leita

ELDRI PISTLAR

Þegar Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, útskrifar nemendur skólans í troðfullri Laugardalshöll á laugardag þá verður hún að horfast í augu við það að viðhorf þessara nemenda, helstu viðskiptavina skólans, er neikvætt í garð skólans. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á starfsemi fjögurra stærstu háskóla landsins. Það

10. apríl | Í rusli (BJ)
Það er svolítið skrítið að sumum virðist líða betur í rusli en skipulegu umhverfi. Oftast er það kannski leti, en heyrst hefur að það þýði ekkert að taka til, allt fari aftur í sama farið. Svipað virðist reyndar gilda um það að fara til rakara. Það hef ég margreynt

Morgunblaðið birtir athyglis verðan leiðara mánudaginn 27. febrúar. Þar fjallar blaðið um nýja mynd um bandaríska öldungadeildar þingmanninn Joe McCarthy og ofsóknir hans á hendur kommúnistum og meintum kommúnistum í Bandaríkjunum. McCarthy var um tíma geysilega áhrifamikill og gat á augabragði eyðilagt feril manna með því að kalla þá


PISTLAR

27/04/2007 | 13:45

Þykir vænna um hross en Kópavogsbúa (JGH)

Ég hef alltaf jafngaman af því þegar birtar eru rannsóknir um að vín sé hollt. Hver kannast ekki við vísindin um að glas af rauðvíni á dag styrki hjartað. Í gamla daga var stundum talað um að fá sér eitthvað hjartastyrkjandi, en það var áður en rauðvín komst í tísku. Nýjastu tíðindin úr heimi vísinda og víndrykkju birtust í Mogganum í morgun. „Jarðarber eru góð fyrir heilsuna og neyti maður þeirra í formi kokkteils eru þau jafnvel enn hollari, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var  í tímaritinu Journal of the Science of Food and Agriculture. Áfengið virðist nefnilega auka andoxunareiginleika berjanna.“

Í jarðarberjafréttinni, sem ber yfirskriftina Gerir áfengi ávöxtinn hollari?, segir ennfremur að séu jarðarber sett í áfengi þá slái þau á sindurefni sem valdi „fjölda sjúkdóma“ og séu talin ein helsta ástæða öldrunar. Þá sagði að vínandi gerði brómberjum gott. Þarna var fréttin á góðglöðu róli. En þá var öllum að óvörum talað við einhvern dr. Frankie Phillips hjá bresku manneldissamtökunum og verður ekki annað sagt en að hann hafi „frankie-steinað“ fréttina því hann fór að vara við of mikilli áfengisneyslu. „Þótt þessi rannsókn bendi til þess að jarðarber í vínanda hafi aukna andoxunareiginleika þá hefur áfengi eftir sem áður klárlega frumuskemmandi áhrif.“

VÆNNA UM HROSS EN KÓPAVOGSBÚA. Önnur skemmtileg frétt í vikunni er auðvitað stríðið á milli Kópavogs og Garðabæjar. Það er komið í ljós að Garðbæingum þykir vænna um hross en fólk – eða að minnsta kosti þykir þeim vænna um hross en Kópavogsbúa. Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, fór í stórinnkaup fyrr í vetur þegar hann keypti svonefnt Glaðheimasvæði af hestamönnum í Gusti í Kópavogi – og græddi tvo eða þrjá milljarða á því, ef ég man þetta rétt. Allir eru núna ólmir í lóðir og vilja byggja og græða. En viti menn. Brugðið var fæti fyrir dr. Birgisson. Sagt var frá því að umhverfisráðuneytið hefði synjað staðfestingu á skipulagi þessa svæðis og að núna þurfi hugmyndir Kópavogsbæjar að fara fyrir einhverja samvinnunefnd um svæðisskipulag. En í þessari samvinnunefnd virðist mjög lítil samvinna því Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ, er ekki sáttur við hið nýja hverfi og segir að umferðaræðar á þessu svæði anni ekki þeirri auknu umferð sem fylgi byggð á Glaðheimasvæðinu. En aldrei kvörtuðu Garðbæingar yfir hrossunum í Glaðheimum. Það er því ekki gleði í Glaðheimum heldur stríð. Sem gamall Kópvogsbúi held ég með mínum manni. Það var gott að búa í Kópavogi!

Sættir í sjónmáli? Ég held að það finnist ekki lausn á stríðinu á milli Kópavogs og Garðabæjar nema þeir Gunnarar setjist niður um helgina og fái sér ávexti saman. Það hefur oft verið etið mikið af jarðarberjum í hesthúsahverfinu í Glaðheimum í gegnum tíðina. Stundum varð vegakerfið þarna meira að segja tvöfalt eftir mikið ávaxtaát og annaði allri umferð.

Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá!

Jón G. Hauksson

jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is