leita

ELDRI PISTLAR

Í síðasta pistli var talað um þá niðurstöðu breskrar þingnefndar að þeir Murdoch feðgar væru óhæfir útgefendur blaða. Þetta leiðir hugann að því hvernig ástandið sé og hafi verið hér á landi. Sjálfstæði fjölmiðla verður aðeins algert að sérhver starfsmaður geti leikið lausum hala og gert það sem honum

Það er athyglisvert að í fyrstu ræðu sinni sem forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar sáir Ingibjörg Sólrún fræjum tortryggni um vinnubrögð skattrannsóknarstjóra og efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Þeir séu í raun aðeins útsendarar Davíðs Oddssonar. Þar með samtvinnar hún trúverðugleika sinn niðurstöðu þessara rannsókna. Þó virðist Ingibjörg stundum segja Davíð, en meina Össur. Ræða

Forseti Íslands gerði rétt í því að gagnrýna Gordon Brown í viðtali við Sky fyrir að beita hryðjuverka- lögum gegn Íslendingum haustið 2008. Forsetinn var kurteis miðað við það sem Tony Blair sagði um þennan samstarfsmann sinn til margra ára; að hann hegðaði sér eins og mafíósi og væri


PISTLAR

05/05/2003 | 00:00

Fyrning - lausn vandans? (BJ)

Það er ljóst að stjórnarandstöðuflokkar telja það vænlegt að lýsa andstöðu við kvótakerfið og sú hugmynd sem mests fylgis þeirra nýtur er svonefnd fyrningaleið. Andstaðan við kvótakerfið kemur ekki til fyrst og fremst vegna þess að það sé slæm leið til þess að vernda fiskistofna, en til þess var það ætlað, heldur hins að sumir græði á því með ósanngjörnum hætti. Menn græða þó ekki á kvótaeigninni sjálfri nema með því að selja hana. Aðrir verða þá að kaupa og nú stendur sem sé til að refsa þeim sem keyptu með því að gera kvóta þeirra upptækan.

Látum vera að með þessu er verið að hegna mönnum sem hafa átt fyllilega lögleg viðskipti samkvæmt núgildandi lögum sem hafa að stofni til verið í gildi á annan áratug. Það skapar að vísu sjálfstæð vandamál, en lítum fyrst og fremst á hvaða áhrif nýja kerfið hefur á hagkerfið. Segjum að á næsta ári verði 95% kvótans úthlutað og 5% boðin upp. Hverjir eru líklegir til þess að geta eignast þann kvóta? Skynsemin segir manni að það hljóti að vera fjárhagslega vel stæðir aðilar sem hafi reynslu og fótfestu í greininni. Það verða því væntanlega stærstu og sterkustu útgerðirnar sem geta boðið best. Þess vegna hefur þetta þau áhrif að kvótinn færist á færri hendur. Veikustu útgerðirnar munu smám saman tapa kvóta sínum vegna þess að þær geta ekki boðið á móti þeim sterkari. Þær munu leita skjóls þeirra stærri og samþjöppun í fyritæki verður enn meiri.

Þetta kerfi stuðlar mjög hratt að hagræðingu í greininni eins og réttilega hefur verið bent á. En það veldur því líka að sumar byggðir minnka og fara jafnvel í eyði mjög hratt. Það er í sjálfu sér ekkert hryggðarefni fyrir frjálshyggjumenn, en vinnur hins vegar þvert gegn markmiðum margra þeirra stjórnmálamanna sem hafa haft horn í síðu kvótans. Þess vegna munu þeir búa til nýjar reglur sem segja hvert kvótinn má fara. Hluti hans fer á ákveðnar byggðir, hluti tengist litlum bátum, hluti fiskvinnslunni og svo framvegis. Allt verður þetta svo til þess að á kvótanum verður margskonarverð eftir greiðslugetu hvers hóps um sig. Hagræðingin verður því hindruð með handafli. Útgerðirnar munu sjá við þessu og stofna sýndarfyrirtæki og þannig mun kerfið verða spillt frá fyrsta degi.

Staða þeirra útgerða sem eftir verða verður veikari en áður, því til þess eins að halda í horfinu þurfa þær að greiða gjald fyrir kvótann. Verðið mun draga dám af þessu þegar fram í sækir, en til að byrja með verður það eflaust allt of hátt. Samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs minnkar. Þetta mun hins vegar eflaust jafna sig þegar útgerðunum fækkar.

Sjómenn verða að gefa eftir af sínum hlut. Reynt verður að setja lög til þess að banna þeim að taka þátt í kvótakaupum, en er það sanngjarnt. Þeir fá um 40% af aflaverðmætinu og græða því á því að útgerðirnar kaupi meira. Þessi grundvallarbreyting hlýtur að verða til þess að samningum við sjómenn verði breytt þannig að launakerfi þeirra verði ekki beinlínis dragbítur á hagræðingu.

Niðurstaðan er þá þessi:

1. Byggðum fækkar
2. Sjómenn missa laun
3. Kvótinn fer á færri hendur
4. Samkeppnisstaða útgerðar á Íslandi versnar
5. Reynt verður að stýra kerfinu með handafli

Það hljóta hins vegar allir að sjá að þetta kerfi er miklu sanngjarnara en gjafakvótinn og því er mikið á sig leggjandi.

Fyrningaleið er reynar alls ekki hrein vitleysa, óheft leiðir hún til hagræðingar, en það er afar erfitt að skipta um kerfi og alls ekki heppilegur tími til þess að skapa nýtt fiskveiðstjórnunarkerfi í miðjum kosningum, þegar lýðskrum og yfirboð ráða ferðinni.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is