leita

ELDRI PISTLAR

Kosningaúrslitin á laugardaginn eru áfall fyrir Ingibjörgu Sólrúnu. Í Reykjavík sem á að vera höfuðvígi Ingibjargar og sérlegur kandídat hennar leiddi listann galt Samfylkingin afhroð. Á stöku stað náðu staðbundnar aðstæður að vega upp slaka frammistöðu foringjans. Reykjavík var þó aðalvettvangurinn og þar féll Samfylkingin á prófinu. Fyrir kosningarnar

Ég sat skemmtilega ráðstefnu í Háskóla Íslands þar sem rætt var um samband akademíunnar og atvinnulífsins. „Samband platheima og raunheima,“ eins og Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, nefndi þetta samband fyrir framan fræðasamfélagið og bætti því við að þetta væri meira sagt í gríni en alvöru. Þetta

Yfir 40% Íslendinga hafa íhugað alvarlega á síðustu mánuðum að flytja af landi brott og meira en helmingur ungs fólks á aldrinum 18 til 29 ára. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem fyrirtækið MMR hefur gert. Þegar er mikill straumur fólks út og er það orðað þannig að


PISTLAR

30/12/2006 | 06:59

Róbert Wessman maður ársins (JGH)

Hæstvirtur forsætis ráðherra, Geir Haarde,
aðrir ráðherrar,
góðir veislugestir!

Velgengni er eins og stigi, sem ekki verður klifrað upp með hendur í vösum.

Þannig hljóðar amerískur málsháttur – og hann á vel við hér í dag þegar Frjáls verslun útnefnir og heiðrar mann ársins 2006 í íslensku atvinnulífi; Róbert Wessman, forstjóra Actavis Group.

Bæði er það að Norður-Ameríka er stærsta markaðssvæði Actavis og hitt að það verður seint sagt um Róbert Wessman að hann sé með hendur í vösum – og sitji aðgerðarlaus.

Velgegni Actavis undir hans stjórn talar sínu máli:
*Hún er ekki aðeins svo mikil að undrun sætir.
*Hún er slík að greiningardeildir erlendra stórbanka telja Actavis eitt allra áhugaverðasta   félagið á sviði samheitalyfja í heiminum í dag.

Þegar Róbert var ráðinn forstjóri lyfjafyrirtækisins Delta í Hafnarfirði árið 1999, þá þrítugur að aldri, störfuðu rúmlega 100 manns hjá fyrirtækinu; og allir á Íslandi.

Á þessari stundu eru ellefu þúsund starfsmenn Actavis að störfum í 32 löndum.

Arðsemi Actavis hefur verið 59% á ári að jafnaði frá árinu 1999 – sem auðvitað er einstök ávöxtun og ánægjuleg fyrir hluthafa félagsins.

Yfirtökurnar eru orðnar yfir 25 talsins í tíð Róberts – þar af þrjár á síðustu fjörutíu dögum.

Actavis Group er núna fjórða stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi og stefnir hraðbyri að því að verða það þriðja stærsta. „Okkur liggur á,“ segir Róbert.

Góðir hálsar!

Þetta er í nítjánda skiptið sem Frjáls verslun útnefnir mann ársins í íslensku viðskiptalífi. Þetta eru verðlaun fyrir árangur þar sem afreksmenn á sviði viðskipta eru heiðraðir – þeim sjálfum og öðrum til hvatningar.

Samt er gaman að geta sagt frá því að í langflestum tilvikum hefur árangur manna ársins hjá Frjálsri verslun orðið miklu meiri eftir að þeir hafa fengið viðurkenningu okkar.

Það tók dómnefndina fjóra fundi að komast að niðurstöðu að þessu sinni. Vinnan fór þannig fram að nöfn 30 þekktra og valinkunnra athafnamanna voru sett niður á blað og lögð fyrir dómnefndina.

Auðvitað komu margir til greina. En dómnefndin rökræddi sig til þeirrar niðurstöðu að Róbert Wessman væri maður ársins 2006 vegna frábærrar frammistöðu Actavis Group á þessu ári – sem og á undanförnum árum.

