leita

ELDRI PISTLAR

05. júní | Nú er ég hlessa (BJ)
Líklega er vefsvæði saksóknara Alþingis það vitlausasta sem komið hefur fram í málinu gegn Geir H. Haarde hingað til. Til hvers í ósköpunum? Ætlar saksóknarinn að blogga á hverjum degi? Er peningunum vel varið í það? Svarið blasir reyndar við. Saksóknarinn hefur lært af Baugsmálinu. Hann ætlar að

Ég hvet alla til að mæta á kjörstað á morgun og merkja við: „Nei, þau eiga að falla úr gildi.“ Þetta er hins vegar mun stærra NEI en margur heldur. Skilaboðin eru þessi: „Við látum ekki Breta og Hollendinga kúga okkur!“ Heimsbyggðin fylgist með og tækifærið er núna. Útskýrum

Stundum er sagt að hún sé skrýtin tík pólitíkin. Eftir kosningarnar er vart um annað rætt en pólitíska framtíð Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar. Ingibjörg er án þingsetu og úr leik í bili og flestir hallast að því að Davíð dragi sig í hlé eftir eitt


PISTLAR

08/09/2005 | 00:00

Davíð hættir í stjórnmálum(JGH)

DAVÍÐ ODDSSON ER fæddur sigurvegari í stjórnmálum. Hann er einn hinna stóru foringja í Sjálfstæðisflokknum og skipar sér þar á bekk með Ólafi Thors og Bjarna Benediktssyni. Líklegast er Davíð sterkasti foringi flokksins frá upphafi. Það er samt alltaf erfitt að bera saman sterka foringja frá mismunandi tímum og segja að einn sé betri en annar, menn eru börn síns tíma.

HANN SÝNIR OKKUR best að málefnin skipta ekki bara máli í pólitík. Glaðvær og klókur – en stundum líka grimmur. Vinsæll, en alls ekki allra. Þetta er Davíð Oddsson í hnotskurn. Geir Haarde tekur við af honum sem formaður flokksins. Spurningin er: Verður hann sá sterki foringi sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf að hafa til að ná árangri? Næstu kosningar verða mikil prófraun fyrir Geir. Hann þarf að endurtaka sigur Davíðs á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur frá því fyrir rúmum tveimur árum. Ég held að honum takist það.

ÞEIR DAVÍÐ OG GEIR HAARDE eru býsna ólíkir. Ég hefur áður lýst muninum á þeim með þessum orðum: Davíð kann þá kúnst betur en nokkur annar að tala beint til fólksins, vafningalaust og á mjög skiljanlegu máli. Sá eiginleiki hefur gert hann jafnvinsælan og raun ber vitni. Báðir eru með mikla kímnigáfu. Geir er samt mun fræðilegri en Davíð, stundum svolítið daufgerður, og ekki laust við að hann hljómi stundum eins og embættismaður.

DAVÍРKVEÐUR PÓLITÍKINA eftir rúm fjórtán ár sem formaður Sjálfstæðisflokksins, aðeins Ólafur Thors hefur gegnt formennsku í flokknum lengur. Davíð kveður eftir að hafa verið forsætisráðherra í samfellt 13 ár, utanríkisráðherra í 1 ár og borgarstjóri í 9 ár. Þetta er einstakt í evrópskri stjórnmálasögu. Enginn hefur verið forsætisáðherra jafn lengi á Íslandi og Davíð.

BJÖRN BJARNASON SAGÐI þegar hann studdi Davíð gegn Þorsteini í kjörinu um formennskuna í flokknum árið 1991 að það þyrfti að skipta um formann vegna þess að Davíð væri sigurvegari og þannig mann vantaði flokkinn. Björn hafði á réttu að standa. Pólitísk ganga Davíðs Oddssonar hefur verið samfelld sigurganga. Hann hefur aldrei tapað kosningum á sínum ferli.

