leita

ELDRI PISTLAR

23. ágúst | In vino veritas (BJ)
Það er sérstakt að fara burt í viku og fá svo skammt af fréttum. Davíð ætlar ekki að hætta, Siv þarf að hætta en vill ekki, Jón Steinar bíður eftir að verða stimplaður inn í Hæstarétt, Clinton hjónin ætla að kvelja okkur með nærveru sinni, meira að segja frú Blair

Ég hafði orð á því í síðasta pistli að töfraspotarnir yrðu lagðir á hilluna eftir kosningar og þá tæki raunveruleikinn aftur við. Flestir telja borðleggjandi að Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn vinni saman eftir kosningar og að spurningin núna sé aðeins um það hvor flokkurinn fái meira fylgi og þar með

Björgólfur Guðmundsson sagði í Kastljósi að skuldir vegna Icesave muni ekki lenda á íslensku þjóðinni; það séu til eignir í bankanum fyrir þessum reikningum. Þetta er raunar það sama og sonur hans, Björgólfur Thor, hélt fram á dögunum. Vonandi hafa þeir feðgar rétt fyrir sér. En þá vaknar auðvitað


PISTLAR

12/10/2006 | 12:20

Hvað er Jón Baldvin að fara? (JGH)

Íslendingar eru tæknimenn. Núna eru hleranir síma komnar í tísku. Það nýjasta í þeim efnum er að Jón Baldvin Hannibalsson segir fullum fetum að sími hans í utanríkisráðuneytinu hafi verið hleraður. Það taka allir andköf. Og mestu andköfin taka þeir sem hafa hælt sér af því að birta stolna tölvupósta Jónínu Benediktsdóttur. Það er í lagi – en núna ná þeir ekki andanum. Hún er oft skrítin þessi litla veröld á Íslandi. En það er ljóst að það verður nóg að gera hjá Spaugstofunni þessa vikuna. Það er eitt stórt samsæri í gangi. Í enn eitt skiptið.

 

Ég segi nú alveg eins og er – eftir að hafa kynnst blaðamennsku ágætlega – að ekki vildi ég vinna við hleranir. Það hefur oft reynst mikið verk að taka viðtöl við stjórnmálamenn því þeir eru flestir oft mjög málglaðir og illskiljanlegir í viðtölum. Það hefur þurft að stytta þá og laga. Útskýra. Það hefur einfaldlega oft tekið tímann sinn að vinna úr samtölum við þá. En guð hjálpi mér ef það þyrfti að vinna úr hleruðum símtölum þeirra allan sólarhringinn; 24 stundir, 7 daga vikunnar. Það væri satt að segja ekki leggjandi á neinn venjulegan mann.

 

Jón Baldvin Hannibalsson er að vísu einhver allra skýrasti viðmælandi sem blaðamenn hafa kynnst og stundum hefur verið haft á orði að ritað mál rynni eiginlega upp úr honum. Jón Baldvin var sem ráðherra einn af þeim sem var í miklu uppáhaldi hjá mér. Skemmtilegur stjórnmálamaður. Hann talaði skýrt og það tók ekki langan tíma að vinna úr samtölum við hann. En í hlerunarmálinu er erfitt að átta sig á því hvað hann er að fara. Hann kemur manni satt að segja mjög á óvart núna - og er þá vægt að orði komist.

 

Hver er þessi tæknimaður sem Jón fékk til að rannsaka síma sinn í utanríkisráðuneytinu? Hvers vegna lét hann ekki Böðvar Bragason lögreglustjóra, sem var á hæðinni fyrir neðan hann í utanríkisráðuneytinu, vita? Hvers vegna vissi Jón Baldvin ekki af því að færustu sérfræðingar Nató könnuðu á hverju ári hvort símar forsætis-, utanríkis- og dómsmálaráðherra væru hleraðir? (Eða voru það kannski þeir sem komu hlerunarbúnaðinum fyrir í síma Jóns?) Hvers vegna gerði Jón Baldvin ekki allt vitlaust á sínum tíma og fór með hlerunarmálið í blöðin og sjónvarpið? Annað eins lak nú úr herbúðum kratanna í blöðin. Það var meira að segja haft orð á því í Viðeyjarstjórninni að mál þar væru ekki orðin að neinum stórmálum fyrr en þau væru komin á forsíður dagblaðanna. Kannski það hafi verið fjölmiðlar sem hleruðu símann í utanríkisráðuneytinu? Spurningarnar eru margar enda samsærið stórt.

 

Ég hélt því fram í síðasta pilsti að mikilvægt væri að gera upp fortíðina og hreinsa andrúmsloftið með því að opna aðgang að þeim skjölum sem eru í Þjóðskjalasafninu og eru um hleranir á tímum kalda stríðsins. Þetta voru hleranir skv. dómsúrskurði og þetta voru hleranir fyrir 40 til 60 árum. Pistillinn gekk raunar út á að hleypa ætti Kjartani Ólafssyni, fyrrum ritstjóra Þjóðviljans og alþingismanni, strax í þessi gögn og að hann sæti við sama borð og Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. Ég árétta hér að mikilvægt er að gera upp fortíðina í hlerunarmálum kalda stríðsins og þeir stjórnmálamenn sem núna eru í brennidepli eiga ekki að streitast á móti og hvað þá að láta pólitíska andstæðinga sína klína þeim á sig.

 

Það er hins vegar eitt mjög magnað með þessa umræðu um hleranir á tímum kalda stríðsins. Ég fæ ekki betur séð en að þeir, sem hafa hælt sér af því að undanförnu að hafa birt stolna tölvupósta Jónínu Benediktsdóttur og haldið sérstaklega upp á það, taki núna mikil andköf um hleranir fortíðarinnar – og hneykslist mjög á þeim.

 

Það er sjálfsagt sitthvað símahleranir og stolnir tölvupóstar. Eitt er þó öruggt; það er kosningavetur framundan og það er augljóslega hlaupinn skjálfti í fyrrum pólitíkusa. Jón er kominn heim.

 

Jón G. Hauksson

 

 

jgh@heimur.is

 

 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is