að orða hlutina og verst að hann sé í einhverju „skoðanabindindi“ – eins og hann orðar það sjálfur. En hvað um það; menn og skýrslur hafa fengið uppreist æru þessa vikuna - það eru víða „kombakk“ í gangi.

 

Jón G. Hauksson

 

jgh@heimur.is

 

 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is