HAFT VAR Á ORÐI þegar Davíð hóf þingmennsku að hann hefði ekkert í kjaftaskana á þingi að gera, menn eins og Steingrím Hermannsson, Steingrím J. Sigfússon, Ólaf Ragnar Grímsson og Jón Baldvin Hannibalsson. Ennfremur var haft á orði að það liði langur tími þar til hann næði tökum á þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Furðufljótt átti annað eftir að koma á daginn. Hann er þannig leiðtogi að hann „á salinn“ alls staðar þar sem hann kemur. Eitt geta menn bókað; hann er á leiðinni í Seðlabankann til að stjórna bankanum.

JÓN BALDVIN HANNIBALSSON sagði árið 1997 í löngu viðtali við mig í Frjálsri verslun: „Sjálfstæðisflokkurinn er óstarfhæfur án sterks foringja því flokkurinn er valdabandalag sérhagsmunahópa og skoðanahópa sem spanna allt litrófið. Það er sýnt að Davíð kann til verka við að stýra flokknum. Davíð er hins vegar óvenjulegur á meðal stjórnmálamanna – því að í mínum huga er hann fyrst og fremst einfari og listamaður. Hann er listamaður að upplagi. Og hann rökræðir helst ekki mál við samstarfsmenn; a.m.k. ekki samstarfsmenn í öðrum flokkum. Davíð hefur hins vegar gott pólitískt nef; hann er næmur og fundvís á það sem er til vinsælda fallið.“

RÍKISSTJÓRNIR DAVÍÐS ODDSSONAR undir forystu Sjálfstæðisflokksins, fyrst með Alþýðuflokknum og síðar Framsóknarflokknum, geta verið ánægðar með árangurinn í efnahagsmálum. Hann er í einni setningu þessi: Úr kreppu í hagsæld.

HAGVÖXTUR, STÖÐUGLEIKI, LÍTIL VERÐBÓLGA; vaxandi kaupmáttur ráðstöfunartekna; full atvinna; sala ríkisbankanna; lækkun skatta; bygging álvera; verndun fiskistofna; niðurgreiðsla á skuldum ríkissjóðs; aukið viðskiptafrelsi; almennir hagsmunir í atvinnulífinu í stað sérhagsmuna; og síðast en ekki síst EES-samningurinn árið 1991 sem er undirstaða hinnar margfrægu útrásar. Það þarf ekki mörg orð um þetta: Stórkostlegur árangur.

DAVÍÐ GAT EKKI valið betri tíma til að hætta. Hann var búinn að skila sínu og flokkurinn á toppnum. Hann gat auðvitað ekki dregið það lengur að taka ákvörðun um hvort hann ætlaði að vera áfram eða hætta; hvort hann ætlaði að rýma fyrir nýju fólki eða ekki. Hann segir að ákvörðun sín hafi ekki haft langan aðdraganda. „Það er þýðingarmikið að svona ákvörðun sé ekki lengi að paufast í loftinu,“ segir hann. Þetta er kómískt því það hefur einmitt einhvern veginn legið í loftinu frá síðustu kosningum að þær yrðu hans síðustu og hann ætlaði að hætta. En stundin varð óvenjulega stór þegar að henni kom.

HANN VIRÐIST HAFA leyst ráðherrakapalinn sem fylgir brotthvarfi hans úr pólitík með ágætum. Hrókeringar og Einar Guðfinnsson kemur nýr inn í ráðherraliðið. Það sýnist mikið mannval innan flokksins til að leiða flokkinn næstu árin. Geir Haarde virðist sjálfkjörinn sem næsti formaður flokksins og Björn Bjarnason ætlar ekki að gefa kost á sér í formannskjörið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Kristján Júlíusson hafa þegar boðið sig fram til varaformennsku. Sagt er að Árni Mathiesen og Bjarni Benediktsson íhugi líka framboð í varaformennskuna.

En hvað um það; Davíð Oddsson hættir í stjórnmálum. Sú stund gat ekki orðið önnur en stór. Stórleikari er genginn af sviðinu.

Jón G. Hauksson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is