
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur haldið því fram að ein helsta ógnin við knattspyrnu í heiminum sé sókn auðmanna í knattspyrnu- félög. Rök hans hafa verið þau að þeir séu ekki að kaupa félögin af hreinni ást á íþróttinni heldur vegna allt annarra sjónarmiða. Blatter skaut m.a. á Eggert Magnússon í þessu sambandi, en dró síðan ummæli sín um hann til baka. Orð Blatters um auðmennina hafa engu að síður verið talsvert til umræðu í erlendum fjölmiðlum.
Ekki veit ég hvernig Blatter ætlar að koma í veg fyrir að peningar streymi inn í knattspyrnuna. Ætlar hann að banna auðmönnum að kaupa knattspyrnufélög? Og hvernig fær hann það út að auðmenn séu að eyðileggja fótboltann með því að kaupa þekkt knattspyrnufélög og rífa þau upp?
Þessi umræða er af svipuðum toga og þegar fjallað var um fjölmiðlafrumvarpið og hringamyndun á Íslandi fyrir rúmum tveimur árum. Kjarni þeirrar umræðu var þá sá að setja þyrfti upp hindranir og einhvers konar lög um það hvað hver mætti eiga í fyrirtækjum – og hvað hvert fyrirtæki mætti vera með stóran bita af markaðnum. Varað var við auðmönnum. Rökin á móti voru þessi: Á að banna auðmönnum að setja fé í fjölmiðla á Íslandi og hverjir aðrir en menn sem eiga einhverja peninga geta keypt stóra fjölmiðla?
Vangaveltur manna um auðmenn og knattspyrnufélög hefur auðvitað stigmagnast eftir að Rússinn Roman Abramovich, keypti enska úrvalsdeildarliðið Chelsea og hóf að dæla í það fé. Chelsea er það íþróttafélag sem tapar mestu – en það skiptir Rússann engu máli. Boltinn er áhugamál hans. Þá berast fréttir um að Arabar séu í þann mund að kaupa, Liverpool, sigursælasta lið Englands.
Orð Sepp Blatters um að auðmenn séu að eyðileggja knattspyrnuna er líka óskiljanleg í ljósi þess að auðmenn hafa í áraraðir átt öll helstu knattspyrnufélög í Evrópu. Íþróttaáhugamenn sækja völlinn og þeir horfa á leiki í sjónvarpinu. Þeir eru tilbúnir til að greiða fyrir að fylgjast með þessari vinsælustu íþrótt í heimi.
Fé streymir til þeirra knattspyrnufélaga sem eru mest í sviðsljósinu og það getur verið eftir miklu að slægjast að eiga knattspyrnufélag í fremstu röð í heiminum. Það eru og hafa verið peningar í boltanum – það veit Sepp Blatter þegar hann ekur um í limmósínum í störfum sínum fyrir knattspyrnuna.
Það hefur ekki alltaf verið peningaflóð í boltanum. Ríkharður Jónsson sagði frá því þegar hann sendi frá sér nýja bók á dögunum að þegar hann var um tíma á mála hjá Arsenal hafi laun leikmanna verið tvöföld verkamannalaun. Meira var það nú ekki.
En er boltinn núna öðruvísi og verri en þegar Rikki skoraði mörkin? Það held ég ekki – auðmenn hafa ekki eyðilagt boltann og munu ekki gera. Eitt er öruggt; það verður aldrei hægt að banna mönnum að kaupa knattspyrnufélög.
Jón G. Hauksson
NÝLEGIR PISTLAR