Velta Actavis verður um 127 milljarðar króna á þessu ári en í fyrra var hún ríflega 50 milljarðar króna. Markaðsvirði fyrirtækisins um þessar mundir eru um 255 milljarðar króna.

Í dómnefnd Frjálsrar verslunar sitja auk mín eftirfarandi menn: Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Heims, útgáfufélags Frjálsrar verslunar, en hann er formaður nefndarinnar. Gylfi Magnússon, prófessor og deildarforseti viðskiptadeildar Háskóla Íslands, Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Norvikur og aðaleigandi Byko, og Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri FL-Group.

Þeir Gylfi og Sigurður eru nýir í nefndinni og koma í staðinn fyrir þá Guðmund Magnússon, prófessor í hagfræði, og Þorgeir Baldursson, sem jafnan er kenndur við Prentsmiðjuna Odda.

Veislugestir góðir!

Albert Einstein sagði: „Ég hugsa aldrei um framtíðina, hún kemur nógu fljótt samt.“

Þessi hugsun er í sjálfu sér skemmtileg – en hún á ekki við í viðskiptum. Þar lifa menn sjaldnast á fornri frægð og það gagnast lítið að horfa ævinlega á fortíðina.

Framtíðin, framtíðarsýnin og áætlanir eru það sem skiptir öllu máli í viðskiptum – ætli menn að stækka fyrirtækin.

Það væri að æra óstöðugan að lesa upp þær mörgu yfirtökur sem Actavis hefur staðið að á undanförnum árum undir stjórn Róberts.

Það fer hins vegar ekki á milli mála, að eftir að Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður og aðaleigandi Actavis Group, sameinaði Delta og Pharmaco um mitt sumarið 2002, var það augljóslega mikið lán fyrir hið sameinaða fyrirtæki, að Róbert Wessman, leiddi það inn í framtíðina – á braut vaxtar og fjárfestinga.

En Róbert segir einmitt í viðtali við Frjálsa verslun að vinnutími hans skiptist til helminga í daglegan rekstur og leit að nýjum og spennandi fyrirtækjum til að kaupa.

Ágætu gestir.

Ekki verður um Róbert Wessman fjallað án þess að minnast á eiginkonu hans, Sigríði Ýr Jensdóttur, heimilislækni.
Þau kynntust í Menntaskólanum við Sund og hafa verið saman frá því þau voru sautján ára. Þau eiga tvö börn, Helenu Ýr, 8 ára, og Jens Hilmar, 5 ára.

Ég held að enginn efist um að það hafi meira mætt á Sigríði Ýr en Róberti við barnauppeldið og heimilisstörfin.
 
Mig langar að biðja veislugesti um að klappa fyrir Sigríði Ýr.

Það fer vel á því að útnefna Róbert Wessman mann ársins hér á Hótel Sögu. Sjálfur orðar Róbert það svo að hann sé fæddur og uppalinn á þessu hóteli – en faðir hans Wilhelm Wessman var hér aðstoðarhótelstjóri í áraraðir sem og hótelstjóri á Holliday Inn.

„Ég byrjaði 11 ára að vinna sem pikkóló og síðan í eldhúsinu þar sem maður þurfti kannski að skræla kartöflur ofan í allan Súlnasalinn, 400 manns,“ segir Róbert m.a. við Frjálsa verslun um störf sín hér á hótelinu.

Veislugestir góðir.

Ég vil nota tækifærið og óska fjölskyldu og vinum Róberts Wessmans til hamingju með daginn – sem og ellefu þúsund starfsmönnum Actavis úti um allan heim.

Mig langar til að ykkur um að lyfta glösum og skála.

Róbert Wessman er maður ársins 2006 í atvinnulífinu á Íslandi.
Skál.
Hann lengi lifi. Húrra, húrra, húrra, húrra.

Jón G. Hauksson

jgh@heimur.is


 

 

 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is